Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2008, Síða 27
miðvikudagur 13. ágúst 2008 27Sviðsljós
Í júlí fóru að birtast myndir af
Jake Gyllenhaal með sítt hár sök-
um hlutverks hans í myndinni
Prince of Persia. Jake hefur hins-
vegar ekki bara verið að safna hári
fyrir hlutverkið heldur hefur hann
greinilega verið að bæta á sig vöðv-
um einsog sást í Marokkó í fyrra-
dag þegar Jake tók sér frí frá tökum
til að eyða tíma með sinni heitt-
elskuðu, Reese Witherspoon.
Þess má geta að íslenski leikar-
inn Gísli Örn Garðarsson fer einn-
ig með hlutverk í kvikmyndinni og
er líka staddur í Marokkó við tök-
ur. Það verður spennandi að sjá
myndir af Gísla berum að ofan á
tökustað. Spurning hvort hann sé
líka að fela svona stóra vöðva undir
skyrtunni eins og Jake?
Jake Gyllenhaal hefur heldur betur bætt á sig vöðvum fyrir hlutverk sitt í Prince of
Persia en hann spókaði sig um ber að ofan í hitanum í Marokkó á dögunum:
Kanadíska fyrirsætan og leikkonan
Natasha Henstridge hefur engu gleymt. Á
þessum myndum sést hin 33 ára Natasha
spranga um á bikiní en það er ekki á henni
að sjá að hún sé tveggja barna móðir. Hún
sló í gegn árið 1995 í skrímslamyndinni
Species og þótti um tíma ein fallegasta kona
heims.
Natasha lék í Species II árið 1998 en
síðan þá hefur hún aðallega leikið í sjón-
varpi. Hún er þó væntanleg í tveimur nýj-
um myndum. Annarsvegar Anytown sem er
væntanleg á þessu ári og svo Let the Game
Begin sem er væntanleg 2009. Í henni leika
meðal annars Stephen Baldwin, Michael
Madsen og Adam Rodriguez úr CSI; Miami.
Natasha Henstridge
hefur engu gleymt:
GlæsileG
mamma
Funheit enn í dag Það
er ekki að sjá að Natasha
sé tveggja barna móðir.
Glæsileg Natasha
er í flottu formi.
síðhærður oG
vöðvastæltur
Helköttaður og sjóðandi heitur
Jake gyllenhaal er búinn að koma
sér í fjári fínt form fyrir tökurnar.
Ástfangin á tökustað Jake
gyllenhaal og reese Wither-
spoon eru nánast óaðskiljanleg.
Handtekinn fyrir
heimilisofbeldi
Alan Panettiere faðir litlu sak-
lausu klappstýrunnar í Heroes-
þáttunum, Hayden Panettiere,
var handtekinn á mánudags-
morguninn fyrir að leggja hend-
ur á eiginkonu sína. Alan sem er
slökkviliðsmaður var handtekinn
á heimili fjölskyldunnar eftir að
hafa lamið eiginkonu sína, móð-
ur Hayden, fyrrverandi sápuóp-
eruleikkonuna Lesley Panettiere
seint um sunnudagkvöldið. Bæði
Alan og Lesley voru undir áhrif-
um áfengis þegar atvikið átti sér
stað og eru víst sjáanlegir áverkar
á andliti Lesley eftir barsmíðar
ektamannsins.
handtekinn
í svíþjóð
Reggístjarnan Sean Paul var
handtekin í Svíþjóð í dögunum
fyrir vörslu fíkniefna. Söngvarinn
var á meðal tónlistarmanna og
áhorfenda á reggíhátíðinni í Upp-
sölum í Svíþjóð þegar lögreglan
handtók stóran hóp af fólki fyrir
fíkniefnaneyslu á tónleikasvæðinu.
Allir sem voru handteknir voru
yfirheyrðir og síðar látnir lausir.
Sean Paul er einna þekktastur fyrir
lagið Temperature sem tröllreið
dansstöðunum fyrir um það bil
tveimur árum.