Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2008, Qupperneq 28
miðvikudagur 13. ágúst 200828 Fókus
Tíu ára gömul stúlka finnst myrt
við frönsku víglínuna árið 1917.
Lögreglumaður sem rannsakaði
málið fer aftur yfir söguna tuttugu
árum síðar og veltir fyrir sér hvort
hann hafi gert rétt. Tveir ungir lið-
hlaupar úr hernum eru látnir gjalda
fyrir morðið þó lögreglumaður-
inn hafi aldrei hætt að hugsa um
hvort helstu mektarmenn bæjarins
hefðu komið nálægt morðinu. Efa-
semdir hans um rannsóknaraðferð-
ir sér hærra settari manna er heldur
aldrei langt undan.
Í þokunni er sannarlega rétt-
nefni á bókina. Mér leið eins og ég
væri á rólegum göngutúr í gegnum
dimman skóg og sagan liði hjá eins
og þokulæðingur. Lýsingarnar eru
dulúðlegar og myndrænar. Ég varð
aldrei spennt við lesturinn en þó
var hann áhugaverður.
Sagan er hæg, næstum of hæg,
en fegurð setninganna bætir það
allt saman upp.
Það kom mér því skemmtilega
á óvart þegar ég komst
að því að enskur titill
þessarar frönsku bók-
ar er: By a slow river. Ég
kann ekki svo gjörla að
þýða þetta á skáldlegan
hátt en á hversdagsleg-
an máta myndi þetta út-
leggjast sem: Við hæga
á.
Franski titillinn
merkir á íslensku Gráar
sálir og er vísun í vanga-
veltur aðalpersónunn-
ar sem telur engar sálir
hvítar eða svartar, heldur séu þær
allar gráar að lokum.
Það er ekkert hressilegt við þessa
sögu og á ekki að vera það. Hún er
myrk, köld og eymdarleg. Því er lík-
lega ágætt að lesa hana yfir sumar-
mánuðina til að leggjast hreinlega
ekki í þunglyndi.
Þýðingin er afskaplega fögur og
á Guðrún Vilmundardóttir sannar-
lega hrós skilið fyrir vel unnið verk.
Þýðendur þurfa nefnilega
ekki aðeins að koma text-
anum til skila heldur er
það sálin í sögunni sem
verður að skína í gegn.
Hér hefur Guðrún unnið
þrekvirki.
Orðanotkunin er
skemmtileg og úthugs-
uð. Höfundur hefur
greinilega mikið innsæi
í innstu kima mannlegr-
ar hugsunar og jafnvel
helst þá dekkstu.
Illsku mannskepnunn-
ar eru engin takmörk sett og tekst
Philippe að gefa nýstárlega sýn á
hver er í raun vondur. Enginn ef-
ast um að sá sem getur snætt yfir
barnslíki er ekki barnanna bestur.
Það sem helst truflaði mig við
lesturinn voru leiðbeiningar höf-
undar til lesanda. Hann tiltók sér-
staklega hverju yrði sagt frá næst
í sögunni og hvað þyrfit að geyma
þar til síðar. Einhverjir kynnu að
meta þennan frásagnarmáta en ég
vil frekar átta mig á atburðarásinni
sjálf og skildi hreinilega ekki til-
ganginn með þessu. Að fráskildum
þessum lestrarleiðbeiningum var
ég afar hrifin af stílnum.
Philippe Claudel er franskur
rithöfundur og er Í þokunni hans
þekktasta bók. Hún er margverð-
launuð og fyrir þremur árum kom
út bíómynd eftir sögunni: Les Âmes
grises.
Philippe er þó fleira til lista lagt
en hann hefur einnig skrifað kvik-
myndahandrit og leikstýrt einni
mynd sem einmitt kemur út í Frakk-
landi í ár.
Erla Hlynsdóttir
á m i ð v i k u d e g i
Tónleikar á Organ
Hljómsveitirnar Agent Fresco, DLX AtX og Fist Fokkers ætla að rokka á Organ í kvöld.
Húsið er opnað klukkan 21 og er aðgangseyrir einungis fimm hundruð krónur.
Hljómsveitirnar eru allar ungar og efnilegar en agent Fresco bar sigur úr býtum í
músíktilraunum í ár.
mARgT BÝR
Í ÞO uNNi
ljóða-
uppákoma í
glætunni
Ljóðabókin Blóðeyjar eftir Sigrúnu
Björnsdóttur er nýútkomin en í bók-
inni eru þrjátíu ljóð sem skiptast í
þrjá kafla. Í þeim fyrsta eru orðið
og blóðheit ástin lykilstef, í öðrum
landið og blóðfórnir og í þeim þriðja
tíminn og blóðeyjar. Í tilefni útgáfu
bókarinnar verður ljóðauppákoma
í bókakaffihúsinu Glætunni í Aðal-
stræti 9, annað kvöld klukkan átta.
Þar verða lesin ljóð úr bókinni, tón-
listarmaðurinn Gunnar Jónsson leik-
ur og syngur frumsamda tónlist og
fleiri ljóðskáld lesa úr verkum sínum.
Smáfuglar
frumsýnd á
riFF
Smáfuglar, kvikmynd Rúnars Rún-
arsson, verður frumsýnd á Alþjóð-
legri kvikmyndahátíð í Reykja-
vík sem fram fer frá tuttugasta og
fimmta september til fimmta okt-
óber. Myndin hefur fengið mikla
athygli um heim allan og ber helst
að nefna að myndin var valin í að-
alkeppni á Cannes-verðlaunahátíð-
inni en einungis tólf myndir voru
valdar úr hópi tæplega fimmþús-
und mynda. Smáfuglar fylgir hóp
ungra táninga eina bjarta sumar-
nótt þegar þeir taka skrefið frá heimi
sakleysislegrar barnæsku til blákalds
raunveruleika fullorðinna og lífs-
reynslunnar.
afmælis-
dagskrá
norræna
hússins
Í tilefni fjörutíu ára afmælis Nor-
ræna hússins í Reykjavík verður
glæsileg dagskrá í húsinu út ág-
ústmánuð. Hverjum áratug í sögu
Norræna hússins verða gerð skil
í tali og tónum. Á föstudaginn
er til að mynda skemmtikvöld
undir yfirskriftinni Viðbrögð við
byltingu þar sem rithöfundarn-
ir Sigurður Pálsson og Þórarinn
Eldjárn rifja upp tíðarandann frá
árinu 1986, árinu þegar húsið var
vígt. Hljómsveitin Pops flytur vin-
sæl lög frá tímabilinu og forstjóri
hússins, Max Dager, er kynnir
kvöldsins. Frítt er inn á alla af-
mælisviðburði.
Ég skrapp með félögum mín-
um í hádegisverð á Vegamót-
um í vikunni. Sól skein í heiði
og staðurinn var fullur út úr
dyrum. Þrátt fyrir það fengum
við fjögur skjóta og góða þjón-
ustu með bros á vör. Samferða-
mennirnir völdu kjúkling af
girnilegum matseðli staðarins
en ég skaut á steinbítinn. Stuttu
seinna greip ég þó í þjóninn og
bað um súpu dagsins, sparnað-
arklóin hafði gripið mig glóð-
volga við eyðsluna. Ég átti eftir
að sjá eftir því.
Maturinn barst nokkuð fljótt
þó ég hafi þurft að bíða nokkra
stund á meðan geitungar gerðu
ítrekað árásir á mig við dræmar
undirtektir.
Þegar súpan kom velti ég því
fyrir mér hvers vegna svo mikið
af brauði fylgdi með súpu sem
kostar litlar 490 krónur, svo ég
minnist nú ekki á smjörið sem
hefði dugað til landslagsgerð-
ar. Við smökkun kom hið sanna
í ljós, grænmetis- og timían-
súpu hafði verið misþyrmt með
pipar. Tilfinningin var eins og
slæmu bragði hefði verið redd-
að með dassi af pipar og svo
öðru dassi til öryggis. Það er
ekki til eftirbreytni.
Ég lét þó ekki deigan síga
og gerði brauðinu og vatninu
góð skil á meðan vinirnir nutu
sinna kapítalísku rétta með
bestu list.
Þetta kenndi mér að stund-
um borgar sig bara alls ekki að
spara. Svengd mín og pirringur
voru ekki þúsund króna virði,
svo mikið er víst.
Eins og sannur neytandi
kvartaði ég við kassann og fékk
almennilegt viðmót frá starfs-
manninum, allt að því vorkunn.
Það gerði svekkelsi hádegisins
öllu minna því aðallega var ég
svekkt út í sjálfa mig – og þó,
það var ekki mér að kenna að
súpan var vond.
liljag@dv.is
LiLja Guðmundsdóttir
borðaði hádegismat á Vegamótum
Vonbrigði á Vegamótum
í skyndi
Hraði: HHHHH
VEitinGar: HHHHH
Viðmót: HHHHH
umHVErfi: HHHHH
VErð: HHHHH
BÆkUR
Í þokunni HHHHH
Höfundur: Philippe Claudel
Útgefandi: Bjartur
niðurstaða: myrk og köld. Eymdarleg en
áhugaverð.
margt til lista lagt Claudel
hefur einnig skrifað kvik-
myndahandrit og leikstýrir
bíómynd sem kemur út í ár.