Hagskýrslur um dómsmál - 01.01.1973, Side 56
Hagstofa Islands
gefur út eftírtalin rit:
1. Hagskýrslur íslands koma út öðru hverju í sjálfstæðum, tölusettum heftum. Þar
eru birtar ýtarlegar skýrslur um efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar (Verzlun-
arskýrslur, Búnaðarskýrslur, Iðnaðarskýrslur, Manntal, Mannfjöldaskýrslur,
Alþingiskosningar, Sveitarsjóðareikningar, o. íl.). í I. útgáfuflokki Hagskýrslna,
sem hófst 1914, voru 132 rit, í II. útgáfuflokki, sem hófst 1951, hafa komið
út 54 rit. — Áskrifendum Hagskýrslna er tilkynnt útkoma rita jafnóðum og þau
koma út, og þeir eru beðnir að senda greiðslu. Að lienni móttekinni eru rit
send þeim í pósti.
2. Hagskýrslur íslands, aukaflokk. í honum eru sams konar rit og í aðalflokki Hag-
skýrslna, nema hvað þau eru í öðru broti (kvartbroti) og „off-set“-fjölrituð.
3. Hagtíðindi, mánaðarrit. Þar eru hirtarmánaðarlegar skýrslur um utanríkisverzlun,
fiskafla, þróun peningamála, framfærsluvísitölu o. fl., og árlegar skýrslur um
ýmisleg efni, sem ekki þykir taka að birta í sérstöku hefti af Hagskýrslum. — Ár-
legt áskriftargjald Hagtíðinda er 200 kr.
4. Statistical Bulletin er sameiginlegt rit Ilagstofimnar og Seðlabanka íslands. Það
er á ensku — enda ætlað útlendingum — og kemur út ársfjórðungslega (frá og
með 1963, þar áður var það mánaðarrit). — í Statistical Bulletin eru birtar
ýmsar töflur úr Hagtíðindum, og úr Fjármálatíðindum, riti Seðlabanka íslands.
— Erlendir áskrifendur þessa rits fá það ókeypis, en innanlands er árlegt áskrift-
argjald þess 115 kr.
5. íbúaskrá Reykjavíkur kemur út á hverju vori. í henni eru allir íbúar Reykjavíkur
næstliðinn 1. desember samkvæmt þjóðskrá, með þeim upplýsingum, sem hún
hefur að geyma um hvern mann. íbúaskrá Reykjavíkur 1. desember 1971 var
1400 bls., og verð 3300 kr. í bandi. Upplag þessarar bókar er mjög takmarkað,
enda við það miðað, að hún seljist upp.
6. Skrár yfir fyrirtæki á íslandi 1969. Hér er birtur frumstofn hinnar nýju
heildarskrár Hagstofunnar yfir fyrirtæki á íslandi (þar eru með bændur,
útgerðarmenn, iðnmeistarar o. s. frv.). í þessu riti eru þríþættar uppsláttar-
skrár, þar á meðal skrár, þar sem atvinnufyrirtækjum, stofnunum og félags-
samtökum cr skipt í 165 starfsgreinar. — Rit þetta kostar 1600 kr. í bandi.
Viðauki við þetta rit kemur út í apríl 1973, og verða í honum fyrirtæki, sem
bætzt hafa við síðan 1969.
7. Skrár yfir dána, með fæðingardegi, dánardegi, heimih og fleiri upplýsingum
um dána, koma út árlega í fjölrituðu hefti. Fyrsta heftið, með dánum 1965
—67, kostar 130 kr., skrár yfir dána 1969 og 1970 kosta 80 kr. hvorar um
sig, en skrár yfir dána 1971 100 kr.
Afgreiðsla ofan greindra rita er i Hagstofunni, Alþýðuhúsinu, Hverfisgötu 8—10
(3. hæð), Reykjavík. Sími 26699. — Rit eru send gegn póstkröfu, ef þess er óskað,
þó ekki rit í liðum 5 og 6.