Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2008, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2008, Page 7
Að óska eftir aðildarviðræðum við ESB og leggja kosti og galla aðildar undir dóm þjóðarinnar. Að auka aflaheimildir í þorski um 30 til 40 þúsund tonn og leigja þær á frjálsum markaði. Að stöðva útflutning á óunnum gámafiski, en slíkt myndi skapa fjölmörg störf hér á landi. Að auðlindum hafsins verði komið aftur í eigu þjóðarinnar. Að afnema verðtrygginguna við fyrsta tækifæri. Að koma með skýra aðgerðaáætlun um hvernig á að hjálpa skuldsettum heimilum. Þessar vikurnar er þeim að blæða út. Að koma með skýra aðgerðaáætlun um hvernig á að örva og efla atvinnulífið. Að atvinnuleitendum verði heimilt að stunda nám á meðan þeir eru á atvinnuleysisbótum. Að koma okkar sjónarmiðum vegna deilna við Breta vel á framfæri við alþjóðasamfélagið. Að misbjóða ekki þjóðinni með því fá Breta til að sinna hér loftrýmiseftirliti á sama tíma og þeir telja okkur vera hryðjuverkamenn. Að skipt verði út stjórnendum í Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu enda virðast þeir aðilar ekki njóta trausts og trúnaðar íslensku þjóðarinnar. Að stórefla upplýsingaflæði til almennings. Íslenska þjóðin vill vita, hvað er verið að gera - hvað er búið að gera og hvað hyggist þið gera. Að fenginn verði óháður erlendur aðili til að rannsaka hrun bankakerfisins og þar verði hverjum steini velt við. Að leitað verði allra leiða til að frysta eigur þeirra útrásarvíkinga sem stóðu að útrás bankanna á meðan rannsókn fer fram á hruni bankakerfisins. Að allir þeir aðilar sem skuldsettu íslenska alþýðu uppí rjáfur á erlendri grundu verði látnir sæta ábyrgð og einnig þeir eftirlitsaðilar sem brugðust sínu hlutverki. Stjórn Verkalýðsfélags Akraness skorar á ríkisstjórn Íslands Stjórn Verkalýðsfélags Akraness www.vlfa.is l l l l l l l l l l l l l l l Verkalýðsfélag Akraness Sunnubraut 13 | 300 Akranes | Sími 430 9900 | Fax 430 9901 | skrifstofa@vlfa.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.