Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2008, Blaðsíða 52
föstudagur 14. nóvember 200852 Tækni
Facebook-sími verður til símafyrirtækið 3 hefur
hannað sérstakan facebook-síma. síminn inniheldur aðgang
að netinu og þar af leiðandi facebook og hefur alla eiginleika
eins og venjulegur sími. vill fyrirtækið stíla inn á að hann verði
ódýrari en iPhone, blackberry og g1-símar svo fólk kjósi hann
fremur en annað sem jólagjöfina í ár. síminn var kynntur í bret-
landi, Hong Kong og Ástralíu á dögunum og fáanlegur frá og
með næsta mánuði, í tæka tíð fyrir jólin.
Þrátt fyrir að aðrir miðlar hafi á und-
anförnum árum gengið til liðs við
stafrænu byltinguna byggist bókaút-
gáfa um heim allan enn á pappír og
prentlit. Það kann þó að breytast nú og
bókin, sem hefur verið í nær óbreyttu
formi frá dögum Gutenbergs, taka á
sig nýja mynd.
Síðustu ár hafa nokkrar bókaútgáf-
ur brugðið á það ráð að gefa út nýjar
bækur í stafrænu formi við hlið hinn-
ar hefðbundnu pappírsútgáfu en á
næstu misserum má búast við hálf-
gerðri byltingu í þessum geira. Undir
lok síðasta mánaðar náðu bandarískir
rithöfundar og útgefendur samkomu-
lagi við vefrisann Google, en nokkur
ár eru síðan fyrirtækið kom upp gríð-
armiklum banka stafrænna bóka, lif-
andi og látinna höfunda. Hægt hefur
verið að lesa heilu bækurnar í þeim
tilfellum þar sem höfundarréttur er
genginn úr gildi og útdrátt eða valinn
kafla þeirra bóka sem enn eru háð-
ar höfundarrétti. Samkomulag síð-
asta mánaðar felur hins vegar í sér
að Google megi selja þær bækur sem
enn eru háðar höfundarrétti en orðn-
ar ófáanlegar hjá útgefanda. Sam-
komulagið gildir aðeins innan Banda-
ríkjanna en ljóst er að þetta er stærsti
bóksölusamningur sem nokkru sinni
hefur verið gerður og um leið hefur
stærsta bókabúð heimsins litið dags-
ins ljós.
Töluverðar framfarir hafa orð-
ið á þeim vélbúnaði sem í boði er til
lesturs stafrænna bóka. Má þar sem
dæmi nefna Amazon Kindle en auk
þess að vera léttari en hefðbundin
bók skartar Kindle þráðlausum bún-
aði og er hægt að lesa netútgáfur dag-
blaða gegnum búnaðinn, leita á Wi-
kipedia eða skoða myndir og skjöl
sem notandinn hefur sjálfur fært yfir
á búnaðinn. palli@dv.is
Viðamesti og stærsti bóksölusamningur heims var gerður milli Google og útgefenda:
stærsta bókabúð veraldar
GáFuðu
GlerauGun
Það kannast eflaust allir við það að
týna bíllyklunum eða gleraugunum
og geta ómögulega munað hvar þú
lagðir það frá þér síðast. nú hefur
hópur japanskra vísindamanna
fundið lausn á þessum vanda með
því sem þeir kalla smart goggle eða
gáfuðu gleraugun. Þú einfaldlega
segir gleraugunum hverju þú ert að
leita að og þau leika fyrir þig
vídeóupptöku af því þegar þú varst
síðast með tiltekinn hlut. Innbyggð í
gleraugun er pínulítil myndbands-
upptökuvél og háþróaður
tölvubúnaður sem leggur á minnið
nafnið á hlutnum.
HiminHátt
tap á XboX
allt frá því sala Xbox-leikjatölvunnar
hófst fyrir þremur árum hafa
stórfelldir vélbúnaðargallar í
tölvunni valdið microsoft miklum
búsifjum þrátt fyrir að fyrirtækið hafi
aldrei viðurkennt opinberlega að um
nokkurn galla sé að ræða. sam-
keppnin við sony Playstation virðist
hafa valdið því að hönnun og þróun
vélbúnaðarins hafi verið hraðað allt
of mikið og lítið sem ekkert
gæðaeftirlit verið viðhaft. Kostnaður
við framleiðslu varð hærri en
söluverð og tap vegna gallaðra
eintaka gífurlegt. talið er að
microsoft hafi í heildina tapað sem
nemur um 236 milljörðum íslenskra
króna á ævintýrinu.
Gmail með
myndspjall
google kynnti í vikunni nýjan
möguleika fyrir notendur gmail-
póstþjónustunnar en það er
innbyggt myndspjall með hjálp
viðbótar sem innsett er fyrir vafrana
firefox 2.0+, safari 3.0, Ie7 og
google Chrome. Hægt verður að
nýta þennan möguleika innan gmail-
viðmótsins, í sérstökum gluggum
eða stækka þannig að myndin fylli
skjáinn. Í fréttatilkynningu frá
google segir að myndspjallið styðji
eins og er stýrikerfin OsX, Windows
XP og Windows vista .
umsjón: PÁll svanssOn, palli@dv.is
Annar viðbótarpakkinn við netleikinn
World of Warcraft er kominn í búð-
ir. Viðbótin ber nafnið World of War-
craft: Wrath of the Lich King og hafa
aðdáendur leiksins beðið hennar í of-
væni. Á undan kom viðbótarpakkinn
The Burning Crusade en hann seldist
í 2,4 milljónum eintaka á fyrsta degi í
Evrópu og Norður-Ameríku.
Í Wrath of the Lich King er að finna
fjöldann allan af viðbótum og gefst
spilendum meðal annars tækifæri til
þess að berjast við nákónginn sjálfan.
Þá bætist við nýr karakter eða „class“
sem heitir Death Knight. Dauði ridd-
arinn er partur af svokölluðu „Hero
class“ sem er nýjung í WOW. Þá bæt-
ist einnig við landsvæðið Northrend.
Þetta er aðeins brot af þeim viðbótum
sem er að finna í pakkanum en ýmis
vopn og hluti er einnig að finna þar.
Það má vissulega búast við því að
Wrath of the Lich King muni seljast í
milljónum eintaka en fyrir stuttu náði
Blizzard nýjum hæðum í áskrifenda-
fjölda að leiknum. Áskrifendur WOW
eru núna orðnir 11 milljónir talsins
um allan heim. Það gerir WOW lang-
stærsta MMORPG-leik sem til er. Þar
með eru um 62% sem spila slíka leiki
á snærum WOW.
Myndbrot úr leiknum hafa vakið
mikla athygli á netinu en þar er ná-
kóngurinn eða The Lich King kynnt-
ur til leiks. Þar eru hans myrkraplön
gerð ljós. Margir hafa haft á orði að
nákóngurinn sé fulllíkur Sauron úr
myndunum The Lord of the Rings
en það dregur ekki úr spennu WOW-
spilara. asgeir@dv.is
Wrath of the Lich King er
kominn í verslanir hér heima.
WOW 11 milljónir
manna eru nú
áskrifendur.
Önnur viðbótin við World of Warcraft er komin í búðir:
storkaðu
nákónGinum
Amazon Kindle með
þráðlausum búnaði er hægt
að lesa netútgáfur dagblaða
gegnum búnaðinn og ná í
nýjar bækur.