Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2008, Blaðsíða 48
föstudagur 14. nóvember 200848 Helgarblað DV
Banað vegna Bónorðs ricardo navarro setti sinn rómantíska þátt á svið
frammi fyrir milljónum sjónvarpsáhorfenda. fyrrverandi kærasta hans, sem hann
sagðist elska, hafði verið ginnt til að koma fram með honum í sjónvarpsþætt-
inum Patricia‘s Journal á stöð 3 í spænska sjónvarpinu. Kærastan fyrrverandi,
svetlana Orlova, skalf af ótta. Hún var sú eina í myndveri sjónvarpsstöðvar-
innar sem vissi um ofbeldishneigð ricardos. navarro kraup við fætur svet-
lönu og bað hennar í beinni útsendingu. skelfingu lostin gat svetlana aðeins
stunið upp einu orði. Lesið um örlög svetlönu Orlova í næsta helgarblaði dv.
Neyttu blóðs
fórNarlambsiNs
Stacey Mitchell var byrlað svefnlyf af morðingjum sínum og síðan barin ítrekað með steypuklumpi. Ástæð-
an var afbrýðisemi samleigjanda hennar, Jessicu, sem hélt að Stacey væri hrifin af Valerie, kærustu Jess-
icu. Kærusturnar nutu ásta á meðan líf Stacey fjaraði út og drukku síðan blóð hennar.
Valerie og Jessica kysstust af ástríðu.
Á gólfinu lá sextán ára bresk stúlka,
Stacey Mitchell, sem nýlega hafði
gerst samleigjandi þeirra í Perth í
Ástralíu. Stacey lá fyrir dauðanum.
Í tæpan klukkutíma mátti heyra í
Stacey hryglurnar, en Valerie og
Jessica voru á valdi lostans.
Kannski hafði ofbeldið vak-
ið lostann, kannski sú staðreynd
að Valerie hafði framið hryllileg-
an verknað til að sanna ást sína til
Jessicu, eða sitt lítið af hvoru. Hvort
heldur sem var elskuðuðust stúlk-
urnar tvær á meðan líf Stacey fjar-
aði út.
Óþekkjanlegt andlit
Herbergið var atað blóðslettum og
andlit Stacey var óþekkjanlegt. Eftir
barsmíðar Valerie var ásjóna Stac-
ey orðin að óþekkjanlegum graut.
Jessica hafði sett belti um háls
hennar og hert að svo vinkonurn-
ar yrðu aldrei framar „ónáðaðar“ af
henni. Aldrei framar þyrftu þær að
hlusta á stelpumasið í Stacey eða
horfa á hana spranga um íbúðina
í bikinítopp.
Að endingu drógu Valerie og
Jessica sig frá hvor annarri og tóku
ljósmyndir af óhugnaðinum. Valerie
Parashumti var hrifin af blóði, hún
hafði reyndar drukkið eigið blóð frá
tíu ára aldri. Henni líkaði tilhugsun-
in um að hún væri blóðsuga. Þrátt
fyrir að Jessica væri tveimur árum
eldri var Valerie sterkari aðilinn og
Jessica fylgdi henni.
Mulið gler í viskíi
Valerie hafði verið ónáðuð af syni
eiganda hússins, David, þegar hún
hafði verið að mylja gler í mortéli.
Glersallann átti að setja í drykk
Stacey síðar. David spurði hana
hvað hún hygðist gera og Valer-
ie sagði honum það. „Enginn ætti
að eyðileggja hamingju þína og þú
ættir að drepa hvern þann sem það
reynir,“ sagði hún.
Jessica var sannfærð um að
Stacey væri að daðra við Valerie og
Valerie vildi sýna svo ekki yrði um
villst að hún kærði sig ekki um það.
Hún vildi ekki Stacey, hún vildi
Jessicu.
Stacey hafði aðeins búið með
vinkonunum í þrjá daga. Hún hafði
sagt þeim að hún hefði hlaupist að
heiman og að hún hefði flutt með
foreldrum sínum til Ástralíu árið
2000, tíu ára að aldri.
Valerie og Jessicu gat ekki staðið
meira á sama. Þær kærðu sig ekki
um að kynnast Stacey. Þær vildu
einfaldlega losna við hana.
Glersallinn víkur
fyrir svefnlyfi
David reyndi að telja lesbíunum
tveimur hughvarf en án árangurs.
„Farðu inn til þín og hækkaðu tón-
listina,“ sagði Valerie við hann. Í
sömu andrá og hún ætlaði að setja
glersallann í viskí Stacey skipti hún
um skoðun og ákvað að setja svefn-
töflur í staðinn, en enginn skyldi
koma í veg fyrir áform hennar.
David hafði gert eins og Valerie
hafði sagt honum, en heyrði hlát-
urinn í stúlkunum þar sem þær
sötruðu viskí í eldhúsinu. Skömmu
síðar heyrði hann endurtekna
dynki; Valerie var að slá Stacey í
höfuðið með steypuklumpi. Dav-
id hækkaði enn frekar í tónlistinni í
tilraun til að yfirgnæfa hróp Stacey
á hjálp. Síðan kom þögn.
David gægðist fram á ganginn og
hrópaði að hann vildi komast út úr
húsinu. Jessica henti til hans svört-
um bol og honum var gert að binda
fyrir augu sín. Hún sagðist myndu
hringja í hann þegar allt væri um
garð gengið og þær hefðu losnað
við lík Stacey. David ráfaði um göt-
ur í nokkra stund, en hringdi síðan
til að athuga hvort hann gæti farið
heim. „Þetta er enn dálítið subbu-
legt, en komdu bara,“ sagði Jessica.
Hent í ruslagám
Þegar David kom heim sýndu Jess-
ica og Valerie honum myndband
sem þær höfðu tekið af sér þar sem
þær kysstust yfir blóðugu og hálf-
nöktu líki Stacey. Þær sögðu hon-
um að þær hefðu hent líki hennar
í ruslagám í garðinum. Næstu fjóra
daga ræddu þær hvernig best væri
að losna við líkið.
24. desember 2006 kom lög-
reglan að húsinu. Foreldrar Stacey
höfðu saknað hennar og haft sam-
band við lögregluna 17. desem-
ber. Þrátt fyrir að þremenningarnir
neituðu að vita nokkuð um strok-
ustúlkuna fann lögreglan fljótlega
lík hennar í ruslagámnum.
David Haynes fékk eigin réttar-
höld og hlaut tveggja ára dóm fyr-
ir samsekt í ágúst 2007. Jessica Sta-
sinowsky og Valerie Parashumti
játuðu sekt í nóvember 2007. Rétt-
arsálfræðingur sagði að Valerie
þjáðist af persónuleikaröskun á
háu stigi og væri heltekin af blóð-
sugum og pyntingar og ofbeldi
veittu henni kynferðislega örvun.
Hvorug stúlknanna sýndi iðrun
við réttarhöldin og flissuðu þeg-
ar dómarinn bar nafn Parashumti
vitlaust fram. Jessica Stasinowsky
sagði nokkrum vikum eftir hand-
tökuna að henni fyndist verst að
dauðastríð Stacey hefði ekki varað
lengur.
Eina skiptið sem Jessica og Valer-
ie sýndu tilfinningar var þegar þeim
var tilkynnt að þær fengju ekki að
hittast í fangelsinu. Þær hlutu báðar
tuttugu og fjögurra ára dóm.
Skömmu síðar heyrði
hann endurtekna
dynki; Valerie var að
slá Stacey í höfuðið
með steypuklumpi.
Fórnarlamb afbrýðisemi
morðið á henni átti að
staðfesta ást valerie til Jessicu.
Jessica Stasinowsky (t.v.)
og Valerie Parashumpti
sýndu enga iðrun vegna hins
óhugnanlega verknaðar síns.
Stacey Mitchell Hafði aðeins búið
með lesbíunum í þrjá daga þegar örlög
hennar réðust.
umsJón: KOLbeinn þOrsteinssOn, kolbeinn@dv.is