Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2008, Blaðsíða 25
föstudagur 14. nóvember 2008 25Umræða
Hver er maðurinn? „Árni Þór
Árnason, verslunarstjóri elko í
Lindunum.“
Hvað drífur þig áfram? „fjölskyld-
an og vinnan.“
Hver er uppáhaldsmaturinn
þinn? „Það er gamla lærið hennar
mömmu.“
Hvað fær þig til að hlæja? „Það er
svo margt, til dæmis skemmtilegir
starfsfélagar og vinir.“
Spilar þú sjálfur tölvuleiki? „Ég er
nokkuð góður með stráknum mínum
í Legó-batman-leiknum.“
Hvert var uppáhaldsleikfangið
þitt í æsku? „tindátarnir. Það voru
engir tölvuleikir til þegar ég var
barn.“
Af hverju ákváðuð þið að gefa
Róberti Leó nýja tölvu? „Það lá í
augum uppi að bæta honum þetta
tjón. strákurinn var búinn að hafa
mikið fyrir því að safna upp í tölvuna
og lenti svo í þessum leiðindum. Ég
veit að við í elko hefðum leyst þetta
fljótar og okkur fannst þetta bara
ávinningur að bæta honum þetta
upp, ekkert annað.“
Hver voru viðbrögð hans þegar
þú afhentir honum tölvuna?
„Hann geislaði af gleði og var mjög
ánægður. maður sá það nú alveg að
það var allt annað að sjá hann þegar
hann fékk tölvuna en á myndinni í
dv daginn áður þar sem hann var
svo sorgmæddur.“
Ertu með einhver heilræði
handa börnum sem spila
tölvuleiki svo tölvan taki ekki
yfir í lífinu? „Ég á átta ára son sem
ég er í stöðugri baráttu við. en það
þarf líka að leika með hin leikföngin
sem eru alltaf til, þau eru ekki bara
til sýnis. Ég spyr son minn nú oft
hvort ég eigi að henda öllum hinum
leikföngunum en hann vill það alls
ekki. svo verður maður fyrst og
fremst alltaf að læra heima áður en
maður fer í tölvuna.“
Starfsmenn Elko voru fljótir að
bregðast við og gefa Róberti
Leó, sem er níu ára, nýja PSP-
tölvu eftir að gamla tölvan hans
bilaði. Eftir fimm mánaða bið
eftir nýrri tölvu í BT fór verslunin
á hausinn og Róbert stóð eftir
sorgmæddur og tölvulaus. ÁRni
ÞóR verslunarstjóri Elko afhenti
honum nýja tölvu í fyrradag.
Lærdómur fram
yfir töLvuLeiki
maður dagsins
Í rauninni er það fátt sem bifast í
rétta átt þessa dagana en því ræð-
ur mestu hin dimma þögn valds-
manna; þetta myrkur sem þeir hafa
rennt utan um okkur án þess að
blikna, trúandi því að það og ráð-
leysisflóttinn sem fylgir því sé heið-
arleikanum fremri. Og í þögninni
erum við reið og reiðin er afl og ef
við virkjum hugmyndir okkar rétt
verðum við eldfjall og þegar eldfjall
gýs þýðir ekkert að biðja það um að
hætta.
Eitt af því sem maður verður að
muna í aðstæðum einsog þessum er
að vita hver maður er, hvað maður
vill og hvað maður hugsar um lífið
og heiminn. Og þá er gott að vera
viss í sinni sök, setja aldrei upp and-
lit annarra, hrifsa aldrei til sín það
sem annarra er og gæta þess að
missa ekki vitið.
Í síðasta kjallara vitnaði ég í orð
af vefsíðunni www.kjósa.is.
Ég tengdi þau við hræðslu vinar
míns sem sagði mér að hann þyrði
ekki að setja nafnið sitt á síðuna af
ótta við að missa vinnuna. Sú sem
orðin skrifaði og var aldeilis óhrædd
við að segja skoðun sína umbúða-
lausa var Dagný Jóhannsdóttir og ég
efaði ekki orð hennar – því skilyrði
þess að skrifa undir viljayfirlýsing-
una er að menn skrái þar nafn sitt,
kennitölu og heimilisfang og svo
er mönnum í sjálfsvald sett hvort
birtist eða ekki. Og mér fannst sem
sé Dagný Jóhannsdóttir hafa skrif-
að svo góðan texta á síðuna að það
væri þjóðráð að deila honum með
kjallaralesendum.
En viti menn, reynist þá ekki
Dagný vera fingralöng grímukona
sem tekur upp skoðanir annarrar
manneskju og gerir að sínum. Hún
ræður sem sé ekki við hrifningu sína
og kópí/peistar persónulegar skoð-
anir Jónu Ingibjargar Jónsdóttur
og breytir sér í einu hendingskasti
í Jónu Ingibjörgu um leið og hún
hafnar sinni eigin frjálsu hugsun.
Uss, uss, þetta má ekki gera, Dag-
ný, og varðar reyndar við lög!
Hér á eftir fylgja þessi orð Jónu
Ingibjargar og eiga aldeilis vel við og
kannski er Dagnýju nokkur vorkunn
að hafa viljað eiga þau jafnsnjöll og
þau eru:
„Ég treysti alls ekki núverandi
stjórnvöldum til að halda um stjórn-
völinn á komandi árum. Þau biðja
mig um samstöðu á erfiðum tímum
og ég vil ekki veita þeim hana nema
þau fari frá og aðrir taki við. Núver-
andi stjórnvöld eru ekki traustsins
verð því verkin sýna merkin: Íraks-
stríðið – ekki í mínu nafni. Pólitísk
skipun seðlabankastjóra – ógeð-
felldur og ófaglegur ráðningarmáti.
Einkavinavæðing bankanna með
tilheyrandi fjárglæfrabrambolti og
ofurlaunum – siðferðishnignun.
Ævisparnaður venjulegs launafólks
fokinn út um gluggann – það svíður
að verða vitni að því. Eðlileg launa-
leiðrétting ljósmæðra átti að setja
landið á hausinn – trúverðugt?
Gersamlega ónýt peningastefna,
okurvextir, verðtrygging og him-
inháar afborganir húsnæðislána
– hversu flókið þarf það að vera
að hafa þak yfir höfuðið með
eðlilegum hætti? Listinn gæti
haldið áfram, ég vil kjósa og
það strax!
Ég vil stjórn sem kem-
ur með sterka rödd, hefur
sýn og segir skýrt hvað
hún ætlar að gera til að
fólk vilji vera áfram í
þessu landi og taka þátt í uppbygg-
ingunni – að
loknu
hruni.“
Að vilja vera Jóna Ingibjörg
kjallari
vigdíS
gRímSdóTTiR
rithöfundur skrifar
„Þá er gott að vera viss í
sinni sök, setja aldrei upp
andlit annarra, hrifsa
aldrei til sín það sem ann-
arra er og gæta þess að
missa ekki vitið.“
Styður þú aðildarviðræður við EvrópuSambandið?
„Já, ég held að það sé eina vitið. Ég
myndi frekar vilja íslenska krónu en
held að það gangi ekki upp lengur.“
RAgnHEiðuR BjöRnSdóTTiR,
44 Ára Heimavinnandi Húsmóðir
„Ég er alveg hlynnt því. sérstaklega í
ljósi efnahagsástandsins núna.
viðræðurnar taka auðvitað sinn tíma.“
jónínA STEinSdóTTiR,
60 Ára bankamaður
„mér finnst í lagi að skoða þetta en ég
er líka hlynnt því að Ísland sé sjálfstætt.
kannski væri bara best að taka upp
annan gjaldmiðil.“
óLöf EiRíkSdóTTiR,
15 Ára nemi
„Já, mér finnst að við eigum að ræða
við þau. Ég sé ekkert annað í stöðunni
eins og efnahagsástandið er.“
mATTHiLduR ERnudóTTiR,
48 Ára versLunarkona
dómstóll götunnar
„Já, mér finnst að við eigum að vera
opin fyrir öllu. krónan virðist verðlaus.
Þetta þarf allt að skoða.“
BoRgHiLduR guðmundSdóTTiR,
35 Ára LeikskóLakennari
myndin
Skiptir litum blái liturinn hefur alla jafna verið viðloðandi valhöll, höfuðstöðvar sjálfstæðismanna í reykjavík, en óprúttnir aðilar tóku sig til í fyrrinótt og slettu rauðri
málningu á húsið. enginn hefur lýst ábyrgð á hendur sér. mynd SigTRygguR ARi