Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2008, Side 15
föstudagur 14. nóvember 2008 15Helgarblað
„Kannski er maður pínulítið að
sýna umheiminum fram á það að
við Íslendingar getum gert eitt-
hvað.“ Þetta sagði Hannes Smára-
son í viðtali við Örnu Schram í
hinu skammlífa tímariti Krónik-
unni í febrúar 2007, spurður hvað
drifi hann og hans líka áfram í fjár-
festingum sínum. Nú, ríflega einu
og hálfu ári seinna, er svo sannar-
lega hægt að segja að Íslendingar
hafi sýnt mátt sinn, en þó aðallega
til efnahagslegrar eyðileggingar.
Hannes er fyrsti útrásarvík-
ingurinn sem sigldi í strand eftir
góðæri og útrás íslenskra athafna-
manna á síðustu árum. Það gerði
hann seint á síðasta ári þegar FL
Group hafði hrunið í verði og steig
Hannes í framhaldinu upp úr for-
stjórastól FL Group. Tap FL árið
2007 var 67 milljarðar króna og á
fyrstu þremur mánuðum 2008 tap-
aði félagið 48 milljörðum króna.
Það jafngildir 730 milljónum króna
á dag, hvern einasta dag sem skrif-
stofan var opin þessa þrjá mánuði.
FL Group var afskráð úr Kauphöll
Íslands í maí síðastliðnum.
Tugmilljóna samningur
Hermt er að Hannes hafi fengið
sextíu til níutíu milljónir króna í
starfslokasamning, þrátt fyrir að
hafa keyrt félagið nánast í þrot.
Miðað við aðra starfslokasamn-
inga íslenskra auðmanna undan-
farin ár er samningur Hannesar þó
ekki ýkja dýr, ef hægt er að komast
svo að orði. Bjarni Ármannsson
trónir á toppnum og fékk um sex
milljarða króna í kaupréttar- og
starfslokasamninga að skilnaði
frá Glitni og Þórður Már Jóhann-
esson fékk 1,4 milljarða króna
þegar leiðir skildu hjá honum og
Straumi-Burðarás. Þess má geta
að Ragnhildur Geirsdóttir, sem var
forstjóri FL Group í fimm mánuði
árið 2005, fékk 130 milljóna króna
starfslokasamning og Sigurður
Helgason, fyrrverandi forstjóri
Icelandair, fékk greiddar 170 millj-
ónir króna eftir tuttugu ára setu á
stóli forstjóra Icelandair sem áður
var Flugleiðir.
Síðan Hannes yfirgaf flak hins
brotlenta FL Group hefur lítið til
hans spurst. Hann flutti til London
í upphafi þessa árs þar sem hann
býr nú ásamt sambýliskonu sinni
og tveimur börnum, nánar tiltekið
í Knightsbridge-hverfinu þar sem
margir frægir og efnaðir einstakl-
ingar hafa búið sér heimili. Orð-
ið á götunni hefur ýmist sagt að
Hannes reki þar matsölufyrirtæki,
fatahreinsun eða sýsli við annan
rekstur. Aðrar verri tungur hafa
sagt Hannes vera illa á sig kominn
andlega og sé að reyna að púsla sér
saman eftir fallið af toppi íslensks
fjármálalífs. Og það aðeins einu og
hálfu ári eftir að einn ævintýraleg-
asti uppgangur íslensks athafna-
manns náði hámarki og hann var
kallaður „Spútnik Íslands“ í for-
síðuviðtali tímarits.
Boltafimur námshestur
Hannes er fæddur 25. nóvem-
ber 1967 og verður því fjörutíu
og eins árs í lok mánaðarins. For-
eldrar hans eru Smári S. Sigurðs-
son rekstrartæknifræðingur og
Nanna Sigurðardóttir sálfræð-
ingur. Hannes ólst upp í Sporða-
grunninu í Reykjavík en bjó einn-
ig í nokkur ár í Danmörku þar sem
foreldrar hans voru við nám. Að
loknu grunnskólanámi við Laug-
arnesskóla fór hann í Menntaskól-
ann í Reykjavík þar sem Hannes
stóð sig vægast sagt með sóma; út-
skrifaðist með ágætiseinkunn, eða
yfir 9, á stúdentsprófi árið 1987. Í
framhaldinu fékk hann inngöngu
í MIT-háskólann í Massachusetts
í Bandaríkjunum sem ávallt er í
efstu sætum lista yfir bestu há-
skóla heims. Hannes lærði fyrst
verkfræði og viðskiptafræði og
lauk svo MBA-prófi árið 1992.
Hannes er ekki eingöngu góð-
ur á bókina heldur fékk hann líka
knattspyrnuhæfileika í vöggu-
gjöf frá almættinu. Hann lék með
Fram í yngri flokkunum og alveg
upp í meistaraflokk og átti þann
draum framan af að gera fótbolta-
iðkun að lifibrauði sínu. Þegar
horft er til þess að Hannes spilaði
nokkra leiki með unglingalands-
liði Íslands og fékk fótboltastyrk
fyrir námi sínu við MIT er ljóst að
hann var enginn meðalleikmað-
ur. Hannes spilaði svo við góðan
orðstír með knattspyrnuliði MIT á
námsárunum. Hannes hefur einn-
ig lagt stund á langhlaup og tekið
þátt í fjölmörgum hlaupum, bæði
á Íslandi og erlendis.
Eftir útskriftina frá MIT starf-
aði Hannes hjá ráðgjafafyrirtæk-
inu McKinsey og Co. þar vestra. Í
Bandaríkjunum kynntist Hannes
Kára Stefánssyni sem varð til þess
að Hannes hóf störf hjá Íslenskri
erfðagreiningu skömmu eftir
stofnun fyrirtækisins árið 1997.
Hann var fyrst fjármálastjóri ÍE,
svo framkvæmdastjóri viðskipta-
þróunarsviðs og loks aðstoðarfor-
stjóri. Árin hjá ÍE urðu sjö.
Viðskipti og skilnaður
Í viðtalinu í Krónikunni í febrú-
ar á síðasta ári sagðist Hannes
hafa fengið ákveðinn kauprétt í
Íslenskri erfðagreiningu sem hafi
orðið sérstaklega verðmætur í
kringum 2000. Um það leyti seldi
hann hluti sína í félaginu. Stuttu
síðar byrjaði að draga úr verð-
mæti bréfanna. Að sögn Hannes-
ar högnuðust hann og Kári ágæt-
jón Bjarki magnússon og
krisTján hrafn guðmundsson
blaðamenn skrifa: jonbjarki@dv.is og kristjanh@dv.is
HANNESAR
bRotlENdiNg
hannes smárason Hannes
hefur verið kallaður tákngerv-
ingur efnhagshrunsins á Íslandi.
mYnd sTefán karlsson
hannes smárason sigldi fyrstur
í strand í góðæri og útrás ís-
lenskra athafnamanna. Hann
setti nýtt Íslandsmet í tap-
rekstri þegar FL Group skil-
aði tapi upp á 67 milljarða.
Hannes liggur nú undir ásök-
unum um ólöglega milli-
færslu úr sjóðum FL. Hann
gat sér fyrst orð í íslenskum
viðskiptaheimi sem lykil-
starfsmaður hjá Íslenskri
erfðagreiningu og seldi hlut
sinn þar áður en verðmæti
bréfanna hrapaði. Sumir segja
að hann sé eldklár viðskipta-
maður, aðrir segja hann eyði-
leggja fyrirtæki og vera hættu-
legan íslensku viðskiptalífi.
glatt á hjalla Hannes (lengst til
hægri) og unnur sigurðardóttir,
sambýliskona hans (lengst til vinstri),
á góðri stundu ásamt vinafólki.