Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2008, Qupperneq 17
föstudagur 14. nóvember 2008 17Helgarblað
lega á fjárfestingum sínum á árunum
1996 til 1998, þar á meðal fjárfestingu
sinni í Fjárfestingabanka atvinnulífs-
ins sem síðar rann saman við Íslands-
banka.
„Auk þess hafa þetta verið hinir
og þessir hlutir sem safnast hafa upp.
Það er kannski of langt mál að fara í
gegnum þá alla. En það má segja að
þetta hafi gerst í gegnum fjárfesting-
ar frekar en rekstur,“ sagði Hannes í
Krónikunni, aðpurður hvernig hann
hafi orðið ríkur. „Allir hafa sínar leið-
ir.“
Hannes og fyrrverandi tengda-
faðir hans, Jón Helgi Guðmundsson,
oftast kenndur við BYKO, fjárfestu í
Flugleiðum snemma árs 2004. Þeir
keyptu þá 38,4% hlut í gegnum eign-
arhaldsfélagið Oddaflug ehf. að því
er fram kom í nærmynd um Hannes
í Mannlífi árið 2006. Hannes tók síð-
an við starfi stjórnarformanns Flug-
leiða í júní það ár. Í mars 2005 var
nafni Flugleiða breytt í Icelandair. FL
Group var stofnað sem fjárfestinga-
fyrirtæki sem Icelandair heyrði undir
auk annarra fyrirtækja.
Samband Jóns Helga og Hannes-
ar átti eftir að raskast eftirminnilega
þegar Hannes skildi við dóttur hins
fyrrnefnda og tók saman við einkarit-
ara Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, for-
stjóra Baugs. Það átti einnig eftir að
valda klofningi í íslensku viðskiptalífi.
Enn síðar átti Hannes eftir að brot-
lenda FL Group og flytja af landi brott
til Bretlands, þar sem hann býr nú.
Bútaði niður og seldi
Viðskiptahættir Hannesar hafa verið
afar umdeildir. Hann tók Flugleiðir
og bútaði félagið niður í einingar, sem
hann svo seldi út úr félaginu. Menn
sem stunda slík viðskipti erlendis
hafa stundum verið kallaðir „corp-
orate raiders“ en það þýðir í rauninni
að þeir gera skyndiáhlaup á fyrirtæki,
skipta þeim niður í búta og reyna að
fá sem mest fyrir hverja einingu. Vil-
hjálmur Bjarnason segir FL Group að
sumu leyti hafa snúist um nákvæm-
lega þetta. Slík viðskipti fara yfirleitt
þannig fram að fyrirtæki sem eru í
einhverjum einingum eru auðað-
greind og þannig er hægt að selja þau
í hlutum. Þetta sé gert, líti menn svo
á að fyrirtækin séu meira virði í bút-
um heldur en í rekstri. Svo eru þess-
ir hlutar seldir út án þess að afgang-
ur félagsins verði óstarfhæfur. Þannig
voru Kynnisferðirnar seldar út, enda
hægt að reka flugrekstur án ferða-
skrifstofu. Hannes seldi svo bílaleig-
una út og loks tók hann flugrekstur-
inn út úr félaginu, allt sem sjálfstæðar
einingar. Þannig hurfu eignirnar ein
af annarri þar til að á endanum var FL
Group orðið eignalaust og ekkert var
eftir nema peningar sem síðan var
eytt í vitleysu að mati Vilhjálms.
„Það má segja það að hann hafi
hagnast á því að eyðileggja fyrirtæki,“
segir Vilhjálmur og tekur fram að
Hannes sé snöggur til lítt ígrundaðra
aðgerða. „En svo er annað í þessu
sem á að sýna mikinn frumkvöðla-
kraft en frumkvöðlakrafturinn hefur
engu skilað nema tapi. Það getur vel
verið að hann hafi sjálfur hagnast á
einhverju en hann hefur skilið hlut-
hafa eftir fátækari,“ segir Vilhjálmur
um viðskiptahætti hans. Vilhjálmur
telur taprekstur FL Group ekki hafa
haft mikil áhrif á íslenskt viðskipta-
líf. Léleg útkoma félagsins hafi ekki
komið neinum illa nema bönkunum
vegna þess að fyrirtækið sjálft hafi
verið orðið allslaust á þeim tíma. Lé-
leg staða FL Group, sem var stór hlut-
hafi í Glitni, hafi þó haft þau áhrif að
erfitt var að endurfjármagna bank-
ann. „Glitnir hafði engan eiganda-
stuðning lengur,“ segir Vilhjálmur.
Hvílir sig á íslensku þjóðinni
Hannes sat fyrir svörum hjá Birni
Inga Hrafnssyni í þættinum Markað-
urinn á Stöð 2 um þarsíðustu helgi.
Hann virkaði nokkuð yfirvegaður,
sérstaklega í ljósi þeirrar kollsteypu
sem fyrirtæki undir hans stjórn varð
fyrir.
Spurður um brottflutninginn til
Bretlands sagði Hannes að tími hefði
verið kominn á smá pásu; tími á að
„hvíla þjóðina á Hannesi Smárasyni
og Hannes Smárason á þjóðinni“.
Hann sagði einnig í viðtalinu óhjá-
kvæmilegt að skoða þá hluti sem bet-
ur hefðu mátt fara. Fáránlegt væri þá
að skorast undan því að líta í eigin
barm. En, „... að reyna að kenna ein-
hverjum tilteknum einstaklingum
um stöðuna eins og hún er sé misráð-
ið, og ekki til þess fallið að hjálpa okk-
ur upp úr því hjólfari sem við erum
dottin ofan í akkúrat núna“.
Hannes á þó þann vafasama heið-
ur að hafa sett Íslandsmet í taprekstri
með FL Group, eftir fléttu viðskipta
sem fáir skildu þegar hún átti sér
stað.
Danska lággjaldaflugfélagið Sterl-
ing var um tíma í eigu FL Group eft-
ir að félagið keypti það af Pálma Har-
aldssyni, gjarnan kenndur við Fons,
fyrir ellefu milljarða króna í októb-
er 2005. Pálmi hafði keypt Sterling
á fjóra milljarða í mars það ár, en þá
sögðu þeir sem taldir eru til þekkja til
í dönsku fjármálalífi að Sterling væri
verðlaust vegna mikils skuldahala
fyrirtækisins. Í desember 2006 selur
FL Group Sterling til Northern Travel
Holding á tuttugu milljarða króna.
NTH var þá nýstofnað félag í eigu
Fons, FL Group og Sunds. Tap var
á Sterling allan þennan tíma sem
það gekk kaupum og sölum.
Björn Ingi spurði Hannes
hvernig stæði á því að félag, sem
alltaf væri tap
á, verði sífellt verðmætara. Í svari
Hannesar voru engar haldbærar
skýringar að fá, að minnsta kosti ekki
í þeirri klipptu útgáfu viðtalsins sem
send var út.
Hannes sagði orðrétt: „Þetta ágæta
fyrirtæki, sem nú því miður er horfið,
að ..., lenti náttúrlega í því að fara,
eins og þú svo sem bendir á, að fara
í gegnum þessa hringiðu. Það hefur í
sjálfu sér enginn tapað meira á þeirri
hringiðu heldur en síðasti eigandinn,
Pálmi Haraldsson, og það má kannski
til sanns vegar færa að það er ekki fyrr
heldur en bankakerfið á Íslandi er
hrunið sem þetta félag lognast út af.“
Forstjóri og stjórnar-
menn FL flýja
„Sú sem hefur verið valin í forstjóra-
stólinn fyrir Flugleiðir hf. er mér hér
á hægri hönd og heitir Ragnhildur
Geirsdóttir,“ tilkynnti Hannes, þáver-
andi stjórnarformaður Flugleiða sem
skömmu seinna varð FL Group, á fundi
með starfsmönnum á Hótel Loftleið-
um 16. febrúar árið 2005. Ragnhild-
ur tók svo við forstjórastarfinu 1.
júní þeg-
ar Sigurð-
ur Helgason
settist í helg-
an stein.
Samstarf
þeirra Hann-
esar og Ragn-
hildar gekk
hins vegar
engan veg-
inn. Að-
eins fimm
mánuð-
um síð-
ar hætti
Ragn-
hildur
sem for-
stjóri
FL Group, fékk starfslokasamning
sem metinn var á 130 milljónir króna
og hefur síðan lítið sem ekkert sagt
opinberlega um samstarfið og umtal-
aða samstarfsörðugleika. Hún sendi
þó frá sér tilkynningu þegar starfs-
lokin áttu sér stað þar sem hún sagði
þau vera samkomulag á milli sín og
stjórnar félagsins vegna þess að hún
gæti ekki samþykkt þau vinnubrögð
sem viðhöfð hefðu verið við yfirtöku
FL Group á Sterling. DV hefur ítrekað
reynt að ná tali af Ragnhildi síðustu
daga, án árangurs.
Í lok júní 2005 sögðu þrír stjórnar-
menn sig úr stjórn FL Group og þrír
skömmu síðar Þetta voru Árni Odd-
ur Þórðarson, Gylfi Ómar Héðinsson,
Hreggviður Jónsson, Inga Jóna Þórð-
ardóttir, Jón Þorsteinn Jónsson og
Pálmi Kristinsson. Eini stjórnarmað-
urinn sem sat áfram var Hannes. Sá
orðrómur hefur verið til staðar frá því
þetta gerðist að ástæðan sé fyrst og
fremst ólögleg millifærsla sem Hann-
es hafi staðið fyrir upp á þrjá millj-
arða króna úr sjóðum FL til Kaup-
þings í Lúxemborg. Féð hafi átt að
hjálpa Pálma Haraldssyni að kaupa
Sterling.
Agnes Bragadóttir blaðamað-
ur fullyrti í Morgunblaðinu á dög-
unum að málið sé svona vaxið. Hún
hafi fengið staðfestingu á því í síðustu
viku. Þegar upp komst um gjörning-
inn hafi allt orðið „vitlaust“ í FL, end-
urskoðendur neitað að undirrita sex
mánaða uppgjör og stjórn og forstjóri
sakað Hannes um að þverbrjóta lög.
Kaupþing í Reykjavík reddaði svo
málum með því að flytja aftur þrjá
milljarða yfir til FL. Hannes neitaði
þessu þegar hann var spurður út í
sannleiksgildi þessa orðróms í Kast-
ljósinu í október 2005 og aftur nú á
dögunum.
Enginn tjáir sig
Inga Jóna Þórðardóttir sagði í sam-
tali við fréttastofu Ríkisútvarpsins,
þegar allir í stjórninni sögðu af sér
að Hannesi frátöldum, að ástæð-
an fyrir afsögn hennar hefði ver-
ið óánægja með stjórnunarhætti
og með hvaða hætti staðið væri
að ákvörðunum í félaginu. Á hlut-
hafafundi FL 9. júlí 2005 sagði Inga
Jóna að skýra verkaskiptingu þyrfti
milli stjórnarformannsins og forstjór-
ans og tryggja þyrfti að meiriháttar
fjárfestingar væru ræddar í stjórn og
afgreiddar þar áður en ráðist væri í
þær. Þá sagði hún að hagsmunir hlut-
hafa þyrftu að vera í fyrirrúmi. Inga
Jóna hefur ekki skýrt þessi ummæli
sín frekar opinberlega og vildi ekki
ræða við blaðamann um Hannes og
málefni FL Group þegar eftir því var
leitað á dögunum. Hún sagði þó að
farið hafi ágætlega á með henni og
Hannesi. Spurð um umrædda milli-
færslu á milljörðunum þremur sagði
Inga Jóna að það muni koma í ljós
hvað sannara reynist.
DV náði einnig tali af Hreggviði,
Gylfa Ómari, Jóni Þorsteini og Pálma
Kristinssyni. Þeir tveir fyrrnefndu
vildu ekkert tjá sig um meintar deilur
í stjórninni eða millifærsluna. Pálmi
tók það hins vegar fram að hann hefði
ekki sagt af sér stjórnarsetu heldur
einfaldlega ekki sóst eftir endurkjöri
á hluthafafundinum 9. júlí. Ástæða
þess væri sú að hann hefði selt sinn
hlut í FL eftir að hafa borist gott til-
boð í hann. Jón Þorsteinn vísar einn-
ig til sölu á hlut sínum í félaginu. Þeg-
ar hann var spurður um hina meintu
millifærslu vegna Sterling kvaðst
hann ekki hafa getað fylgst með öll-
um millifærslum FL. Ekki náðist í
Árna Odd af þessum fyrrverandi
stjórnarmönnum FL.
Húsleit hjá Stoðum
Í Kastljósinu síðastliðið mánudags-
kvöld var greint frá því að rætt hefði
verið við alla stjórnarmennina fyrr-
verandi en enginn þeirra vildi
koma fram undir nafni. Eft-
ir samtölin við þá væri ljóst að
þeim bæri ekki saman að öllu
leyti um málið. Einn sagði að átökin
á stjórnarfundinum í lok júní hefði
á engan hátt tengst þessum þremur
milljörðum þar sem stjórnarmenn-
irnir hefðu einfaldlega ekki haft hug-
mynd um það mál. Þeir hafi sagt sig
úr stjórninni vegna óánægju með
stjórnarhætti.
Tveir stjórnarmanna segja hins
vegar að stjórnin hafi haft vitneskju
um millifærslu úr félaginu án heim-
ildar, en ekki hafi verið ljóst hvert þeir
peningar fóru eða hversu háar upp-
hæðir var um að ræða. Einn heim-
ildarmanna fullyrðir aftur á móti
að stjórnin hafi vitað um þessa til-
teknu millifærslu upp á þrjá milljarða
króna.
Þess má geta að Hreggviður og
Hannes höfðu verið vinir í fjölmörg
ár. Með afsögn sinni úr stjórn FL
lauk ekki einungis viðskiptasamstarfi
þeirra heldur urðu einnig vinslit og
eftir því sem DV kemst næst hefur
ekki gróið um heilt.
Hannes sagði í viðtalinu í Markað-
inum um þarsíðustu helgi að ástæðan
fyrir stjórnarslitunum væri einfald-
lega sú að fólk hafi verið ósammála
um stefnu FL Group. Ágreiningur
hafi verið um hvaða fjárfestingar ráð-
ist yrði í og með hvaða hætti.
Nýjustu tíðindin í stjórnun og
rekstri FL Group á meðan Hannes var
þar aðal er svo húsleit starfsmanna
skattrannsóknarstjóra á skrifstofu
Stoða, sem áður var FL Group, síðast-
liðinn þriðjudag. Höfðu þeir á brott
með sér afrit af bókhaldsgögnum
félagsins frá árunum 2005 til 2007.
Geysihár rekstrarkostnaður félags-
ins, sem þó var ekki í miklum rekstri,
var mikið gagnrýndur á þessum tíma.
Þeir sem þekkja til telja að líklegt sé
að verið sé að rannsaka þóknan-
ir sem gefnar voru á þessu tímabili.
Það sem er meðal annars til skoð-
unar hjá skattayfirvöldum er risna
Hannesar og annarra stjórnar-
manna. Aðrar heimildir herma
að rannsóknin kunni að bein-
ast að þriggja milljarða króna
millifærslunni.
Maður ársins
brotlendir
Við brotthvarf sex-
menninganna
settust í stjórn FL
þeir Skarphéðinn
Berg Steinars-
son, sem varð
stjórnarfor-
maður, Jón
Ásgeir Jó-
hannes-
son, for-
stjóri
Baugs,
Þor-
steinn
M.
Jóns-
son
í
Kók og athafnamennirnir Magnús Ár-
mann, Sigurður Bollason og Einar Ól-
afsson. Seinna tók svo Smári Sigurðs-
son, faðir Hannesar, við sæti Einars
í stjórninni. Stjórnin gekk stundum
undir nafninu vinastjórnin sökum
vinskapar og tengsla þeirra sem hana
skipuðu.
Spurður um sína nánustu sam-
starfsmenn í viðtalinu í Krónikunni
snemma árs 2007 nefndi Hannes
meðal annarra Jón Ásgeir, Skarphéð-
in Berg, Örvar Kærnested og Jón Sig-
urðsson sem nú er forstjóri FL Group.
Hannes kvaðst ennfremur vinna mik-
ið með Pálma Haraldssyni í tengslum
við Northern Travel Holding, Bjarna
Ármannssyni, sem þá var forstjóri
Glitnis, „og raunar mönnum í öllum
bönkunum“ eins og Hannes orðar
það, og nefnir Hreiðar Má Sigurðsson
hjá Kaupþingi og Sigurjón Þ. Árnason
í Landsbankanum á nafn.
Hannes hefur það orð á sér að vera
einna harðastur og kaldastur af útrás-
arvíkingunum. Honum var líkt
við flugdólg í grein í
Wall Street
Jo-
urnal á síð-
asta ári eft-
ir að hann
þrýsti á
AMR,
móðurfé-
lag Am-
erican
Airlines,
að auka
verðmæti
félagsins
sem fall-
ið hafði
um fimm-
tíu prósent
frá því í byrj-
un árs. Hann
ku hafa geng-
ið hart fram í
því að kýla sam-
einingu Reykja-
vík Energy Invest og
Geysis Green
„Í tengslum við ásælni Hannes-
ar Í easyJet sagði stofnand-
inn, stelios HaJi-ioannou að
nafni, að Hann skildi ekki
Hvaðan Hannes fengi pen-
inga til fJárfestinga sinna.“
Þó nokkrar þjóðsögur hafa gengið um
Hannes síðustu ár. Fæstar eiga væntanlega
við rök að styðjast, og aðrar kannski ýktar
útgáfur af raunverulegri atburðarás. Mið-
að við fjölda sagnanna má jafnvel segja að
Hannes sé þjóðsagnapersóna í íslenskum
samtíma. Þá ber að taka fram að um óstað-
festar frásagnir er að ræða.
Ein sagan er eitthvað á þá leið að í einni
flugferð hafi Hannes spurt eina flugfreyj-
una hvað hún héldi að jakkinn sem hann
var í kostaði. Flugfreyjan varð nokkuð hissa
á spurningunni, ákvað nú samt að giska
fyrst þarna var um að ræða yfirmann flugfé-
lagsins og sagði: „Hundrað þúsund?“ Hann-
es á þá að hafa sagt að upphæðin væri nokk-
uð hærri og giskaði freyjan þá á 180 þúsund
krónur. Við svo búið ku Hannes hafa ákveð-
ið að koma með rétta svarið: Ein milljón og
fjögur hundruð þúsund krónur. Hermt er
líka að Hannes hafi látið vægast sagt dig-
urbarkalega í sumum flugferðum með Ice-
landair á meðan hann var þar aðal. Ef að því
var fundið á hann gjarnan að hafa sagt: „Ég
á ‘etta, ég má ‘etta.“
Önnur þjóðsagan segir frá einu skipti
þegar Hannes var staddur á snekkju í Kar-
íbahafinu ásamt öðrum auðmönnum.
Ekki fylgir sögunni hverjir þar voru á ferð
né hvort um var að ræða hina sögufrægu
snekkju Thee Viking eða einhverja aðra.
Hermt er hins vegar að kampavín upp á
eina milljón króna flaskan og rándýr kavíar
hafi verið á meðal þess sem var á boðstólum
einn daginn. Undir lok partísins hafi Hann-
es verið kominn í það mikið stuð að hann
var farinn að sprauta kampavíninu í allar
áttir og þeyta kavíarnum um þilfar snekkj-
unnar.
Ennfremur segir einn heimildarmanna
DV að Hannes og Unnur, sambýliskona
hans, hafi ósjaldan gist á Hótel Búðum á
Snæfellsnesi undanfarin ár. Við þær heim-
sóknir hafi þau kynnst ungri konu sem þar
starfaði sem kokkur, Gunnhildur Emilsdótt-
ir að nafni, og þeim orðið vel til vina. Gunn-
hildur náði víst einstaklega vel til barna
Hannesar og Unnar sem varð til þess að þau
buðu henni starf sem barnfóstra. Gunnhild-
ur tók starfstilboðinu og samkvæmt heim-
ildum Séð og heyrt kemur hún enn að um-
önnun barnanna tveggja og býr því með
Hannesi og Unni úti í London.
Skömmu áður en Hannes og fjölskylda
fluttu til London, eða um síðustu áramót,
segir svo orðið á götunni að Hannes hafi
slasast þegar hann datt niður stiga. Tvenn-
um sögum fer af því að hvar þetta átti sér
stað; ýmist er talað um í veislu heima hjá
Ara Edwald, forstjóra 365, eða á skemmti-
staðnum B5. Samkvæmt heimildum DV
slasaðist Hannes í andliti við fallið en ekki
fylgir sögunni hvað nákvæmlega laskaðist í
andliti kappans.
Þá er ónefnd sagan af nágrannadeilum
Hannesar við Guðmund í Brimi þegar þeir
bjuggu báðir í glæsihúsum við Fjölnisveg,
Hannes í húsi númer 9 en Guðmundur í
númer 11. Þegar Hannes hugðist stækka
bílskúrinn sinn kom Guðmundur í veg fyr-
ir það þar sem honum fannst bílskúrinn
fara of nálægt sinni lóð. Deilu þeirra kump-
ána lyktaði með því að Hannes keypti hús-
ið af Guðmundi til að geta haldið sínu striki
í framkvæmdunum. Samkvæmt Séð og
heyrt borgaði Hannes samtals 220 milljón-
ir króna fyrir húsin tvö og eftir því sem DV
kemst næst á hann þau enn. Heyrðust um
tíma sögur af meintri hugmynd Hannesar
um að byggja brú á milli húsanna. Ef rétt
er er brúin í það minnsta ekki enn orðin að
veruleika, og verður það vart úr þessu í ljósi
boðafallanna.
Hvað sem satt er, logið eða ýkt í þessum
þjóðsögum um Hannes Smárason er ljóst
að hann hefur mikið verið á milli tannanna
á fólki í góðærinu sem nú er lokið.
ÞJóðsagnapersónan Hannes
Framhald á
næstu síðu
„Það Hefði engum dottið Í Hug að
gera Þessa Hluti, sem við erum að
gera, nema fólki sem veit engan
veginn Hvað Það er að fara út Í,“
sagði Hannes Í viðtali á sÍðasta ári.