Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2008, Blaðsíða 21
föstudagur 14. nóvember 2008 21Helgarblað
„Ég er bara stopp í lífinu. Það er
bara á bið,“ segir Kristín Ýr Gunn-
arsdóttir, 25 ára atvinnulaus og ein-
stæð tveggja barna móðir, sem seg-
ir ástandið á Íslandi í dag vera með
öllu ólíðandi. Hún er ein þeirra tæp-
lega þrjú þúsund Íslendinga sem
misstu vinnuna í síðasta mánuði og
eru mjög reiðir yfir því hvernig fyrir
þeim er komið. Henni er nóg boð-
ið og á dögunum kom hún að skipu-
lagningu borgarafunda í Iðnó þar
sem almenningur krafðist svara.
Átti að fá viku uppsagnarfrest
Kristín Ýr starfaði sem blaðamað-
ur á 24 stundum þegar nær öllum
starfsmönnum blaðsins var sagt
upp í síðasta mánuði. Vandræði
hennar voru samt sem áður meiri
en þau að vera nú orðin atvinnulaus
í fyrsta skipti á ævinni.
„Upphaflega átti ég bara að fá
viku í uppsagnafrest þó svo ég hefði
starfað hjá fyrirtækinu í ár. Ég var
blaðamaður á reynslu og var að-
eins nokkrum dögum frá því að
vera fullráðin,“ segir Kristín. Hún
segir starfsaldur sinn ekki hafa ver-
ið metinn nema frá þeim tíma sem
hún starfaði sem blaðamaður. „Mér
tókst að fá það í gegn að uppsagn-
arfresturinn yrði þrjár vikur. Það er
erfitt að finna sér vinnu í dag þannig
að eins og gefur að skilja er vika ekki
langur tími. Ég leitaði réttar míns
en það var ekkert hægt að gera þar
sem ég hafði farið frá VR yfir í Blaða-
mannafélag Íslands á þessum tíma.
Þannig að það skipti ekki máli þótt
ég hefði bara færst um deild innan
fyrirtækisins,“ segir Kristín ósátt.
Grátandi fólk í röðum
Kristín segir það hafa verið mikið
áfall að vera sagt upp. „Ég las þetta
fyrst á netinu, reyndar á dv.is, en
ég er í raun ekki búin að átta mig á
þessu fyrr en fyrst núna, í þessari
viku. Hvernig ástandið er og hvað
er að fara gerast. Ég skráði mig á at-
vinnuleysisbætur á föstudaginn fyr-
ir tveimur vikum. Hjá Vinnumála-
stofnun var brjálað að gera, fullt út
úr dyrum og víða fólk grátandi í röð-
inni. Það var svo mikil ringulreið
að ég áttaði mig fyrst þá á hvernig
ástandið væri,“ segir Kristín Ýr um
fyrstu vikur sínar í atvinnuleysi.
Atvinnuleysisbætur
duga skammt
Kristín keypti sér íbúð í ársbyrjun en
segir að nú sé erfitt að reka heimilið
á atvinnuleysisbótum. „Það að reka
heimili með tveggja og sjö ára dæt-
ur mínar á atvinnuleysisbótum er
ekki að fara gera sig. Sem betur fer
er ég ekki skuldug manneskja en ég
er með yfirdrátt þar sem vextirnir
hækka og hækka, ég þarf að borga
af íbúðinni minni, bílnum, hita og
rafmagn. Íbúðalánið hefur stað-
ið ágætlega hingað til en afborgan-
ir af bílaláninu hafa hækkað úr 11
þúsund krónum á mánuði upp í 30
þúsund krónur frá því í desember í
fyrra.“
Stopp í lífinu
Kristín segist vera í afar erfiðri stöðu
þessa dagana. Hún hafi velt fyrir sér
að fara í nám en þar hafi hún mætt
enn einni hindruninni. „Ég er bara
stopp í lífinu. Það er bara á bið.
Ég get ekki farið í menntaskóla til
að klára hann því þá fæ ég ekki at-
vinnuleysisbætur. Ég kemst ekki að
í háskóla af því ég er ekki með stúd-
entspróf. Ég er í hópi þeirra sirka
4.500 einstaklinga sem eru atvinnu-
lausir í dag og margt af því fólki er
menntað. Þannig að sama hvaða
vinnu ég sæki um ég er alltaf sett aft-
ast í röðina. Á eftir fólki með gráður.
Ég er búin að sækja um sex störf. Ég
er á skrá hjá nánast öllum atvinnu-
stofum en það er aldrei hringt. Ég
bara get ekkert gert,“ segir Kristín
reið og sár.
Allir að missa vinnuna
Á erfiðleikatímum sínum undanfar-
ið hefur Kristín getað reitt sig á fjár-
hagsaðstoð frá barnsföður sínum
sem hefði létt undir með henni og
dætrum hennar tveimur. Hann hafi
nú hins vegar líka misst vinnuna og
ástandið er því ansi dökkt. „Allir í
kringum mann eru að missa vinn-
una. Ég er heppin að eiga góða að og
það eru allir reiðubúnir að aðstoða
mann, það bara getur það enginn.
Það er búið að minnka yfirvinnuna
hjá mörgum í kringum mig. Aðr-
ir bíða upp á von og óvon með að
hreinlega halda vinnunni. Þannig
að það eru allir á sama stað í þessu
óvissuástandi,“ segir Kristín.
Almenningur standi saman
Kristín Ýr var ein þeirra sem komu
að skipulagningu borgarafundanna
í Iðnó á dögunum sem slógu í gegn.
Hún segir tildrög þeirra mega rekja
til að faðir hennar hafði samband
við hana og honum var nóg boð-
ið yfir ástandinu. „Hann vildi bara
fá svör. Fá að vita hvað væri í gangi
í kringum okkur. Þannig hrintum
við þessu í framkvæmd. Við vorum
bara fjögur í upphafi en síðan hefur
þessu verkefni vaxið ásmegin og við
munum standa fyrir öðrum borg-
arafundi á laugardaginn næstkom-
andi,“ segir Kristín og hún er með
svör á reiðum höndum aðspurð
hvaða skilaboðum hún vilji koma til
almennings í landinu sem sé í svip-
uðum sporum. „Fólk þarf að standa
meira saman og ég held að við þurf-
um að taka upp þessi gömlu góðu
gildi sem okkur voru kennd. Það
eru allir búnir að vera í sínu horni
að reyna að græða, en núna þurf-
um við að sýna samstöðu og hjálpa
hvert öðru. Að vita það að maður
er ekki einn í þessu er nokkuð sem
kemur manni í gegnum daginn. Og
það er einmitt það sem við leitum
eftir á þessum borgarafundum, við
þurfum að fá svör. Alþingi veit ekki
hvað er í gangi, það getur enginn
gefið nein svör. Núna er maður á
atvinnuleysisbótum, hvað er langt
þangað til sá peningur er búinn?
Hvað get ég lengi treyst á það að fá
bætur svo ég geti borgað undir mig
og börnin mín?“ spyr Kristín Ýr aug-
ljóslega reið.
Íhugar að flýja land
Kristín segir ólíðandi óvissuástand
hér á Íslandi þar sem lítil sem eng-
in svör fáist frá ráðamönnum sem
hafi framtíð almennings í höndum
sér. „Það veit enginn neitt. Hver er
framtíð mín? Hver er framtíð mín á
þessu landi, á ég að flytja úr landi?
Er það eini möguleikinn fyrir mig
í stöðunni að reyna bara að koma
fótunum undir mig einhvers stað-
ar annars staðar? Hvernig verður
þetta? Það eru til peningar í landinu
sem rúlla núna en þeir verða ekki til
bráðum.“
Kristín segir að hún sé núna
á þeim tímamótum að hún sé að
kanna hvort hún þurfi að flýja land
og flytja eitthvert annað. „Það er
nokkuð sem ég er að kanna. Ég veit
ekki hvort ég þurfi að byrja á að fara
ein úr landi og skilja börnin eftir hjá
fjölskyldu minni en ég get þetta ekki
til lengdar. Og ég heyri það að fólk
á mínum aldri og í kringum mig er
mikið að velta þessum möguleika
fyrir sér. Ástandið er kannski ekki
gott úti, en það er örugglega betra
en hér.“
Börnin veita tilgang
„Ég er mjög reið yfir þessu ástandi.
Ég tel mig mjög heppna að eiga
börn í þessu ástandi því ég þarf að
vakna á morgnana. Þau eru það sem
ýtir mér áfram í gegnum það reiði-
leysi sem ég er í eftir að ég skutla
þeim á leikskólann eða skólann.
Ég hef tilgang. Ég get ekki ímynd-
að mér hvernig væri að vera í þessu
ástandi án þess að eiga börnin mín
til að veita mér styrk,“ segir Kristín
Ýr Gunnarsdóttir að lokum.
Ábyrgð fjölmiðla tækluð
Borgarafundirnir hafa verið vel sótt-
ir og segir Kristín að næsti fundur sé
fyrirhugaður mánudaginn 17. nóv-
ember næstkomandi. Mun hann
fara fram í húsakynnum skemmti-
staðarins NASA klukkan 20. „Þar
verður sjónum beint að ábyrgð
fjölmiðla og umfjöllun þeirra um
ástandið,“ segir Kristín spurð um
fundinn. Að hennar sögn hafa nú
þegar nokkrir þjóðþekktir fjöl-
miðlamenn boðað komu sína, þar á
meðal Egill Helgason og Sigmund-
ur Ernir Rúnarsson. „Eftir sem áður
verður útgangspunkturinn sá sami.
Við skorum á ráðamenn og aðra
háttsetta að koma og hlusta á fólk-
ið,“ segir Kristín. Hún vill að lokum
minna á að fundirnir séu ekki mót-
mæli eins og þau sem átt hafa sér
stað hingað til. Heldur siðmenntuð
leit að svörum þar sem viðmælend-
ur sitja fyrir þeim.
Kristín Ýr Gunnarsdóttir er 25 ára einstæð tveggja barna móðir
sem, eins og tæplega þrjú þúsund Íslendingar í síðasta mánuði,
missti vinnu sína. Hún neitar hins vegar að gefast upp þó lífið í
atvinnuleysinu reynist henni erfitt. Hún kemur að skipulagn-
ingu borgarafundanna í Iðnó og segir mikilvægt að fólk hætti að
húka eitt úti í horni og fari að standa saman. Í samtali við DV
segir hún frá erfiðleikum sínum í atvinnuleysinu og skoðunum
sínum á ástandinu.
FINN LJÓSIÐ Í DÆTRUNUM
SiGurður MiKAel jónSSon
blaðamaður skrifar: mikael@dv.is
„Hjá Vinnumálastofnun var brjálað að gera, fullt
út úr dyrum og víða fólk grátandi í röðinni. Það
var svo mikil ringulreið að ég áttaði mig fyrst þá á
hvernig ástandið væri.“
Flott VW Bora árg 99 ekinn 167.000 skoðaður 09
ATH! hægt er að yfirtaka ca 220 þúsund króna lán
sem er hjá Lýsingu hagstætt lán afborgnir ca 15 þús
á mánuði og 100 þús í milligjöf.
Upplýsingar í síma 8588657 eða 8451967.
BÍLL TIL SÖLU!