Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2008, Blaðsíða 26
föstudagur 14. nóvember 200826 Fókus
u m h e l g i n a
„Þetta eru tólf lög sem ég hef gert við
ljóð ýmissa skálda auk þess að gera þrjá
texta sjálfur,“ segir Tómas R. Einarsson
um nýjustu plötu sína, Trúnó, en þar
má heyra lög hans við kvæði Ingibjarg-
ar Haraldsdóttur, Kristínar Svövu Tóm-
asardóttur, Halldórs Kiljan Laxness,
Vilborgar Dagbjartsdóttur, Sveinbjarn-
ar I. Baldvinssonar og Steins Steinarr,
auk áðurnefndra texta eftir Tómas.
Lögin eru svo flutt af þeim Ragn-
heiði Gröndal og Mugison við undir-
leik Tómasar, Ómars og Óskars Guð-
jónssona, Davíðs Þórs Jónssonar og
Matthíasar Hemstock.
„Ég hef spilað með þessum drengj-
um í mörg ár og núna í haust spiluðum
við til dæmis á djasshátíðum í Rúmen-
íu og Þýskalandi. Við höfum spilað lat-
íntónlistina mína úti um allt hér heima
og víða erlendis síðustu fimm árin,“
segir Tómas.
Hefur afhent mörg
trúnaðarbréf um ævina
„Flest kvæðanna á disknum fjalla um
efni sem þú gætir rætt við nána vini,
síðla nætur á spjalli. Þess vegna heit-
ir platan Trúnó. Kvæðin fjalla flest um
það sem stundum er kallað innstu
hjartans mál. Ástina og samviskubit-
ið og breyskleika af ýmsu tagi, sem og
tilvist guðs sem Ingibjörg Haraldsdótt-
ir veltir fyrir sér í ljóðinu Sumarkvöld
við Hvalfjörð. Þetta er efni sem maður
ræðir stundum við sína nánustu vini á
hreinskilinn hátt,“ útskýrir Tómas.
Aðspurður hvort hann sjálfur sé það
sem kalla má trúnókóngur svarar hann
hlæjandi: „Já, ég hef afhent mörg trún-
aðarbréf um ævina og sennilega fleiri
en flestir sendiherrar afhenda á sínum
ferli. Það er þó ekki beinlínis þannig að
allt í kvæðunum sé sprottið út úr mínu
eigin lífi. En öll þessi kvæði hafa í sér
einhvern trúnaðarhljóm sem höfðaði
til mín.“
Þægilegra að gera
hlutina sjálfur
Þessi söngdiskur er undantekning hjá
Tómasi sem hefur fyrst og fremst sam-
ið ósungna tónlist. „Ég hef nú svo sem
komið nálægt því áður að gera plötur
með sungnum lögum. En það er dálít-
ið langt síðan ég hef gert heila sungna
plötu og það er töluvert öðruvísi. Þetta
er alveg súperfólk sem ég vann með
Tónlistarmaðurinn Tómas R. Einarsson hefur
fyrir löngu stimplað sig inn sem einn af fremstu
djasstónlistarmönnum þjóðarinnar. Á dögunum sendi
hann frá sér plötuna Trúnó þar sem hann bregður
örlítið út af vananum og fær Mugison og Ragnheiði
Gröndal til að syngja vel valin kvæði við lög Tómasar.Pönkari
með prestsdrauma
rúnaðarbréf
Ást við fyrstu sýn
Á sunnudaginn, 16. nóvember, degi íslenskrar tungu, mun Haraldur
Jónsson myndlistarmaður þreifa á nokkrum verkum sem vekja áhuga
hans á sýningunni Ást við fyrstu sýn - ný aðföng úr Würt-safninu sem nú
stendur yfir í listasafni Íslands. Í tilefni dagsins mun Haraldur sérstak-
lega nálgast forvitnileg tengsl orðs og myndar, núning sjónar og tungu
sem og síbreytileg valdahlutföll þessara heima.
Líta listaverk eins út þegar þau
hanga innan um föt og samlokur?
Hvað með skilti sem er komið inn á
safn, er það orðið að listaverki? Alma
Dís Kristinsdóttir býður fjölskyldum
í forvitnilegan leiðangur um miðbæ-
inn á sunnudaginn klukkan 14. Leið-
angurinn hefst í A-sal Hafnarhússins
og færist síðan út fyrir veggi safns-
ins. Tilgangurinn er annars vegar
að skoða listaverk úr eigu Listasafns
Reykjavíkur sem eru uppi hjá versl-
unum og þjónustuaðilum í mið-
borginni, og hins vegar ólíka hluti
sem sömu fyrirtæki lánuðu safninu
til að hafa til sýnis í Hafnarhúsinu.
Hönnuðurinn Katrín Ólína Pét-
ursdóttir mun svo sitja fyrir svör-
um í listamannsspjalli í Hafnarhúsi
klukkan 15 á sunnudaginn. Katr-
ín er einn listamannanna sem eiga
verk á sýningunni ID LAB sem þar
stendur nú yfir en fjallað hefur ver-
ið um verk hennar í fjölmörgum al-
þjóðlegum tímaritum og bókum. ID
LAB er sýning á verkum listamanna
sem nota kraftmikil auðkenni tísku
og hönnunar til að skoða tíðaranda
samtímans. Listamennirnir eru allir
þekktir fyrir vinnu sína sem mynd-
listarmenn en hafa einnig flestir
unnið að verkefnum á sviði hönn-
unar og þannig haft áhrif á tísku og
tíðaranda. Aðrir sem eiga verk á sýn-
ingunni eru Gjörningaklúbburinn,
Hrafnhildur Arnardóttir, Huginn
Þór Arason og Jón Sæmundur Auð-
arson.
Fjölskylduleiðangur og listamannsspjall til boða í Hafnarhúsi um helgina:
föt, samlokur og tíðarandi
sýningarlok í
101 Projects
Nú fer hver að verða síðastur að sjá
sýningu Tamy Ben-Tor í 101 Projects
að Hverfgisgötu 18a en henni lýkur
á sunnudaginn. Ben-Tor er fædd í
Ísrael og býr í New York. Flest verka
hennar eru myndbandsverk en hún
er jafnframt þekkt fyrir gjörninga sína
sem hún hefur flutt við mikil fagnað-
arlæti í leikhúsum, á gjörningahátíð-
um og næturklúbbum, að því er segir
í tilkynningu. Ben-Tor kemur sjálf
fram í verkum sínum, bregður sér í
ýmis gervi og leikur karaktera sem
hún byggir á þekktum erkitýpum.
rætur
sólkrossins
Í tilefni af útgáfu skáldsögunnar
Sólkross eftir Óttar M. Norðfjörð
verður efnt til málþings um Einar
Pálsson og kenningar hans um
íslenska forn-
menningu á
morgun, laug-
ardag. Efnivið-
ur skáldsög-
unnar byggist
að miklu leyti
á ritsafni Ein-
ars, Rætur
íslenzkrar
menningar, og þá fyrst og fremst
kenningum hans um Rangárhjól-
ið svokallaða. Málþingið verður
haldið í húsakynnum Ásatrúar-
félagsins, Síðumúla 15, og hefst
klukkan 14. Erindi halda Hilmar
Örn Hilmarsson allsherjargoði,
Þórarinn Þórarinsson arkitekt og
Goddur myndlistarmaður sem
mun ræða um heilaga geómetríu
sem er sjálfur kjarninn í fræðum
Einars.
fjölskyldu-
tónar í salnum
Í tilefni af útkomu hinnar geysi-
vinsælu barnaplötu Gilligill verða
haldnir sérstakir Gilligill-tónleikar í
Salnum í Kópavogi alla sunnudaga
fram að jólum. Tónleikarnir fara
fram klukkan 13.00 og 15.00. Fyrstu
tónleikarnir eru núna á sunnudag-
inn, 15. nóvember. Leikin verða
lög af Gilligill, sem er barnaplata
með lögum og textum eftir Braga
Valdimar Skúlason, oft kenndan við
Baggalút. Platan hefur fengið frá-
bæra dóma og gríðargóðar viðtökur
þar sem hún hefur ómað. Þá hefur
lagið Pabbi minn er ríkari en pabbi
þinn hlotið verðskuldaða athygli.
Miðasala fer fram á midi.is og á sal-
urinn.is.
Hefur afhent mörg
„Mér fannst þetta hljóðfæri líta svo vel út á sviði
að maður hlyti bara að vera dálítið flottur með
þetta“ tómas hefur spilað á kontrabassann í þrjátíu ár
en auk þess sem hljóðfærið lítur svo vel út hreifst hann
aðallega af hlutverki kontrabassans í djassmúsíkinni.
MYND kaRl pETTERsEN
Ugluspegill Hluti af verki Katrínar ólínu
Pétursdóttur sem til sýnis er í Hafnarhúsi.