Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2008, Síða 34
föstudagur 14. nóvember 200834 Helgarblað
Magnús Scheving er nýjasta viðbótin við Íslendinga sem hafa gert það gott í Holly-
wood. Þeir eru ekki margir hingað til en alltaf bætist við listann. Sérstaklega und-
anfarið með góðu gengi Magnúsar, Anítu Briem, Gísla Arnar og Baltasars Kor-
máks. DV tók saman lista yfir helstu Hollywood-stjörnur okkar Íslendinga.
Framleiðir myndir með stórstjörnum
sigurjón sighvatsson, popparinn frá Keflavík, flutti til Los angeles á háskólastyrk til þ
ess
að læra kvikmyndafræði. fyrsta myndin sem hann framleiddi hét P.I. Private Investig
ator
og hlaut gríðarlega athygli hér heima þá sérstaklega þar sem Íslendingur kom að
myndinni. síðar startaði sigurjón framleiðslufyrirtækinu Propaganda films og sló
fyrirtækið rækilega í strax í gegn með david Lynch-myndinni Wild at Heart sem ska
rtaði
nicholas Cage og Lauru dern í aðalhlutverkum. Í kjölfar Wild at Heart framleiddi
Propaganda þættina twin Peaks sem fóru sigurför um heim allan. sigurjón hefur síð
an þá
komið að mörgum af helstu kvikmyndum vestanhafs og verður að teljast mjög virtu
r í
bransanum. Hann stjórnar nú framleiðslufyrirtækinu Palomar Pictures og framleiðir
myndina brothers með Jake gyllenhaal og natalie Portman og tobey maguire í
aðalhlutverkum.
Illi galdrakarlinn
takist vel til gæti gísli örn orðið ein frægasta Hollywood-stjarna Íslands
fyrr og síðar. Hann leikur vonda karlinn í stórmyndinni Prince of Persia sem er byggð á samnefndum tölvuleik. Það er enginn annar en Jake gyllenhaal sem leikur aðalhutverk myndarinnar og sjálfur Jerry bruckheimer sér um
framleiðsluna. Þekktustu verk bruckheimers eru Pirates of the Caribbean-
myndirnar og þættir eins og CsI. gísli verður þó vel sminkaður og því óvíst að hann muni þekkjast í útliti. engu að síður má búast við miklum
vinsældum myndarinnar um allan heim.
Leikstýrir vinsælasta
sjónvarpsþætti heims
egill örn egilsson, eða eagle eins og hann kallar sig, er
þekktastur fyrir aðild sína að sjónvarpsþáttunum CsI:
miami. Heimsmetabók guinness útnefndi þá á sínum
tíma vinsælustu sjónvarpsþætti heims. eagle hefur bæði
leikstýrt og framleitt þættina en næsti þáttur af CsI:
miami, sem sýndur er á skjá einum, er einmitt undir hans
leikstjórn. eagle hefur einnig unnið sem myndatökustjóri
fyrir hina geysivinsælu þætti the Wire.
Of course my Horse
eyþór gunnarsson var kærasti Lindu Péturs-
dóttur á þeim tíma er hún sigraði í ungfrú
alheims keppninni. en það slitnaði upp úr því
sambandi stuttu eftir krýninguna. eyþór var
athafnaskáld mikið og er enn í dag, en líf hans
breyttist mikið er hann kynntist eli roth,
ungum leikstjóra frá Hollywood sem var
staddur hér á landi til þess að kynna hryllings-
mynd sína Cabin fever. Á milli þeirra skapaðist
mikil vinátta, svo mikil að eli skrifaði Íslending
inn í handritið að Hostel, mynd sem var í
bígerð. nokkrir þjóðþekktir reyndu fyrir sér í
áheyrnarprufunni en engin nógu góður. Á
endanum var það eyþór sjálfur sem fór með
hlutverkið og stóð sig með mikilli prýði þangað
til hann var afhausaður.
Maðurinn á bak við grímuna
Hinn íslensk-ameríski gunnar Hansen er án efa frægasta Hollywood-
stjarna Íslands fyrr og síðar. Í það minnsta persónan hans þó að maðurinn
á bak við grímuna sé ekki jafnfrægur. gunnar lék ófétið Leatherface í hinni
heimsfrægu hrollvekju texas Chainsaw massacre árið 1974. gunnar, sem
hefur leikið í þó nokkrum myndum síðan og nú síðast íslensku myndinni
reykjavík Whale Watching massacre, lifir enn góðu lífi af hlutverki sínu
sem Leatherface. Hann fer á nokkrar ráðstefnur á ári og gefur eiginhandar-
áritanir og talar við aðdáendur.
Fór fyrir illum Íslendingum
maría ellingsen hóf Hollywood-ferilinn í amerísku sápuóperunni santa
barbara á níunda áratugnum. Þar má segja að maría hafi verið uppgvötv-
uð og fékk hún í kjölfarið hlutverk í disney-myndinni d2: the mighty
ducks. Þar fór hún með hlutverk aðstoðarþjálfara íslenska íshokkílands-
liðsins sem var „vondu karlarnir“ í myndinni. eftir það hefur hún aðallega
einbeitt sér að ferlinum hér heima á Íslandi þar til hún nældi sér í hlutverk í
dönsku spennuþáttaröðinni erninum.
í Hollywood