Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2008, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2008, Síða 3
verði bætt þetta upp með nefskatt- inum. Þetta á allt eftir að fara í formi frumvarps gegnum þingið og menntamálanefnd og ég veit ekki hver niðurstaðan verður.“ Þess má geta að árlegar auglýs- ingatekjur RÚV ohf. eru á annan milljarð króna. Skrifuðu nafnið vitlaust á uppsögnina Aukinnar óánægju gætir meðal starfsmanna RÚV ohf. vegna vax- andi launaójafnaðar innan stofn- unarinnar eftir að henni var breytt í hlutafélag. Þá láta margir starfsmanna RÚV í ljós verulega óánægju og undr- un vegna uppsagna þrautreyndra tæknimanna með langan starfsald- ur. Það á sérstaklega við um upp- sögn Báru Halldórsdóttur og Jans Murtomaa. Bára á 23 ára starfsferil innan RÚV. Hún er trúnaðarmað- ur tæknimanna og hefur verið tengd réttindabaráttu þeirra, en tæknimenn eiga nú í kjaradeilu við RÚV ohf. Jan hefur starfað hjá RÚV í 11 ár og hefur einnig tengst kjarabaráttu tæknimanna. Nokkur fjöldi starfsmanna RÚV hefur tjáð sig um niðurskurð- inn á blogginu og ganga jafnvel svo langt að segja að niðurbrot á stofn- uninni sé hafið. Jan Murt- omaa, tæknimaður á hljóðvarpi RÚV, segir að stjórnendur RÚV taki illa gagnrýni. „Maður set- ur fram gagnrýni í þeirri von að hægt sé að bæta starfsem- ina fyrir RÚV í heild og starfs- mennina. Þegar hlutir fara af leið reynir maður að leiðrétta kúrsinn. Mér var harðneitað um ástæðu fyrir uppsögninni. Það hlýtur að vera vegna þess að stjórnend- ur hafa eitthvað að fela. Eftir ellefu ára þjónustu fær maður uppsagn- arbréf þar sem meira að segja nafnið er vitlaust skrifað,“ segir Jan. mánudagur 1. desember 2008 3Fréttir Niðurskurður og kraumaNdi óáNægja Boðberi slæmra tíðinda Páll magnússon útvarpsstjóri var í því hlutverki síðasta föstudag að tilkynna starfsfólki um verulegan niðurskurð, launalækkanir og uppsagnir. mynd Sigtryggur Ari Þóra tómasdóttir Þóra í Kastljósi segir niðurstöðuna sorglega en þetta sé nokkuð sem öll stórfyrirtæki þurfa að gera þessa dagana. Helgi Seljan, dagskrárgerðarmaður í Kastljósi „eins og niðurskurðurinn er kynntur hangir áfram yfir okkur að uppsagnarbréf kunni að vera í vændum.“ Jan murtomaa tæknimaður „mér var harðneitað um ástæðu fyrir uppsögn- inni. Það hlýtur að vera vegna þess að stjórnendur hafa eitthvað að fela.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.