Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2008, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2008, Qupperneq 6
Róleg nótt Aðfaranótt sunnudags var til- tölulega róleg í flestum um- dæmum lögreglunnar. Á höf- uðborgarsvæðinu gistu þrír fangageymslu en að sögn varð- stjóra var nóttin með eindæm- um róleg. Tveir voru teknir fyrir ölvun við akstur á Selfossi og einn fyrir grun um ölvunarakst- ur. Á Akureyri var einn tekinn fyrir ölvunarakstur. Að sögn varðstjórans hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum var aðfaranótt sunnudagsins „pollróleg eins og alltaf“ og á Ísafirði var nóttin sömuleiðis róleg. mánudagur 1. desember 20086 Fréttir InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Bæjarstjóri Seyðisfjarðar segir nauðsynlegt að gleðja bæjarbúa í erfiðu efnahagsárferði: Lækka leikskólagjöldin í kreppunni „Með þessu móti bjóðum við upp á einn ódýrasta leikskóla landsins. Það þarf að gleðja fólk í kreppunni,“ seg- ir Ólafur Hr. Sigurðsson, bæjarstjóri Seyðisfjarðarkaupstaðar. Ákveðið hefur verið að um næstu áramót verði vistunargjald á leikskóla bæjarsins lækkað úr 3.150 krónum á klukku- stund í 1.575 krónur. Fyrir börn í for- gangshópum þarf aðeins að greiða 970 krónur. Afsláttur fyrir annað barn verður hækkaður úr 25 prósentum og í 75 prósent. Eftir sem áður verður gjaldfrjáls vistun fyrir þriðja barn. Við breytingarnar fellur niður fjög- urra tíma gjaldfrelsi mánaðarlega. Öll börn frá 12 mánaða aldri komast að á leikskólanum þar sem boðið er upp á 9,5 tíma vistun daglega. „Við gerum okkar besta til að gera vel við barnafjölskyldur,“ segir Ólafur. Fleiri breytingar hafa þegar verið gerðar á gjaldskrám bæjarins. Allir fá frítt í sund og líkamsrækt til áramóta, hvort sem um er að ræða Seyðfirðinga eða aðkomufólk. Ólafur vekur sér- staka athygli á þessu með hliðsjón af því að námsmenn af landsbyggðinni fá ekki frítt í strætó á höfuðborgar- svæðinu, öfugt við heimafólk. „Mæt- ingin hefur verið virkilega góð,“ segir hann. Frá áramótum verður síðan frítt í sund fyrir 16 ára og yngri. Undanfarna mánuði hefur útlán af bókasafni bæjarins verið gjaldfrjálst. „Aukningin hefur verið gífurleg. Fólk virðist í þessu efnahagsástandi nýta sér afþreyingu sem kostar ekki neitt,“ segir Ólafur en áður voru það helst börn og ellilífeyrisþegar sem heim- sóttu bókasafnið. erla@dv.is Aukin aðsókn Ólafur Hr. sigurðsson segir seyðfirðinga hafa sótt mikið í sund og líkamsrækt eftir að hætt var að taka gjald fyrir þjónustuna. EKKI AFSKRIFAÐ HJÁ MÉR SEGIR STYRMIR Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, segir skuldir sínar hjá Landsbanka Íslands ekki hafa verið afskrifaðar. Hann skuldaði að minnsta kosti 80 milljónir um miðjan síðasta áratug. Áhrifamenn innan Sjálfstæðisflokksins reyndu að fá lán hans gjaldfellt þegar bankinn var í ríkiseigu. Orðrómur hefur verið uppi um að skuldir Styrmis Gunnarssonar, fyrr- verandi ritstjóra Morgunblaðsins, hjá Landsbankanum hafi verið af- skrifaðar á þeim tíma sem Björgólfur Guðmundsson var eigandi bankans og Árvakurs. Styrmir segir skuldir sínar hjá Landsbankanum ekki hafa verið afskrifaðar. Styrmir skuldaði að minnsta kosti 80 milljónir króna um miðjan síðasta áratug á sama tíma og hann var rit- stjóri Moggans. Þær skuldir fóru síðar inn í Landsbankann en sem kunnugt er eignaðist Björgólfur Guðmundsson bankann þegar hann var einkavædd- ur. Björgólfur eignaðist síðar Árvakur á meðan Styrmir var ennþá ritstjóri. 80 milljónir Styrmir sagði blaðamanni fyrir tveimur árum að skuldirnar væru raunverulegar en hann áskildi sér rétt til að glíma við þær eins og hver annar maður og án íhlutunar eða hótana. Ekki er vitað til þess að skuldir Styrmis hafi verið fluttar úr Landsbankanum, en sem kunnugt er hefur Björgólfur Guðmundsson, aðaleigandi Landsbankans, jafn- framt verið aðaleigandi Árvakurs undanfarin ár. Samkvæmt heimild- um DV áttu skuldir Styrmis að hafa numið að minnsta kosti 80 millj- ónum króna um miðjan síðasta áratug. Orðrómur hefur verið uppi undanfarið um að skuldir Styrmis hjá Landsbankanum hafi verið af- skrifaðar á þeim tíma sem Björgólf- ur Guðmundsson var eigandi bank- ans og Árvakurs. Vildu gjaldfella lánin Áður en bankinn var einkavæddur var Styrmir í afar óþægilegri stöðu gagnvart stjórn Árvakurs og forystu Sjálfstæðisflokksins. Davíð Odds- son hafði horn í síðu hans og tor- tryggði hann vegna vinfengis við Jón Baldvin Hannibalsson. Auk þess hafði Morgunblaðið talað ákaft fyr- ir auðlindagjaldi í sjávarútvegi sem var þyrnir í augum LÍÚ og flokksins. Sverrir Hermannsson, sem þá var bankastjóri Landsbankans, segir að svo langt hafi aðförin að Styrmi gengið að Kjartan Gunnarsson, þá bankaráðsmaður í Landsbankan- um, hafi komið á hans fund og beðið hann sem flokksbróður – ekki sem bankastjóra – að gjaldfella skuldir Styrmis í bankanum. Sverrir neitaði en þó er ljóst að menn reyndu að hafa áhrif á ritstjórastefnu Styrmis með ýmsum brögðum, þar á með- al með því að ógna því að lán hans yrði gjaldfelt. Óvissa Ritstjórinn fyrrverandi skuldaði Landsbankanum 80 milljónir á sama tíma og Björgólfur var bæði eigandi bankans og Morgunblaðs- ins. Þannig var bankastjórinn Björgólfur kominn í sömu stöðu og Sverrir var í áður en bankinn var einkavæddur. Skuldir Styrm- is voru hins vegar aldrei gjaldfelld- ar. En óvissa ríkir um það hvort orðrómurinn sé sannur og að eig- andi blaðsins hafi seinna afskrifað skuldir Styrmis. Þegar blaðamaður DV reyndi að spyrja Styrmi um það hvort skuldir hans í Lansbanka Ís- lands hefðu verið afskrifaðar keyrði hann í burtu. „Nei, þær hafa ekki verið afskrifaðar,“ sagði Styrmir við blaðamann áður en hann var horf- inn á bak og burt. davíð Oddsson hafði horn í síðu hans og tortryggði hann vegna vinfengis við Jón Bald- vin Hannibalsson. Ekki verið afskrifuð styrmir gunnarsson vildi lítið segja við blaðamann en neitaði því þó að lán hans hjá Landsbankanum hefðu verið afskrifuð. DV-mynD SiGtryGGur Ari JÓn bJArki mAGnúSSon blaðamaður skrifar: jonbjarki@dv.is Spölur tapar Spölur ehf., rekstraraðili Hval- fjarðarganganna, tapaði 336 milljónum króna á síðustu 12 mánuðum. Þetta eru mikil umskipti því á sama tímabili í fyrra nam hagnaður af rekstri félagsins 282 milljónum króna. Veggjald síðustu 12 mánaða nemur 979 milljónum króna, en til samanburðar nam gjaldið 1.040 milljónum króna á tólf mánaða tímabili þar á undan. Þessi lækkun nemur 5,8 pró- sentum. Frá 1. júlí til 30. sept- ember á þessu ári tapaði félagið 47 milljónum króna samanborið við 112 milljóna króna hagnað árið á undan. Lítið um kaup og sölu fasteigna Þrjátíu og einum kaupsamningi var þinglýst á höfuðborgarsvæð- inu í síðustu viku samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins. Í sömu viku á síðasta ári var samtals 173 kaupsamn- ingum þinglýst. Heildarvelta með fasteignir í vikunni var 984 milljónir króna sem er tæplega sex sinnum minna en það var á sama tímabili í fyrra. Á Akur- eyri var aðeins 6 kaupsamning- um þinglýst í síðustu viku en þeir voru 15 á sama tíma í fyrra. Heildarveltan á Akureyri var 142 milljónir króna. Kallaðir út til aðstoðar Björgunarsveitarmenn voru kallaðir út til að aðstoða fólk á ferð um Vatnsskarð í gær- kvöldi. Þar var útsýni orðið mjög slæmt vegna snjófjúks og viðbúið að fólk kynni að lenda í vandræðum. Þegar DV fór í prentun í gærkvöldi höfðu engin óhöpp eða slys orðið en nokkur umferð var um skarðið eins og gjarnt er á sunnudögum þegar fólk er á heimleið úr helgarferða- lögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.