Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2008, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2008, Side 13
mánudagur 1. desember 2008 13Fréttir Jólaæðið vestan hafs hófst með ósköpum í stórverslun Wal-Mart: Líf kvenna LítiLs virði Ekkert lát virðist vera á svokölluðum „sæmdardrápum“ í Basra í Írak. Þvert á móti hefur þeim fjölgað um sjötíu prósent á þessu ári miðað við 2007. Þrátt fyrir að í flestum tilfellum liggi ljóst fyrir hver hafi framið slíkt morð er ekki hægt að merkja fjölgun sakfellinga. Fjölskyldufeður leita í auknum mæli til leigumorðingja til að myrða kvenfólk sem að þeirra mati hafa fært skömm yfir fjölskylduna. Líf kvenna í Basra er ekki mikils virði. Svonefndum „sæmdardrápum“ hef- ur fjölgað um sjötíu prósent í Basra í Írak á þessu ári. Stjórnvöld hafa við- urkennt að það sé þeim um megn að stemma stigu við morðum af þessum toga. Sakfellingum vegna þessara morða hefur ekki fjölgað og það sem af er þessu ári hefur áttatíu og ein kona verið myrt fyrir að hafa fært meinta skömm yfir fjölskyldu sína. Aðeins fimm hafa verið sakfelldir. Árið 2007 reiknaðist öryggisnefnd Basra til að fjörutíu og sjö „sæmdar- dráp“ hefðu verið framin, og það ár voru þrír sakfelldir fyrir slík morð. Lögfræðingur einn í bænum heldur því fram að lögreglan haldi hlífiskildi yfir ódæðismönnunum og að leigu- morðingjar tækju jafnvel ekki meira en sem nemur um fimmtán þúsund krónum fyrir að myrða konur í Basra. Vinátta kostaði lífið Morðið á hinni sautján ára Rand Abdel-Qader í apríl vakti hörð við- brögð víða um heim. Í ljósi þess fjölda „sæmdardrápa“ sem framin hafa verið í Basra virðist sem reiði alþjóðasamfélagsins hljóti lítinn hljómgrunn í Írak. Rand Abdel-Qader var myrt af föður sínum vegna þess að hún hafði orðið ástfangin af breskum hermanni í Basra, en þeir fjögur þúsund bresku hermenn sem voru í Basra yfirgáfu bæinn í september síðastliðnum. Rand Abdel-Qader hafði myndað vináttutengsl við hermann sem hún þekkti undir nafninu Paul, og þegar fjölskyldan komst að því kæfði faðir hennar hana og stakk hana ítrekað með hnífi. Faðir hennar, Abdel-Qad- er Ali, var handtekinn en síðar sleppt án ákæru. Eiginkona hans, og móð- ir Rand Abdel-Qader, skildi við hann og fór í felur. En það var skamm- góður vermir því hún var skotin af óþekktum manni nokkrum vikum síðar. Í viðtali við breska blaðið Ob- server sagði faðir Rand Abdel-Qader að lögreglan hefði óskað honum til hamingju með drápið á dóttur hans. Lögreglan sleppir ódæðismönnum Síðan Rand Abdel-Qader var myrt hefur ástandið í Basra aðeins versn- að í þessu tilliti, að sögn lögfræðinga í bænum. Ali Azize Raja’a, írakskur lögfræðingur, hefur sótt mál vegna þrjátíu og tveggja „sæmdardrápa“ síðan 2004. Hann sagði að þrátt fyr- ir nægar sannanir fyrir því hver hefði framið hvert þeirra þrjátíu og tveggja morða, hefði hann aðeins unnið eitt mál. Að mati Ali Azize Raja’a er stærsta málið sú ákvörðun lögregl- unnar að sleppa ódæðismönnum úr haldi, og af hverjum tíu sem eru grunaðir hafa sjö yfirgefið Basra, og lítil eða engin tilraun gerð til að leita þá uppi. Talið er að faðir Rand Abdel-Qad- er sé einn þeirra sem yfirgefið hafa Basra. Hann var í haldi lögreglunn- ar í aðeins tvær klukkustundir. Ekki er loku fyrir það skotið að viðskipta- maður einn, sem hafði lýst föðurn- um sem „hugrökkum“ manni hafi látið fé af hendi rakna til föðurins og tveggja sona, sem afneituðu móður sinni þegar hún mótmælti morðinu á Rand Abdel-Qader. Líf kvenna lítils virði Annar írakskur lögfræðingur, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagði í viðtali við breska blaðið Guardian að feður væru í auknum mæli farnir að leita til leigumorðingja til að fram- kvæma „sæmdardrápin“, sem síðan væru stimpluð sem morð af trúar- legum toga. „Líf þessara kvenna er ekki meira virði en sem nemur eitt hundrað bandaríkjadölum. Þú getur fundið drápsmann á hverri kaffistofu í Basra sem ræðir virði hvers lífs líkt og hann væri að kaupa kjötstykki,“ sagði fyrrnefndur lögfræðingur. Mariam Ayub Sattar, sem berst fyrir réttindum kvenna í Basra, sagði að hver sú kona sem staðin væri að því að ræða við karlmann, sem ekki væri eiginmaður hennar eða ættingi, væri álitin vændisköna og henni refsað. Fyrir tveimur vikum var sýru skvett í andlit þriggja kvenna sem voru staddar á markaði í Basra, eftir að þær höfðu gefið sig á tal við karl- kyns vin, sagði Sattar. Við ramman reip að draga Níu af tólf sjálfboðaliðssamtökum hafa lagst af síðan innrásin var gerð í Írak. Samband kvenréttindasamtaka í Basra neyddist til að hætta starf- semi í kjölfar líflátshótana vegna eft- irmála morðsins á móður Rand Ab- del-Qader í maí. Tvær þeirra kvenna sem höfðu hjálpað móður Rand að dyljast særðust. Mannréttindaráðuneyti Íraks vinnur að nýjum verkefnum sem miða að því að binda enda á kynja- misrétti í landinu, að sögn Hameed Walled. En þar er við ramman reip að draga, sagði Walled, því þó að lögð sé áhersla á jafnrétti kynjanna í skólum landsins hafi það lítið að segja ef for- eldrar kenna hið gagnstæða innan veggja heimilisins. Jólasveinaskortur í Þýskalandi Starfsmaður verslunar Wal-Mart á Long Island var traðkaður til bana eft- ir að dregist hafði að opna verslunina nákvæmlega klukkan fimm að morgni föstudags. Starfsmaðurinn, Jdimytai Damour, af havaískum uppruna, opnaði versl- unina þrjár mínútur yfir fimm og eftir það varð ekki við neitt ráðið. Hundr- uð manna sem höfðu beðið fyrir utan ruddust inn í búðina líkt og gripahjörð, yfir Damour, í kapphlaupi um ryksug- ur og mynddiska á niðursettu verði. Lögreglan hefur farið yfir upptök- ur úr eftirlitsmyndavélum í von um að hægt verði að bera kennsl á þá sem höfðu sig mest í frammi við barsmíðar á hurðir verslunarinnar þegar klukk- an hafði slegið fimm. Wal-Mart, líkt og fjöldi annarra verslana í Bandaríkj- unum, opnaði fyrr en ella á degi sem gengur undir nafninu „Svarti föstudag- ur“, dagurinn eftir þakkargjörðar-há- tíðina, sem markar upphaf jólaversl- unar í landinu. Að sögn lögreglu höfðu um tvö þús- und manns safnast saman fyrir utan verslunina, og sagði Michael Fleming hjá lögreglunni í Nassau-sýslu að fjöld- inn hefði breyst í óðan múg áður en búðin var opnuð, og verið „stjórnlaus“. Aðrir starfsmenn verslunarinnar reyndu að koma Damour til hjálpar, en máttu sín lítils gegn óðum mannfjöld- anum sem hafði ruðst inn með þeim afleiðingum að hurðirnar fóru af löm- unum og Damour tróðst undir. Damour var með lífsmarki þeg- ar sjúkraliðar komu á staðinn en lést skömmu síðar á sjúkrahúsi. Kimberly Cripps, sem varð vitni að atburðinum, sagði að fólkið hefði hag- að sér „eins og villidýr“. Þegar starfsfólk verslunarinn tilkynnti að versluninni yrði lokað vegna dauða starfsmanns- ins hrópaði fólk: „Ég er búinn að bíða í biðröð“. „Það hélt áfram að versla,“ sagði Cripps. Traðkaður niður Wal-Mart Þessi verslun tengist fréttinni ekki beint. Í viðtali við breska blaðið Observer sagði faðir Rand Abdel- Qader að lögreglan hefði óskað honum til hamingju með drápið á dóttur hans. Konur í Írak Líf þeirra er ekki hátt metið í krónum talið. Þórarinn Arnar Sævarsson lögg. fasteignasali, tas@kontakt.is Heildverslun með neytendavörur fyrir konur. Ársvelta 100 mkr. Góður hagnaður. Gæti hentað til flutnings út á land. Útgáfufyrirtæki óskar eftir sameiningu. Fyrirtæki í matvælaframleiðslu óskar eftir sameiningu. Heildverslun með auglýsinga- og gjafavörur óskar eftir sameiningu. Innflutningsfyrirtæki með bílavarahluti óskar eftir sameiningu. Iðnfyrirtæki með innréttingar óskar eftir sameiningu. Heildverslun með álprófíla óskar eftir sameiningu. Þekkt bílasala á besta stað. Ársvelta 65 mkr. Rótgróin heildverslun með tæki og rekstrarvörur fyrir heilbrigðisgeirann. Ársvelta 120 mkr. EBITDA 15 mkr. Meðalstór prentsmiðja óskar eftir sameiningu við traust fyrirtæki með hagræðingu í huga. Ársvelta 170 mkr. EBITDA 30 mkr. Þekkt, lítið hellulagninga- og jarðvinnufyrirtæki með 6 ára góða rekstrar- sögu. Ársvelta 50 mkr. Tilvalið til sameiningar eða fyrir duglegan mann sem vill fara í eigin rekstur. Markaðsstjóri-meðeigandi óskast að bílaumboði. Leiðandi hestavöruverslun með mjög góða staðsetningu. Ársvelta 100 mkr. Stórt iðnfyrirtæki. Ársvelta 600 mkr. • Eitt vinsælasta vínveitingahús landsins. Á • Vitum af fjölda fyrirtækja í öllum atvinnugreinum sem vilja skoða sameiningar með hagræðingu í huga. Stórt iðnfyrirtæki. Ársvelta 600 mkr. • Eitt vinsælasta vínveitingahús landsins. Ársvelta 250 mkr. EBITDA 90 mkr. • Engar skuldir. Mjög hagstætt dæmi fyrir fjárfesta. Framleiðslu- og þjónustufyrirtæki sem þjónar fiskvinnslu og • matvælafyrirtækjum. Ársvelta 50 mkr. EBITDA 6 mkr. Stöðugur vöxtur. Rótgróið bílaþjónustufyrirtæki. Ársvelta 100 mkr. Auðveld kaup fyrir • duglegan mann. Heildverslun með neytendavörur fyrir konur. Ársvelta 100 mkr. Góður • na ur. Gæti hentað til flutnings út á land. Innflutnings- og framleiðslufyrirtæki. Ársvelta 620 mkr. Skuldsett með • hagstæðu erlendu láni. Rótgróin heildverslun með tæki og rekstrarvörur fyrir heilbrigðisgeirann. • Ársvelta 120 mkr. EBITDA 15 mkr. Innflutnings- og þjónustufyrirtæki með rekstrarvörur. Ársvelta 180 mkr. • EBITDA 40 mkr. Jens Ingólfsson rekstrarhagfræðingur, jens@kontakt.is Gunnar Svavarsson viðskiptafræðingur, gunnar@kontakt.is Brynhildur Bergþórsdóttir rekstrarhagfræðingur, brynhhildur@kontakt.is Þórarinn rn r S v rsson lö g. fasteignasali, tas@kontakt.is Höskuldur Frímannsson rekstrarhagfræðingur, hoskuldur@kontakt.is Sigurður A. Þóroddsson hdl. lögg. fasteignasali, sigurdur@kontakt.is * Töffari á Akureyri * Skítafýlubombur í Borgarbíói * Mætti með saltfiskinn á ballið * Rakvélablöðin borðuð með bestu lyst * Lás opnaður með augnaráðinu * Náði úrum, veskjum og brjósthaldara * Uppskurður með berum höndum * Morðhótun * Löggubíl ekið undir áhrifum * Hjartastopp í sjónvarpsviðtali holar@simnet.is – www.holabok.is Einlæg, áhugaverð, fyndin, átakanleg!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.