Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2008, Blaðsíða 9
mánudagur 1. desember 2008 9Fréttir
Jólaljósin kviknuðu hvert á fætur
öðru um helgina þegar kveikt var
á ljósum jólatrjáa víðs vegar um
landið. Dorrit Moussaieff forsetafrú
tendraði jólaljósin í Kringlunni og
Hallgrímur Helgason rithöfundur
frumflutti kvæði sitt um hana Grýlu
þegar kveikt var á Óslóartrénu á
Austurvelli í Reykjavík.
Safnað fyrir málstaðinn
Fjöldi fólks var samankominn hvar
þar sem kveikt var á ljósum jólatrjáa
um helgina. Margir notuðu tækifærið
til að hefja safnanir til styrktar þeim
sem minna mega sín. Þannig hófst
jólapakkasöfnun Kringlunnar sem
unnin er í samvinnu við Fjölskyldu-
hjálp Íslands og Mæðrastyrksnefnd
og sömu sögu er að segja af jólasöfn-
un Hjálparstofnunar kirkjunnar. Þá
kynnti Styrktarfélag lamaðra og fatl-
aðra árlega jólaóróasölu sína þegar
kveikt var á jólatrénu á Austurvelli.
Matthías Matthíasson, fimm ára
gamall, kveikti ljósin á jólatrénu á
Austurvelli. Þar voru Grýla og jóla-
sveinarnir mætt til að skemmta
yngstu kynslóðinni í kuldanum sem
setti mark sitt á hátíðahöldin víðast
hvar.
Von um betri framtíð
Karl Sigurbjörnsson biskup fjall-
aði um efnahagsmálin og áhrifin á
landsmenn í predikun sinni í gær.
„Látum aðventuljósin verða vonar-
ljós um betri framtíð á Íslandi! Betra
samfélag, með styrkari stoðum und-
ir efnahag og atvinnu, betra við-
skiptasiðferði, og enn traustara ör-
yggisnet velferðarinnar. Það munum
við áorka með þeim mannkostum
sem íslensk þjóð hefur jafnan metið
mest: heiðarleika, iðjusemi, réttsýni
og umhyggju fyrir náunganum.“
Biskup minntist einnig á jóla-
söfnun Hjálparstofnunar kirkjunn-
ar í predikun sinni. „Frá öndverðu
hefur það verið órofa tengt jóla-
haldi kristinna manna að tjá þann
þakkarhuga með því að auðsýna
örlæti og umhyggju, góðvild og
gjafmildi öðrum, og það ekki bara
sínum nánustu. Jólasöfnun Hjálp-
arstarfs kirkjunnar, sem hefst í dag,
gefur tækifæri til þess. Ég vil þakka
öllum þeim fjölmörgu sem leggja
fram fjármuni og aðstoð með marg-
víslegu móti á þessari jólaföstu eins
og þeim fyrri.“
JólalJós og kuldaboli
Brynjólfur Þór GuðmundSSon
fréttastjóri skrifar: brynjolfur@dv.is
„Ég vil þakka öllum
þeim fjölmörgu sem
leggja fram fjármuni
og aðstoð með marg-
víslegu móti á þessari
jólaföstu eins og þeim
fyrri.“
Börnin syngja barnakór hóf upp
raust sína og söng jólalög þegar
kveikt var á jólatrénu í Kringlunni.
mynd SiGtryGGur Ari
fjör í Kópavogi margir mættu
þegar kveikt var á ljósum
jólatrésins í Kópavogi þar sem
einn jólasveinninn brá upp
sólgleraugum í birtu jólaljósanna.
Ljósin voru kveikt á jólatrjám víðs vegar um landið um helgina. Á sama tíma var farið af stað með margvísleg-
ar fjársafnanir til styrktar þeim sem minna mega sín. dorrit moussaieff forsetafrú kveikti á jólatré í Kringlunni
en fimm ára piltur tendraði jólaljósin á Austurvelli.
Safna pökkum Fjölmargar safnanir hófust í gær. Í
Kringlunni hóf forsetafrúin jólapakkasöfnun Kringlunn-
ar, Hjálparstarf kirkjunnar hóf jólasöfnun sína og
styrktarfélag lamaðra og fatlaðra selur jólaóróa.
mynd SiGtryGGur Ari
jólin koma mörgum finnst
ómissandi við upphaf aðventu að
fylgjast með þegar ljósin eru
tendruð á jólatrénu á austurvelli.
mynd SiGtryGGur Ari