Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2008, Qupperneq 4
mánudagur 1. desember 20084 Fréttir
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Myllusetur kaupir útgáfurétt að Viðskiptablaðinu rétt fyrir gjaldþrot:
Óvissa um laun og skuldir
Með kaupum Mylluseturs á útgáfu-
rétti Viðskiptablaðsins er allt útlit fyrir
að þeir starfsmenn, sem misstu vinn-
una þegar Framtíðarsýn fór í greiðslu-
stöðvun, fái ekki laun sín á uppsagn-
arfrestinum greidd.
Ábyrgðarsjóður launa greiðir að
hámarki 345 þúsund krónur á mán-
uði í þrjá mánuði af vangreiddum
launum starfsmanna og launum í
uppsagnarfresti hafi fyrirtæki orðið
gjaldþrota.
Fyrir Myllusetri fer Haraldur Jo-
hannesen ritstjóri og fullyrt er að Ró-
bert Wessmann sé einn hinna nýju
eigenda. Aðeins um fjórðungur starfs-
manna heldur vinnu sinni.
„Framtíðin lítur vel út, við erum
komin á lygnan sjó eftir þessar breyt-
ingar og eftir þau óveður sem öll fyrir-
tæki á landinu eru í. Við erum allavega
komin í gegnum mesta brimskafl-
inn ef við getum sagt sem svo,“ segir
Haraldur Johannessen, ritstjóri Við-
skiptablaðsins. Haraldur vill ekki tjá
sig um uppsagnir hjá Framtíðarsýn
eftir að fyrirtækið fór í greiðslustöðv-
un. Hann segir þau mál ekki vera á
sínum vegum. Aðspurður hvað verði
um skuldir Framtíðarsýnar, vill hann
heldur ekki svara því.
Arna Schram, fréttastjóri á Við-
skiptablaðinu og formaður Blaða-
mannafélags Íslands, segir það öm-
urlegt ef starfsmenn, sem sagt var
upp störfum eftir að Framtíðarsýn
fór í greiðslustöðvun, fái ekki laun
sín greidd. Flest bendir nú til þess að
starfsmenn fái ekki laun sín um næstu
mánaðamót. „Ég veit ekki hvort félag-
ið er gjaldþrota og það er ekki hægt að
senda starfsmenn yfir á Ábyrgðarsjóð
launa ef félagið er ekki gjaldþrota,“
segir hún.
Arna segir að Blaðamannafélagið
muni að sjálfsögðu standa með sínu
fólki og gera kröfur um laun starfs-
mannanna. Engu skiptir að formað-
ur félagsins sé jafnframt einn þeirra
starfsmanna sem fengu vinnu hjá
nýjum útgefendum blaðsins.
Pétur Gunnarsson, fyrrver-
andi fréttastjóri á Viðskiptablað-
inu, segir mörgum lögfræðilegum
spurninum ósvarað. „Ef Fram-
tíðarsýn fer í gjaldþrot mun
skiptastjóri þess þrotabús þurfa
að samþykkja söluna á blaðinu
út úr búinu. Hann getur látið rifta söl-
unni. Ég dreg alls ekkert í efa að verið
sé að reyna að gera verðmæti úr eign-
um félagsins. En eignirnar voru ekki
auglýstar opinberlega og það liggur
ekki fyr-
ir á hvaða verði þær
voru seldar,“ segir hann.
jonbjarki@dv.is
valgeir@dv.is
Þrátt fyrir væringar á fjölmiðlamarkaði og lausafjárvandræði Árvakurs tóku starfs-
menn sig til og dönsuðu konga á laugardaginn. Útgáfan hefur fengið viku til þess að
auka hlutafé sitt, en það sem fyrir var, verður fært niður í núll. Einar Sigurðsson, for-
stjóri Árvakurs, er bjartsýnn á framtíðina og finnst góður andi starfsmanna hreint út
sagt magnaður.
DÖNSUÐU KONGA
Í SKUGGA KREPPU
„Það er rosalega góður andi hjá
starfsmönnunum,“ segir Einar
Sigurðsson, forstjóri Árvakurs, en
starfsmenn skemmtu sér á jóla-
hlaðborði í Iðusölum á laugardag-
inn, í skugga fjárhagsvandræða
fyrirtæksins.
Árvakur sendi frá sér yfirlýs-
ingu í gær þar sem kom fram að
fyrirtækið, í samvinnu við Glitni,
ætli að vinna að framtíðarlausn út
vikuna, en það mun meðal ann-
ars fela í sér að núverandi hluta-
fé verði fært niður í núll. Bankinn
mun ekki afskrifa skuldir Árvakurs
gagnvart Glitni, en þær eru um þrír
milljarðir króna. Að sögn Einars er
markmið bankans og Árvakurs að
breikka félagið, það er, að fá fleiri
hluthafa inn í Árvakur.
Dönsuðu konga
Það var á laugardaginn sem starfs-
menn Árvakurs gerðu sér glaðan
dag í skugga lausafjárvandræða
Árvakurs. Þá mættu 140 manns í
Iðusali og gerðu sér dagamun. Í
staðinn fyr-
ir dýr
skemmitatriði spilaði starfsmað-
ur Ávakurs á gítar og uppskar
mikinn fögnuð. Þá dönsuðu all-
ir starfsmenn konga þrátt fyrir
að það væri raunveruleg hætta á
því að starfsfólk fengi ekki greidd
laun um mánaðamótin. Að sögn
Einars var þetta magnað allt sam-
an, eins og hann orðar það, og
góður andi hópsins nær einstak-
ur að hans mati miðað við mikl-
ar sviptingar í fjölmiðlaheiminum
sem Árvakur fer svo sannarlega
ekki varhluta af.
Fara ekki í greiðslustöðvun
„Við komumst hjá greiðslustöðv-
un,“ segir Einar um sameig-
inlegt markmið Ár-
vakurs og
Glitnis
aðspurð-
ur hvort
félag-
ið fari í greiðslustöðvun í vikunni.
Hann segir að til standi að breikka
hluthafahópi Árvakurs en nú er
Björgólfur Guðmundsson stærstur
eigenda Árvakurs. Á laugardaginn
síðasta kom fram í Morgunblað-
inu sjálfu að hópur starfsmanna
innan Árvakurs auk eigenda út-
gáfufélagsins Valtýs hafi hug á að
kaupa ráðandi hlut í útgáfu Morg-
unblaðsins. Sjálfur segir Einar
að ferlið eigi að vera gegnsætt og
opið. Vonir standa til að hluthöf-
um verði fjölgað verulega.
Skuldir ekki afskrifaðar
„Það er búið að vinna að þessu
öllu saman undanfarið,“ segir Ein-
ar aðspurður hvenær ákvörðun
um vikufrest til þess að fá hluta-
fé inn í Árvakur var tekin. Hluti af
tilraunum þeirra til þess að fá nýtt
fé inn í Árvakur mun ekki fela í sér
afskriftir skulda félagsins gagnvart
bankanum sem eru um þrír millj-
arðar.
Eins og staðan er nú kappkost-
ar Árvakur að greiða starfsmönn-
um laun fyrir síðasta mánuð. Eins
og staðan var á föstudaginn var
ekki hægt að greiða öllum laun,
þeir launalægstu fengju fyrstir
sín laun, og svo þeir sem eru með
hærri laun.
Útgáfa í 95 ár
„Útgáfa blaðsins helst óbreytt,“
segir Einar þegar hann er spurður
hvort það sé mögulegt að rof verði
á útgáfu blaðsins sem hefur kom-
ið sleitulaust út í níutíu og fimm ár.
Ástæðan fyrir mikilli skuldaaukn-
ingu útgáfunnar er verulegt geng-
isfall krónunnar.
„Útgáfa blaðsins helst
óbreytt.“
valur grEttiSSon
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Árvakur Útgáfa morgun-
blaðsins verður óbreytt, en
blaðið hefur komið sleitulaust
út í níutíu og fimm ár.
Ólafur Þ. Stephensen Dansaði
konga á jólahlaðborði
Árvakurs síðasta laugardag.
viðskiptablaðið selt „Þetta er
svipuð staða og var uppi þegar
Fréttablaðið varð gjaldþrota árið
2002. Þá voru eignir seldar út úr
félaginu en stór hluti af
laununum fór bara yfir á ríkið,“
segir Pétur gunnarsson.
LÍÚ vill nýjan
gjaldmiðil
Stjórn LÍÚ vill að íslensk stjórn-
völd kanni nú þegar kosti þess
að taka einhliða upp annan
gjaldmiðil í stað krónunnar.
Í greinargerð með áskorun LÍÚ
til stjórnvalda segir að koma þurfi
í veg fyrir að fyrirtæki og heimili
komist í þrot vegna hárra vaxta og
verðbólgu auk þess sem afstýra
verði stórfelldu atvinnuleysi. Þar
segir jafnframt að háir vextir hafi
leitt til þess að krónan hafi verið
allt of hátt skráð um margra ára
skeið og það leitt til skipbrots pen-
ingamálastefnunnar.
Forsvarsmenn LÍÚ hafa hafn-
að öllum hugmyndum um aðild
að Evrópusambandinu.
Tuttugu þúsund
króna hækkun
Starfsmenn sveitarfélaga, inn-
an aðildarfélaga Starfsgreina-
sambandsins, fá 20.300 króna
launahækkun. Samkomulag
náðist um nýjan kjarasamn-
ing milli Launanefndar sveit-
arfélaga og Starfsgreinasam-
bandsins fyrir hönd fjórtán
stéttarfélaga. Samningurinn
er til skamms tíma. Hann tek-
ur gildi í dag og rennur út 31.
ágúst á næsta ári.
Lokað á erlenda
fjárfestingu
Stjórnvöld hafa lokað á er-
lenda fjárfestingu á Íslandi
með lögum um höft á gjald-
eyrisviðskiptum. Ann-
að getur Vilhjálmur Þor-
steinsson, stjórnarformaður
Verne Holdings, ekki lesið
úr lögunum. Verne Holdings
hefur stefnt að því að opna
netþjónabú á Íslandi. „Ef
Seðlabankanum er alvara sé
ég ekki betur en að menn geti
pakkað saman og gleymt því
verkefni, og nýja sæstrengn-
um Danice í leiðinni. Er þetta
það sem íslenskt efnahags-
líf þarf á að halda um þessar
mundir? Eða er þetta enn eitt
dæmið um mistök Seðla-
banka? Hvernig útskýrir
maður svona rugl fyrir út-
lendingum? spyr Vilhjálmur.
1 Komdu þér í jólaskapið
dV bendir á kvikmyndir sem eru til
þess fallnar að koma fólki í jólaskap.
2 Hundruð borga fyrir að sjá
grasker sundrast
Hundruð bandaríkjamanna borga
fyrir að heyra hvernig hljóð
myndast þegar grasker fellur á
steypu.
3 Segir dómstóla hafa spillta
ímynd
birkir Jón Jónsson, þingmaður
Framsóknar, segir að efla þurfi
traust almennings á dómstólum.
4 „Pollrólegt eins og alltaf“
aðfaranótt sunnudags var
tiltölulega róleg hjá lögreglu.
5 Beyoncé háð háhæluðum
skóm
söngkonan beyoncé stenst ekki
freistinguna að kaupa rándýra skó.
6 veldur skyndibitafæði
alzheimers?
nýlegar rannsóknir benda til þess
að skyndibitafæði geti valdið
alzheimer.
7 Heimsfrægur píanóleikari í
Hafnarborg
Heimsfrægi píanóleikarinn, Philip
Jenkins, lék í Hafnarborg.
mest lesið á dV.is