Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2010, Side 14
Ef Glitnir, Landsbankinn og Kaupþing
hefðu verið bandarískir bankar hefðu
gjaldþrot þeirra komist á spjöld sög-
unnar sem allra mestu gjaldþrotin í
sögu Bandaríkjanna. Gjaldþrot Kaup-
þings var töluvert stærra en hið fræga
gjaldþrot stórfyrirtækisins Enron sem
vakti heimsathygli. Á þessu hefur Jared
Bibler, rannsakandi á verðbréfasviði
Fjármálaeftirlitsins, vakið athygli.
Áður en bankarnir Lehman Broth-
ers og Washington Mutual og iðnris-
inn General Motors féllu hafði að-
eins eitt bandarískt gjaldþrot verið
stærra en fall Kaupþings, en það var
gjaldþrot bandaríska fjarskiptarisans
WorldCom árið 2002.
Lítið verið rætt
Jared Bibler benti á það í grein í
Morgunblaðinu á dögunum að ís-
lenska efnahagshrunið og fall bank-
anna hefði jafngilt 140 Northern
Rock-áföllum í Bretlandi og ef 300
bankar á stærð við Lehman Brothers
hefðu hrunið samtímis.
Sigurður G. Valgeirsson, fjöl-
miðlafulltrúi Fjármálaeftirlitsins,
segir að Jared Bibler hafi tekið eftir
því að fall íslensku bankanna hafði
lítið verið sett í alþjóðlegt samhengi í
íslenskri umræðu þrátt fyrir að nokk-
ur tími sé nú liðinn frá falli þeirra.
„Eins og Jared bendir á er fall bank-
anna þriggja alþjóðlega sögulegur
viðburður og því þykir honum mik-
ilvægt að Íslendingar geti sett það í
alþjóðlegt samhengi,“ segir Sigurður.
Franski ráðherrann hló
Þór Saari, hagfræðingur og þingmað-
ur Hreyfingarinnar, segir að mik-
ill munur sé á eftirmála hrunsins í
Bandaríkjunum og á Íslandi. „Við höf-
um ekki getað rannsakað gjaldþrot-
in mikið. Bandaríkjamenn eru miklu
stífari, handtaka fólk alveg um leið
og kyrrsetja eigur þess. Ég mun lengi
muna eftir heimsókn Pierre Lello-
uche, Evrópumálaráðherra Frakka,
sem kom hingað til lands í fyrra.
Hann var alveg forviða yfir hruninu
okkar og spurði fyrst: „Hvað er búið
að handtaka marga?“ „Engan,“ var
svarið. „Hvað er búið að frysta eigur
margra?“ „Engra,“ sögðum við. „Af
hverju ekki?“, spurði Lellouche stein-
hissa. „Því við búum í réttarríki,“ svör-
uðu Íslendingar. Þá fór hann bara að
hlæja karlinn og hló og hló,“ segir Þór.
„Umhverfið var eins og í villta vestr-
inu, lögin náðu ekki utan um menn.“
Hefðum átt að biðja um aðstoð
„Heildarkostnaðurinn við hrunið er
ekki nærri því kominn fram. Maður
veit ekkert hvað menn eru að spá í
tilraunum til að endurheimta eitt-
hvað af verðmætum bankanna. Það
verður mikið um afskriftir og allt fer
eftir því hversu duglegir kröfuhaf-
arnir eru,“ segir Þór Saari. Hann tel-
ur að stjórnvöld á Íslandi hefðu átt
að beita allt öðrum ráðum frá byrjun.
„Það fyrsta sem ríkisstjórn Íslands
hefði átt að gera eftir hrun, var að fara
til nágrannalandanna og segja: „Hér
var algjört hrun, miklu stærra en við
ráðum nokkurn tímann við að rann-
saka eða leysa úr. Getið þið hjálpað
okkur að ná í alla þessa peninga aft-
ur - eða eins mikið og hægt er - til að
láta renna til kröfuhafa beint?““ seg-
ir Þór Saari. „Menn hefðu átt að við-
urkenna vanmátt sinn í þessu máli,
sem er algjör. Tölurnar um gjaldþrot
bankanna eru ótrúlegar.“
Gereyðingarvopn eru bönnuð
Þórólfur Matthíasson, prófessor í
hagfræði við HÍ, segir hrunið á Ís-
landi alveg sér á báti í samanburði
við önnur lönd sem glímt hafa við
fjármálakrísur. „Lærdómurinn sem
við hljótum að draga af þessu hlýt-
ur að vera á eftirlitssviðinu. Við leyf-
um fólki að kaupa fuglabyssur og
eitthvað þess háttar en við leyfum
fólki ekki að kaupa gereyðingarvopn.
Ástæðan er að við erum að takmarka
þann skaða sem einstaklingur getur
valdið öðrum. Almannavaldið verð-
ur að taka í taumana, sem greinilega
brást á Íslandi,“ segir Þórólfur og seg-
ir að bandaríska fjármálakerfið sé
mjög ólíkt því sem hér var. „Í Banda-
ríkjunum eru sveitir sem rannsaka
efnahagsbrot mjög hratt og örugg-
lega. Það er búið að stinga Madoff í
steininn. Enda ráða þeir yfir góðu
eftirlitskerfi, en við kunnum ekki
neitt á þessu sviði,“ segir Þórólfur.
14 FÖSTUDAGUR 19. mars 2010 FRÉTTIR
2001 2002
2 3 6 101
Lehman Brothers
Holdings Inc
Eignir: 691 milljarður dollara Washington Mutual Inc
Eignir: 328
milljarðar dollara
Íslensku
bankarnir þrír
Eignir: 182
milljarðar
dollara
Kaupþing
Banki hf.
Eignir: 83 millj-
arðar dollara
8
Enron Corp
Eignir: 66
milljarðar
dollara
9
Conseco
Inc
Eignir: 61
milljarður
dollara
Lands-
banki
Íslands hf.
Eignir: 50
milljarðar
dollara
Glitnir
Banki hf.
Eignir: 49 millj-
arðar dollara
11
2008
GJALDÞROT Stærstu
gjaldþrot í Bandaríkjunum til
samanburðar við Ísland.
4
Worldcom
Inc
Eignir: 104
milljarðar
dollara
HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is
Menn hefðu átt að viðurkenna
vanmátt sinn í þessu
máli, sem er algjör.
Tölurnar um gjaldþrot
bankanna eru ótrúlegar.
Vanmátturinn algjör Þór Saari segir
að Íslendingar hafi ekki haft bolmagn til
þess að takast á við bankahrunið.
Eftirlitið brást Þórólfur Matthíasson
segir að Íslendingar hafi ekkert kunnað
fyrir sér í eftirliti með fjármálakerfinu.
MESTU ÁFÖLLIN
Gjaldþrot bandaríska Lehman Brothers-
bankans er það mesta í sögunni. Samt hefðu
þrjú hundruð slíkir bankar þurft að fara á
hausinn til að áfallið vestan hafs jafnaðist
á við hrun íslenska bankakerfisins. Fall
North ern Rock-bankans í Bretlandi var mik-
ið áfall fyrir þarlend stjórnvöld og almenn-
ing en hverfur í samanburði við Ísland.
M
Y
N
D
K
A
R
L P
ETER
SSO
N