Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2010, Qupperneq 42

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2010, Qupperneq 42
RAÐMORÐINGINN REG John Reginald „Reg“ Halliday Christie var breskur raðmorðingi sem á fimmta og sjötta áratug síðustu aldar myrti að minnsta kosti sex konur. Hann ólst upp í slæmu sambandi við strangan og fá- skiptinn föður sem sýndi börnum sínum litla ástúð. Fimm systur Christies voru ráðríkar og því naut hann ofverndar móður sinnar í bernsku. Allt þetta gróf undan sjálfsöryggi Christies og var hans minnst sem und- arlegs og einræns drengs, sem ekki naut mikilla vinsælda. Lesið um raðmorðingjann Reg í næsta helgarblaði DV. MORÐIÐ Í GÖMLU Gamla Tranche-myllan líkist mest einmana könguló þar sem hún stendur yfir Loire-dalnum í Montsoreau í Frakklandi. Áður fyrr hugsuðu íbúar svæðisins til myllunnar með hlýhug en morð á unglingsstúlku breytti hlýhugnum í hrylling. Gamla Tranche-myllan í Loire-dal í Frakklandi hafði löngum skipað sérstakan sess í hugum íbúa svæð- isins. Löngu yfirgefin og búin að ljúka verki sínu minnti myllan á eldri tíð og gnæfði líkt og könguló yfir dalnum. En ímynd myllunnar í hugum íbúanna átti eftir að breyt- ast. Sagan hófst fimmtudaginn 23. október 2008 þegar Véronique, einstæð móðir sem starfaði í verk- smiðju sem frysti matvörur, þurfti fyrirvaralítið að fara á tveggja daga námskeið. Til að þrettán ára dóttir henn- ar, Pricillia, þyrfti ekki að vera ein heima fékk Véronique Lionel, átj- án ára bróður Pricilliu, til að vera hjá henni. En margt fer öðruvísi en ætl- að er og Lionel ákvað að eyða fyrri nóttinni af tveimur hjá kær- ustu sinni. Þegar Lionel kom heim morguninn eftir var Pricilliu hvergi að finna og eftir að hafa leitað af sér allan grun hafði Lionel samband við móður þeirra. Lögreglan kölluð til Véronique brást skjótt við og haft var samband við alla nágranna en enginn hafði séð Pricilliu og að lokum var haft samband við lög- regluna. Fyrsta spurningin sem lögreglan velti upp var að sjálf- sögðu hvort Pricillia hefði strokið að heiman. Þeim vangaveltum var strax vísað á bug því Pricillia var þekkt fyrir að vera með eindæm- um heimakær. Lögreglan fór þá yfir blogfærslur Pricilliu og reyndi að henda reiður á hvað gerðist síðustu kukkutím- ana áður en hún hvarf. Í ljós kom að Pricillia hafði ekki verið í tölvu- sambandi við neinn og enginn hafði haft samband við hana, en undanfarnar vikur hafði hún feng- ið yfir tvö hundruð heimsóknir á vefsvæði sitt og gert þau mistök að gefa upp fullt heimilisfang. Hringt um miðja nótt Pricillia hafði ekki verið í skólan- um á fimmtudeginum, en farið yfir námsefnið heima við. Árla kvölds hafði hún hitt nokkra krakka úr ná- grenninu og drukkið eitt bjórglas áður en hver fór til síns heima. Um tíuleytið hringdi vinkona hennar og spurði hvort hún ætl- aði í skólann daginn eftir en Pric- illia hafði ákveðið að nota tækifær- ið þegar mamma hennar var að heiman og næla sér í einn frídag frá skóla í viðbót. Enginn getur með fullri vissu sagt til um hvað gerðist síðar, en samkvæmt símtalaskrá var hringt í hana klukkan tvö um nóttina. En hver hringdi? Var símtalið nógu áhugavert til að Pricillia færi á fæt- ur, klæddi sig og hyrfi að lokum út í nóttina? Pricillia fundin Michael, frændi Pricilliu, hafði á sunnudegi ekkert fengið að vita um hvarf frænku sinnar. Hann hafði reyndar undrast að hún hefði ekki komið um morguninn eins og hennar var vandi til að hjálpa hon- um með grænmetisbásinn sem hann var með við bæjartorgið. Það var ekki fyrr en bareigandi handan torgsins kom til Michaels að hann fékk að vita að frænku hans væri saknað. Um hádegisbil þegar Michael var að taka saman föggur sínar var fjölda lögreglubíla ekið hjá með blikkandi ljós og vælandi sírenur. Lögreglubílunum var ekið í átt að gömlu myllunni og orðrómur þess efnis að Pricillia væri fundin barst með hraði um torgið. Myrt við mylluna Pricillia fannst látin á steingólfi myllunnar, hálfnakin og nærfata- laus. Andlit hennar var þakið skrá- mum og hafði líkið verið þakið rusli. Pricilliu hafði verið nauðgað, hún lamin og síðan kyrkt. Við fyrstu sýn virtist sem morð- inginn hefði lokkað Pricilliu eitt- hvert annað og myrt hana, en síð- an flutt líkið að gömlu myllunni og fleygt því á meðal tómra bjórdósa, vindlingastubba og annars rusls sem unglingar höfðu skilið þar eft- ir. Við nánari athugun kom í ljós að Pricillia hafði verið dregin beint til myllunnar um miðja nótt og að lokum myrt. Þennan sunnudag var þröngt á þingi við mylluna. Lögreglan og forvitnir bæjarbúar stóðu sorg- bitnir undir gömlu myllunni sem var þögul um síðustu stundir Pric- illiu. Fólkið var, líkt og myllan, þög- ult og furðu lostið yfir grimmileg- um örlögum unglingsstúlkunnar. Af ráðnum hug Næstu daga kannaði lögreglan alla þá sem heimsótt höfði bloggsíðu Pricilliu, en allir reyndust hafa fjar- vistarsönnun. En að lokun komst lögreglan, með aðstoð frá rann- sóknarblaðamanni, á spor mögu- legs morðingja. Michel var tuttugu og eins árs vinur Lionels, bróður Pricilliu, og var á sakaskrá. Michel hafði vitað að bæði móðir Pricilliu og bróðir yrðu að heiman þessa örlagaríku nótt. Árásin á Pricilliu var skipu- lögð; Michel hafði bankað upp á hjá Pricilliu staðráðinn í að koma fram vilja sínum. Michel mun hafa farið með Pricilliu nauðuga viljuga upp að gömlu myllunni og nauðg- að henni og kyrkt og síðan fleygt henni líkt og skarni á kalt gólfið. Gamla myllan vekur ekki leng- ur upp sömu tilfinningar og áður hjá íbúum svæðisins. Í stað þess að ylja þeim um hjartarætur vekur hún upp hroll og eru margir þeirr- ar skoðunar að best færi á því að hún hyrfi af yfirborði jarðar. UMSJÓN: KOLBEINN ÞORSTEINSSON, kolbeinn@dv.is 42 FÖSTUDAGUR 19. mars 2010 SAKAMÁL MYLLUNNI Þegar Lionel kom heim morg- uninn eftir var Pricilliu hvergi að finna og eftir að hafa leitað af sér allan grun hafði Lio nel samband við móður þeirra. Tranche-myllan og Pricillia Morðingi unglingsstúlkunnar huldi líkið rusli í gömlu myllunni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.