Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2010, Qupperneq 48

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2010, Qupperneq 48
MINNINGARSÍÐUR Á FACEBOOK Aðstandendur þeirra sem hverfa yfir móðuna miklu lenda oft í stökustu vandræðum þegar kem- ur að því að breyta eða eyða þeim síðum sem hinn látni hefur sett upp í gegnum tíðina. Það getur verið mjög óviðkunnanlegt ef Facebook héldi til dæmis áfram að stinga upp á hinum látna sem mögulegum vini. Facebook býður nú aðstandendum að breyta síðum látinna í eins konar minningarsíður í stað þess að eyða þeim. Þar er hægt að lesa um hinn látna og skrifa minningarorð á Vegg síðunnar. IPAD-ÆÐI Á SÖLUVEF Fyrirfram pantanir á iPad-tölvu Applefyrirtækisins sem kemur á markað í aprílbyrjun ætla að slá öll met. Talið er að tuttugu til tuttugu og fimm þúsund pantanir hafi verið gerðar á hverjum klukkutíma frá því að fyrirtækið opnaði fyrir söluna. Ef miðað er við ódýrari gerð tölvunnar þýðir það að veltan er um tíu milljónir Bandaríkjadala á klukku- stund. Fyrsta sending tölvunnar verður því hreinlega uppseld nú um helgina miðað við ásóknina. SKILABOÐ OG KYNLÍF Um helmingur allra þeirra sem vafra á netinu skoðar uppfærslur og skilaboð á Facebook og Twitter eftir að þeir eru komnir í rúmið, á nóttunni og strax eftir að þeir vakna á morgnana. Þetta er niðurstaða nýrrar bandarískrar könnunar um netnotkun en þar má einnig finna hina athyglisverðu niðurstöðu að um ellefu prósent undir 25 ára aldri finnst það allt í lagi að gera hlé á samförum vegna skilaboða úr spjallforriti, síma eða tölvu. FINNDU VININA ÚTI Á LÍFINU Ný þjónusta fyrir þá sem eru mikið úti á lífinu er að ryðja sér til rúms í Bandaríkjunum. Vinahópar sem hittast reglulega um kvöld og helgar geta nú skráð sig í sameiginlega vefþjónustu sem byggist á staðsetningartækni fyrir snjallsíma. Tæknin virkar einfaldlega þannig að áður en haldið er út á lífið loggar maður sig inn í þjónustuna og sjá þá útvaldir vinir og kunningjar hvar þú ert staddur. Þjónustan hefur öll veitinga- og öldurhús skráð í gagnagrunn og getur sýnt á korti hvar hver og einn í vinahópnum er staddur þá stundina. UMSJÓN: PÁLL SVANSSON, palli@dv.is Það hefur færst í vöxt á síðustu árum að hýsa myndaalbúm fjölskyldunnar á vefnum. Með tilkomu samskipta- vefja er það orðinn hluti af daglegri tilveru okkar að geta deilt mynd- um og myndskeiðum úr lífi okkar. Kosturinn við að nýta sér veflæga myndþjónustu er að myndirnar eru öruggari, ónýtur harðdiskur í heim- ilistölvunni hefur orðið til þess að margir hafa glatað stórum hluta fjöl- skyldumyndanna eftir að stafræn- ar ljósmyndir tóku við af filmunni. Flestar veflægar ljósmyndaþjónust- ur bjóða nú upp á að notandinn geti gert sína eigin ljósmyndabók sem síðan er prentuð, bundin og send í pósti til viðkomandi. DV skoðaði nokkrar af stærstu fríu ljósmyndasíðunum sem í boði eru í dag og bar þær saman við myndþjónustuna á Facebook. Flickr Ljósmyndaþjónustan Flickr sem er í eigu Yahoo er orðin nokkurra ára gömul og ein vinsælasta ljósmynda- þjónustan á vefnum. Það er ekki síst því að þakka að Flickr hefur gert öðrum aðilum auðvelt að samhæfa þjónustu sína við forrit, snjallsíma og bloggsíður. Flickr hefur einnig sérhæfð forrit, bæði fyrir Windows og Mac OSX, sem eru ætluð ein- göngu til að senda myndir úr tölvu viðkomandi á vefsíðuna. Hver sem er getur stofnað frían aðgang hjá Flickr, aðeins þarf staðfest netfang. Pro-aðgangur kostar 24,95 doll- ara á ári og gefur kost á ótakmörk- uðum mynda- og myndskeiðs- fjölda, hver mynd er þó takmörkuð við 20MB. Í Pro-aðgangi er einnig ótakmörkuð bandvídd, aðgangur að myndum í fullri stærð og upplausn, auglýsingafrítt vefsvæði og hægt að setja myndir í allt að 60 flokka. Picasa Web Albums Picasa er í eigu Google og til að tengjast þjónustunni þarf að verða sér úti um Google ID eða Gmail-net- fang. Þeir sem þekkja iPhoto ættu að kannast við viðmót Picasa-forritsins því þau eru mjög lík. Picasa fríþjón- ustan hefur engar takmarkanir aðrar en þær að geymslurýmið miðast við 1GB. Hægt er að fá 20GB geymslu- rými fyrir 5 dollara á ári sem er síðan deilt milli Picasa, Gmail og Google Docs. Geymslurými er hægt að auka allt upp að einu TB sem kostar 256 dollara á ári. Photobucket Photobucket er svipuð þjónusta og Flickr, fría þjónustan er takmörkun- um háð og birtar auglýsingar á vef- svæðinu. Í Pro-aðgangi, sem kost- ar 24,95 dollara á ári eins og hjá Flickr, er ótakmörkuð bandvídd og geymslurými, myndstærðir í allt að 4000 x 3000 pixlum, auglýsingafrítt vefsvæði, ftp-aðgangur og fleira. Facebook Samskiptasíðan Facebook hefur engar sérstakar takmarkanir eins og er nema myndstærðir. Stærð mynda miðast við 720 pixla hvort sem er á breidd eða hæð. Stærð myndanna virðist einnig takmörkuð við 1MB þótt það sé ekki staðfest. Það er því ólíklegt að Facebook henti fyrir þá sem vilja nýta sér það að geta látið prenta fyrir sig bækur með myndum í góðri upplausn. 48 FÖSTUDAGUR 19. mars 2010 HELGARBLAÐ Eru fjölskyldumyndirnar öruggar á heimilistölvunni eða er bara tímaspursmál hvenær harði diskurinn hrynur og minningar sem festar hafa verið á mynd eru að eilífu glataðar? Er kominn tími til að skipta í veflæga myndþjónustu? MYNDIR Á VEFINN Miðast við frían aðgang, hægt er að uppfæra í greiddan aðgang með auknu geymslurými og fleiri möguleikum. n Geymslurými: 100MB á mánuði, aðeins 200 nýjustu myndirnar sýndar. n Stærð hverrar myndar: Upp að 10MB, mest 1024 pixlar á breidd eða hæð n Myndskeið (video): Tvö á mánuði, hámark 90 sekúndur, 150MB hvert myndskeið n Bandvídd: 100MB á mánuði n Sérhæft forrit: OSX og Windows n Samhæfing: Innbyggt í iPhoto09, plugin fyrir iPhoto, Aperture og Adobe Lightroom. n Myndvinnsla: Já, með Picnik (www.picnik.com) Flickr Miðast við frían aðgang, hægt er að uppfæra í greiddan aðgang með auknu geymslurými og fleiri möguleikum. n Geymslurými: 1GB n Stærð hverrar myndar: Upp að 1GB n Myndskeið (video): 1GB n Bandvídd: Engin takmörk n Sérhæft forrit: OSX (Intel) og Windows n Samhæfing: Plugin fyrir iPhoto og Aperture. n Myndvinnsla: Já Picasa n Geymslurými: 200 myndir í hvert albúm. Ótakmarkaður fjöldi albúma. n Stærð hverrar myndar: 720 pixlar á breidd n Myndskeið (video): Ótakmarkað n Bandvídd: Ótakmarkað n Sérhæft forrit: Nei n Samhæfing: Plugin fyrir netvafra n Myndvinnsla: Já, með Picnik (www.picnik.com) Facebook Miðast við frían aðgang, hægt er að uppfæra í greiddan aðgang með auknu geymslurými og fleiri möguleikum. n Geymslurými: 500MB n Stærð hverrar myndar: 1024x768 pixlar/1MB n Myndskeið (video): 300MB eða 10 mín. HD-stuðningur n Bandvídd: 10GB á mánuði n Sérhæft forrit: Javaforrit fyrir öll stýrikerfi. n Samhæfing: Sérstök samhæfing við Facebook, MySpace og Twitter. n Myndvinnsla: Já, með FotoFlexer Photobucket
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.