Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2010, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2010, Síða 23
HELGARBLAÐ 19. mars 2010 FÖSTUDAGUR 23 LÍFIÐ MEÐ DOWNS-HEILKENNI „Mér finnst ofsalega skemmtilegt í skólanum og langskemmtilegast í stærð- fræði,“ segir Jóhanna María, 18 ára nemandi á þriðja ári í Flensborgarskóla, og bætir við að hún sé mjög góð í stærðfræði. Jóhanna María fer þrisvar í viku í Hitt húsið, sem er menningar- og upplýsingamiðstöð ungs fólks, eftir skóla. „Þar leik ég mér í tölvunni og horfi á sjónvarpið og svo tala ég alltaf við vinkonu mína í síma á hverjum degi,“ segir hún og bætir við að uppáhaldssjónvarpsþátturinn hennar sé Næturvaktin. „Ólafur Ragnar er svo skemmtilegur og Georg er líka ágætur,“ segir hún hlæjandi. Lék í auglýsingu Jóhanna, sem er með Downs-heilkennið, hefur ekki ákveðið hvað hún ætlar að verða þegar hún verður stór. Hún hefur þó prófað að leika í auglýsingum og vinna í verslun. „Ég lék í Lottó-auglýsingunni sem var mjög fín og í skólanum fór ég í starfskynningu í Fjarðarkaup og ég væri alveg til í að vinna þar. Það var mjög gaman,“ segir hún. Á leið í ferðalag Jóhanna er á næstu dögum á leiðinni til Svíþjóðar. „Ég er að fara með skólanum en við munum vera í Stokkhólmi. Ég er mjög spennt og ætla að fara í tívolíið,“ segir hún og bætir við að hún sé ekki hrædd við tækin í tívolínu. „Ég ætla að fara í rússíbana og hlakka mikið til en ég hef áður farið í tívolí í Danmörku þegar ég fór í útskriftarferð með 10. bekk Öskjuhlíðarskóla.“ Mamma besti kokkurinn Spurð um fleiri áhugamál nefnir hún kvikmyndir og tónlist. „Mér finnst gaman að tala við fólk og sérstaklega pabba minn. Hann er mjög skemmtilegur. Mér finnst líka gaman að borða og finnst hakk og spagettí og líka pitsa best. Ég er samt ekki dugleg að elda en mamma mín er besti kokkurinn. Svo er ég dugleg að fara í bíó en uppáhaldsmyndin mín er Mamma Mia og mér finnst tónlistin í myndinni líka mjög góð,“ segir hún og bætir við að Páll Óskar sé einnig í sér- stöku uppáhaldi en hann átti einmitt afmæli í vikunni. „Ég held mikið upp á Pál Óskar og vil endilega nota tækifærið og fá að óska honum til hamingju með afmælið.“ indiana@dv.is Jóhanna María er 18 ára nemandi í Flensborg- arskóla. Jóhanna hefur leikið í auglýsingu og farið í starfskynningu í Fjarðarkaup. Hún er á leiðinni til Svíþjóðar og ætlar í tívolí. Páll Óskar í uppáhaldi „Ég á mér stóra drauma. Ég ætla að taka bílpróf og væri til í að verða skipstjóri og jafnvel vinna í búð,“ seg- ir Daníel, 16 ára strákur á fyrsta ári í Borgarholtsskóla. Daníel, sem er með Downs- heilkenni, finnst gaman í skólanum og á sér mörg áhugamál. Hann hefur ferð- ast mikið, siglir skútum, fer í tjaldútilegur og hefur gam- an af að skrifa sögur og væri til í að skrifa grein í blöðin. „Mér finnst skemmtilegast að leika mér í tölvunni þar sem ég spila tölvuleiki og skoða internetið. Svo er ég líka duglegur í íþróttum og er að lyfta í World Class og æfa í Egilsshöll og leik mér í fótbolta við vini mína,“ segir Daníel og bætir við að hann hafi í nógu að snúast. „Það er nóg að gera hjá mér en mér finnst líka gott að hvíla mig og slaka á,“ segir hann og bætir við að uppáhalds- sjónvarpsþættirnir sínir séu Simpson, Two and a half man og How I met your Mother. Gaman í skólanum Daníel, sem á tvö eldri systkini, bíð- ur spenntur komu sumarsins. „Ég hlakka mikið til sumarsins því þá kemur systir mín heim frá Írlandi. Það verður gaman að sjá hana. Mér finnst sumarið skemmtilegri tími en vetur- inn því þá get ég verið úti að leika mér í góða veðrinu og hjálpað mömmu og pabba í garðinum,“ segir Daní- el sem þó hefur gaman af skólanum. „Mér finnst gaman að læra og krakk- arnir í skólanum eru skemmtilegir og stundum höldum við böll,“ segir Dan- íel sem er duglegur við að bjarga sér sjálfur og notar farsímann sinn sem öryggistæki. Hann ferðast með strætó og heimsækir til dæmis alltaf ömmu sína á þriðjudögum og fer í Hitt hús- ið á föstudögum. Auk alls þessa hefur hann líka gaman af tónlist. „Ég hlusta á Mamma Mia, Pál Óskar og svo er Birgitta Haukdal líka í uppáhaldi. Eins fylgist ég með fótbolta og held með Liverpool og Man. United. Það væri gaman að komast einhvern tímann á leik og sjá þessi tvö lið spila.“ indiana@dv.is Hlakkar til sumarsins Daníel er 16 ára duglegur strákur sem geng- ur í Borgarholtsskóla og ferðast einn með strætó. Daníel hefur gaman af því að skrifa og væri til í að skrifa greinar í blöðin. „Ég bý enn hjá mömmu og pabba en býst við að flytja í eigin íbúð þegar ég verð svona 26 ára,“ segir Stefán Erlendsson, 23 ára gamall maður með Downs-heil- kenni. Stefán lauk námi á starfsbraut Fjölbrautaskól- ans í Breiðholti og úrskrifaðist 2009 frá menntasviði HÍ eftir tveggja ára diplómanám fyrir nemendur með þroskahömlun. Hann starfar sem frístundaleiðbein- andi í Vinafelli, frístundaheimili Fellaskóla, og sem aðstoðarmaður á Borgarbókasafninu í Gerðubergi. Auk þess er hann góður íþróttamaður og keppti á Special Olympics árið 2005 í Japan þar sem hann kom heim með bronspening fyrir árangur sinn í listdansi á skautum. Hér er því duglegur ungur maður á ferð. Ánægður með sig Stefán viðurkennir að velgengni hans hafi líklega komið mörgum á óvart. „Mér hefur gengið vel í skól- anum og mér líkar vel í vinnunni. Ég er ánægður með mig og ég veit að mamma og pabbi eru það líka,“ segir hann og bætir við að hann eigi mörg áhuga- mál. „Áhugamál mín eru fótbolti, handbolti, formúl- an, ræktin og kvikmyndir. Í ensku deildinni held ég með Man. United og Rooney er minn maður, ég væri til í að vera jafngóður og hann í fótbolta. Uppáhalds- handboltamaðurinn minn er Ólafur Stefánsson og í liðið mitt í formúlunni er Ferrari.“ Á góða vini Stefán hefur einnig gaman af að vera með vinum sínum. „Ég á mjög góða vini. Við Sigmundur, vinur minn, horfum mikið saman á fótbolta um helgar. Svo förum við Hlynur, vinur minn, og Sigurður Bragi oft saman í bíó eða út að borða. Uppáhaldssjónvarpsefn- ið mitt er spennuþátturinn 24 sem er sýndur á Stöð 2,“ segir Stefán og bætir við að uppáhaldsmaturinn sinn sé hamborgari. Stefán hefur einnig gaman af ferðalögum. „Ég hef farið til Japan, Ítalíu, Danmerkur, Króatíu, Hol- lands, Spánar, Kanada og Bretlands og mig langar að heimsækja Bandaríkin og Frakkland,“ segir hann og bætir við að hann hlakki til sumarsins. „Ég hef líka gaman af því að ferðast um Ísland og bíð spenntur eftir sumrinu. Við ætlum að halda afmælispartí fyrir pabba í sumar og horfa á HM í fótbolta og þar ætla ég að halda með Englendingum. Ég held að þeir vinni.“ indiana@dv.is Stefán Erlendsson útskrifaðist með diplómanám frá Háskóla Íslands í fyrra. Stefán er með Downs-heilkennið en lætur fötl- un sína ekki aftra sér frá því að taka virkan þátt í samfélaginu. Velgengnin kemur fólki á óvart ALÞJÓÐLEGUR DAGUR DOWNS-HEILKENNIS: n Sunnudaginn 21. mars verður alþjóð- legur dagur Downs-heilkennis haldinn hátíðlegur á Íslandi í annað sinn. n Tilgangur hátíðahaldanna er að vekja almenning til vitundar um Downs-heil- kenni og standa vörð um margbreyti- leika mannlífsins. n Einkunnarorð hátíðahaldanna hérlendis eru „Hvað er einn litningur á milli vina?“ n Dagskrá verður við Café Flóru í Grasagarðinum kl. 12.00. DOWNS-HEILKENNIÐ: n Downs-heilkenni er litningafrávik sem veldur þroskahömlun. n Um 50 ár eru liðin frá því að skýring fannst á tilvist Downs-heilkennis, sem er þrístæða á litningi 21. n Flestir hafa 46 litninga í frumum sín- um, en einstaklingar með Downs-heil- kenni hafa 3 eintök af litningi númer 21 eða alls 47 litninga í frumum sínum. n Almennt er talið að eitt af hverjum þúsund börnum fæðist með Downs- heilkenni sem eru um 4–5 börn í hverjum árgangi hér á landi. n Lífslíkur og ævilengd einstaklinga með Downs-heilkenni aukast stöðugt. n Heilsufarslegt eftirlit, snemmtæk íhlutun og margþætt þjónusta miða að því að auka lífsgæði einstaklinga með Downs-heilkenni og gera þeim í ríkari mæli kleift að vera virkir þátttakendur í samfélaginu. Heimild: www.downs.is Á leið í ferðalag Jóhanna María er á leið til Svíþjóðar með skólanum sínum. Þar ætlar hún að fara í tívolí. MYND RAKEL ÓSK SIGURÐARDÓTTIR Hlakkar til sumarsins Daníel bíður spenntur komu sumarsins því þá kemur systir hans heim frá Írlandi. MYND RÓBERT REYNISSON Háskólamenntaður Stefán kemur foreldrum sínum og öðrum stöðugt á óvart. Hann er háskólamenntaður og er í tveimur störfum. MYND RÓBERT REYNISSON

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.