Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2010, Síða 28
LISTAMANNA-
SPJALL Á
LJÓSLITLÍFUN
Það verður listamannaspjall næsta
sunnudag í Listasafni Reykjavíkur,
Hafnarhúsi. Þrír af listamönnunum
á sýningunni Ljóslitlífun bjóða gest-
um að ganga með sér um sýninguna
og ræða það sem fyrir augu ber. Það
eru listamennirnir Davíð Örn Hall-
dórsson, Helgi Þórsson og Sara Riel.
Með þeim í för verður listfræðingur-
inn Kristín Dagmar Jóhannesdóttir.
Spjallið hefst klukkan 15 og er að-
gangur ókeypis.
UM HELGINA
EGILL ÓLAFS Í GERÐUBERGI Egill Ólafsson kemur fram
ásamt Caput-hópnum og flytur Ástarsögu úr fjöllunum eftir Guðrúnu
Helgadóttur í Gerðubergi á sunnudaginn klukkan 14. Guðni Franzson
tónlistarmaður hefur samið sönglög við texta Péturs Eggerz sem tengjast
þessari fallegu sögu. Tónleikarnir eru í tónleikaröð Gerðubergs, Tóney í
Gerðubergi. Aðgangur er ókeypis.
ORSON WELLES
Í BÆJARBÍÓI
Kvikmyndasafnið sýnir The Lady
from Shanghai eftir Orson Welles
á morgun, laugardag. Myndin er
frá árinu 1947 og segir af manni
sem fær konu félaga síns á heil-
ann og flækist síðan inn í dular-
fullt samsæri um morð. The Lady
from Shanghai er harðsoðinn og
draumkenndur þriller með Welles
sjálfum og þáverandi konu hans,
kvikmyndagyðjunni Ritu Hay-
worth, í aðalhlutverkum. Myndin
er almennt viðurkennd sem ein-
hver besta meðhöndlun Welles
á möguleikum kvikmyndamið-
ilsins. Sýningin hefst klukkan 16,
miðaverð er 500 krónur.
28 FÖSTUDAGUR 19. mars 2010 FÓKUS
Yfirlitssýning á verkum Tryggva Ólafssonar opnuð á Akureyri:
40 ÁR AF FERLI TRYGGVA
HÖNNUNAR-
MARS 2010
Nú stendur yfir HönnunarMars
2010 en en þar er vakin athygli á
þeim ungu og efnilegu hönnuðum
sem þjóðin hefur að geyma. Þetta
er í annað skiptir sem Hönnunar-
miðstöð Íslands heldur hátíðina.
Dagskráin er afar fjölbreytt og hafa
margir erlendir fjölmiðlar komið
hingað til að fylgjast með. Hápunkt-
ur hátíðarinnar er án efa tískusýning
sem haldin verður í Hafnarhúsinu á
sunnudag. Áhugasamir geta kynnt
sér dagskrána á honnunarmidstod.-
is.
Vegleg yfirlitssýning á verkum
Tryggva Ólafssonar listmálara verð-
ur opnuð í Listasafni Akureyrar á
laugardaginn. Sýningin ber nafnið
Varið land og spannar 40 ár af ferli
Tryggva, tímabilið frá 1969 til 2009,
en ferill hans er í raun áratug lengri.
Tryggvi hefur fyrir löngu skip-
að sér í framvarðasveit íslenskr-
ar myndlistar með sérstæðum og
auðþekkjanlegum stíl sínum og er
í hópi þekktustu núlifandi mynd-
listarmanna Íslands. Hann hóf ung-
ur að mála og nam myndlist bæði
hér á landi og í Kaupmannahöfn
þar sem hann hefur búið í yfir fjöru-
tíu ár. Tryggvi hefur haldið fjölda
einkasýninga á löngum ferli sín-
um og tekið þátt í samsýningum
í fjölmörgum löndum. Verk hans
prýða bækur og blöð og hann hefur
skreytt byggingar bæði hér á landi
og erlendis.
Í myndum Tryggva endurspegl-
ast lífsreynsla hans og skoðanir,
veruleiki Íslendings sem hefur orð-
ið fyrir þroskandi áhrifum af langri
dvöl erlendis, segir í fréttatilkynn-
ingu. Hann eigi sinn eigin mynd-
heim, goðsagnir sem hann hef-
ur ofið úr hugsun sinni, heimþrá,
minningum og hugleiðingum um
heiminn.
Á þessu ári eru fimmtíu ár lið-
in frá fyrstu sýningu Tryggva hér á
landi en listamaðurinn fagnar einn-
ig 70 ára afmæli sínu síðar á árinu.
Það má því segja að Tryggvi standi á
miklum tímamótum nú.
Thor Vilhjálmsson rithöfundur
og Sören Haslund, sendiherra Dan-
merkur á Íslandi, opna sýninguna. Í
tilefni sýningarinnar er gefin út sýn-
ingarskrá með umfjöllun um líf og
list Tryggva eftir Aðalstein Ingólfs-
son.
Tryggvi Í ár eru 50 ár síðan
Tryggvi hélt sína fyrstu sýningu.
„Það er búið
að vera ótrúlega
gaman að kynnast
þessum mikla snill-
ingi. Mér finnst það bara
vera mikill heiður að mér sé treyst
til að leika Orm,“ segir Guðjón, eða
Gói eins og hann er ávallt kallaður,
þegar hann er spurður hvernig það
sé að leika hinn breyska Orm Óð-
insson sem flest snýst um í Gaura-
gangi.
Verkið er fyrst og fremst þroska-
saga Orms. Og þetta er „stórsaga“,
segir Gói. „Það er margt sem ger-
ist. Ormur er inni á sviðinu allan
tímann og það er farið mjög hratt
á milli þannig að það hefur svona
verið glíman að ná að demba sér í
þessa rússíbanaferð. Hlæja, gráta og
allt þar á milli. Þetta er stór leikhóp-
ur, það er hljómsveit og mikil dans-
númer þannig að það er nóg að gera
á sviðinu,“ útskýrir Gói þegar blaða-
maður nær tali af honum í stund á
milli stríða fyrir generalprufuna á
miðvikudaginn.
„Takk fyrir að minna
mig á það!“
Þessi uppfærsla í Borgarleikhúsinu
er að sjálfsögðu byggð á samnefndri
bók Ólafs Hauks Símonarsonar.
Hún kom út árið 1988 og sló algjör-
lega í gegn, sérstaklega hjá ungling-
um landsins enda aðalpersónurn-
ar á þeirra aldri. Fyrra skiptið sem
leiksýning byggð á bókinni var sett
upp var í Þjóðleikhúsinu veturinn
1993-´94 þar sem má segja að Ingv-
ar E. Sigurðsson í hlutverki Orms
hafi fyrst vakið verulega athygli sem
leikari.
„Takk fyrir að minna mig á það!
Ég er búinn að vera að reyna að
gleyma því!“ segir Gói háum rómi.
Brosið brýst svo fram í framhaldinu.
„Ingvar er náttúrlega stórkostleg-
ur leikari og það er ekkert hægt að
toppa hann. En maður verður bara
að vinna þetta út frá sjálfum sér.
Þetta er ný sýning með nýjum leik-
stjóra og nýju fólki í öllum hlutverk-
um. Og það eru nýir tímar og þetta
er annað leikhús og önnur tækni á
boðstólum nú en þá þannig að mað-
ur bara verður að bera sig vel.
Ég hitti reyndar Ingvar um dag-
inn og hann sagðist vera spenntur
að sjá sýninguna, og ég verð að segja
að ég er mjög spenntur að fá hann.
Ég sá sýninguna sjálfur fjórum eða
fimm sinnum á sínum tíma – varð
alveg háður þessu. Og ég hugsaði
alltaf: „Vá, hvað væri gaman að vera
Ormur. Mig langar að leika í svona
sýningu.“ Svo bara rættist það!“
Bókina las Gói líka í Austurbæj-
arskólanum á sínum tíma og heill-
aðist. „Gauragangur var alveg gróin
við mig á tímabili. Ég vildi bara ekki
láta hana frá mér. Svo var maður að
vitna í þetta endalaust. Þetta er svo
skemmtileg saga og þessi drengur
er svo skemmtilegur. Og eftir að ég
sá sýninguna sönglaði maður stans-
laust lög þeirra Ný danskra sem eru
alveg frábær.“
Má ekki segja að þetta sé stærsta
hlutverkið þitt til þessa? „Jú, ætli
það ekki. Þetta er náttúrlega stór-
saga og mikill karakter. Þetta er nett-
ur Hamlet,“ segir Gói og hlær.
Uppreisn gegn íþróttafasisma
Gauragangur segir í grunninn frá til-
Guðjón Davíð Karlsson leikur aðalper-
sónuna Orm Óðinsson í söngleiknum
Gauragangi sem frumsýndur verður í
Borgarleikhúsinu í kvöld, föstudag. Hann
segir Orm vera nettan Hamlet – sagan sé
stór og karakterinn mikill. Guðjón hefur
reynt að gleyma því á æfingaferlinu að
Ingvar E. Sigurðsson lék Orm fyrst þegar
söngleikurinn var settur upp sökum þess
hve stórkostlegur Ingvar var í rullunni.
ORMARleynast víða