Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2010, Side 52

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2010, Side 52
 Afburðasöngvari sem syngur frá hjartanu 52 FÖSTUDAGUR 19. mars 2010 HELGARBLAÐ Helgarblað DV leitaði til 18 málsmetandi álitsgjafa í leitinni að besta söngvara landsins. Fjölmargir komust á blað en það var Páll Óskar Hjálmtýsson sem bar sigur úr býtum. Páll Óskar þykir heillandi söngvari sem syngur frá hjartanu en aðrir söngvarar sem skora hátt eru Stefán Hilmarsson, Friðrik Ómar og Diktadrengurinn Haukur Heiðar. 2. SÆTI HAUKUR HEIÐAR „Kemur skemmtilega á óvart.“ „Er að verða einhver jafnbesti söngvari þjóðarinnar. Má samt ekki gleyma rokkaranum í sjálfum sér, því þótt hann sé flottur í þessu rólyndisrokki þeirra Diktumanna er hann langbestur þegar hann þenur sig almennilega.“ „Okkar besti ungi söngvari.“ FRIÐRIK ÓMAR „Með yndislega flauels- rödd.“ „Óaðfinnanlegt tóneyra!“ „Vex og vex sem söngvari.“ PÁLL ÓSKAR HJÁLMTÝSSON „Afburðasöngvari.“ „Ballöðurnar hans Palla eru flauelsmjúkar og hitta mann í hjartastað – í hvert skipti! Svo er hann líka svo mikil manneskja og það skilar sér í söngnum.“ „Á alltaf sinn stað í hjartanu, einlægur og sannur, skilur alltaf eftir bros í sálinni.“ „Með heillandi rödd og syngur beint frá hjartanu.“ „Alltaf jafnyndislegur. Heillandi manneskja með fallega rödd.“ 1. SÆTI 3.– 5. SÆTI 3.– 5. SÆTI STEFÁN HILMARSSON „Hefur mjög fallega og sérstaka rödd. Sígildur söngvari sem flestir elska.“ „Hefur vaxið alveg svakalega með árunum, breyttist úr vælandi ketti í þroskaðan og flottan söngvara.“ „Frábær söngvari sem vex með hverju ári.“ „Augljóst í alla staði.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.