Bridge - 12.12.1957, Qupperneq 3

Bridge - 12.12.1957, Qupperneq 3
* V ♦ BRIDGE 1. árg. 12. desember 1957 ♦ 4. tbl. SLEMMUR og PÖSS Fara á EM i Osló. Á öðrum stað í blaðinu er skýrt frá úrslitum í undirbún ingskeppninni fyrir Evrópu- meistaramótið í Osló næsta sumar. í karlaflokknum sigr aði sveit Stefáns J. Guðjohn- sen og í kvennaflokknum sveit Eggrúnar Arnórsd. í reglu- gerð þeirri, sem Bridgesam bandsstj órnin gerði f yrir þessa keppni, og var birt hér í blaðinu, segir m. a. að þær sveitir, sem sigri í keppninni, skuli vera reiðubúnar til þess að heyja einvígi við sveitir, er sambandsstjómin kunni að velja gegn þeim, en sambands stjórnin hafi einnig heimild til þess, að fella niður slíka keppni. Bridgesambandsstjórnin tók þetta mál fyrir á fundi 4. desember s. 1. og var þar ákveð ið, að einvígisheimildin skyldi ekki notuð, og sveitir Stefáns og Eggrúnar munu því, að öllu forfallalausu taka þátt i EM í Osló. Sem kunnugt er taka sex manna sveitir þátt í mótinu, og munu því félagar í sveitun um velja sér, í samráði við Bridgesambandsstjórn, 2 nýja félaga í hvora sveit. Ekki hefir enn verið tekin ákvörðun um hverjir það verða, en væntan lega verður það ákveðið inn an tíðar, svo sveitirnar geti nú þegar hafið undirbúning að þátttöku í mótinu. Þar sem átta mánuðir eru til stefnu, þar til EM hefst — eða lengri tími en sveitir héðan hafa nokkru sinni fyrr haft — er ástæða til að ætla, að sveitirn ar komi vel undirbúnar og í góðri æfingu til mótsins. Fylgja þeim beztu óskir blaðs ins og áreiðanlega allra bridge áhugamanna hér um vel- gengni á mótinu.

x

Bridge

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bridge
https://timarit.is/publication/1131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.