Bridge - 12.12.1957, Side 4
2
BRIDGE
Breyting á
heimsmeistarakeppninni.
Heimsmeistarakeppnin í
bridge er að verða mikið
vandamál, og það einfalda
form, sem verið hefir á keppn
inni síðustu árin getur ekki
staðizt lengur. Bridgeíþróttin
er stunduð í öllum heimsálf
um, og að því hlýtur að koma
fyrr eða síðar, að ein sveit frá
hverri álfu, muni berjast um
heimsmeistaratitilinn. Frá
því heimsstyrjöldinni siðari
lauk hafa Evrópumeistaramir
spilað við bandarísku meist-
arana um titilinn, en nú verð
ur breyting á. Suður-Ameríka
hefir verið uppgötvuð, og í
næstu heimsmeistarakeppni,
sem háð verður i Ítalíu
snemma á næsta ári, munu
Suður-Ameríku meistararnir
keppa við ítölsku Evrópu-
meistarana og bandarísku
meistarana, sveit Crawfords.
Þetta verður í fyrsta skipti,
sem Suður-Ameríka tekur
þátt í heimsmeistarakeppn
inni og leikur mönnum for-
vitni á að vita hvernig til
tekst gegn hinum frábæru
ítölsku og bandarísku spilur-
um, en lítill vafi er á því, að
flestir munu telja þessar
sveitir þær beztu, sem til eru.
Þá má geta þess, að á þingi
Evrópusambandsins í Vín í
sumar, lágu fyrir beiðnir um
upptöku í sambandið frá Tún
is og Marokkó — og munu
þessar þjóðir hafa talið sig
jafn hlutgengar í sambandið
og Egyptaland og Asíuríkið
Líbanon. Beiðni Túnis og Mar
okkó var þó synjað, en hins
vegar beint tii þeirra, að
stofna Norður-Afríku deild,
eða Miðjarðarhafsdeild, sem
síðar myndi svo taka þátt í
keppni um heimsmeistaratitil
inn.
ítalir hafa boðizt til að sjá
um EM 1959 og Líbanon um
mótið 1960. Sennilega kæmi
það mörgum spánskt fyrir
sjónir ef boði Líbanons yrði
tekið. Það yrði þá í fyrsta
skipti sem EM í einhverri
íþróttagrein yrði háð utan
Evrópu. Vissuiega svolítið
furðulegt — en ennþá furðu
legra væri þó, ef t. d. Egyptar
yrðu Evrópumeistarar í
bridge, eins og einu sinni lá
við. -hsím.
B R I D G E
óskar öllu bridgefólki gleðilegra
jóla og farsæls komandi árs.
4