Húnavaka - 01.05.2011, Page 124
H Ú N A V A K A 122
Um veturinn flutti Klemens á sveitarsamkomu fyrsta opinbera erindi sitt og
fjallaði um uppruna lífsins. Segir hann að góður rómur hafi verið gerður að
erindinu en það hafi verið flutt bæði frá vísindalegu og trúarlegu sjónarmiði.
Klemens og Elísabet giftust í Hlíðarkirkju, 17. júní, 1916. Hann var síðan
bóndi í Bólstaðarhlíð 1916-1944, jafnframt póstur og símstöðvarstjóri í
sveitinni áratugum saman. Klemens segist hafa verið bréfhirðingarmaður í 40
ár og haft af því mikla ánægju. Í póstferðirnar fór hann ríðandi allt til sjötugs
en þá tók mjólkurbíllinn við póstflutningunum.
Klemens stóð að stofnun ungmennafélags í hreppnum og lestrarfélags í
Bólstaðarhlíðarsókn en bækurnar voru í varðveislu hans. Hann gegndi ýmsum
trúnaðarstörfum í sveitinni og var um hríð einnig barnakennari í
Bólstaðarhlíðarhreppi. Eftir að hann gerðist kvekari gekk hann ekki í önnur
félög en var þó um hríð talinn í Félagi Nýalssinna enda segist hann hafa sem
ungur maður hrifist af kenningum Helga Pjeturs.
Fyrsta barn Klemensar og Elísabetar fæddist 1918, sonurinn Guðmundur.
Hann þótti mikið efnisbarn en lést skyndilega veturinn 1926. Erlendur, fæddur
1922, var bóndi í Bólstaðarhlíð en missti heilsuna á besta aldri. Guðmundur,
fæddur 1927, fékk lömunarveiki sem barn og bjó við fötlun alla ævi. Hann var
kennari. Ævar, fæddur 1930, fluttist til Dalvíkur, var bílstjóri að atvinnu. Allir
eru synirnir nú látnir. Auk sonanna ólst upp hjá þeim Herbert Sigurðsson,
bróðursonur Elísabetar.
Klemens flutti erindi á samkomum í sveitinni og síðla vetrar árið 1926
ferðaðist hann um sýsluna og flutti erindi um ýmis efni. Presturinn, sem setið
hafði á Bergsstöðum, var kominn til Auðkúlu en þjónaði enn í prestakallinu.
Enginn sótti um embættið og þótti mörgum slæmt, að því er Klemens segir.
Var þá lagt að honum að læra til prests. Ef hann hefði farið til Ameríku hefði
það ekki tekið nema tvö ár ef allt hefði gengið vel. Biskupinn lofaði honum
vígslu þegar hann kæmi aftur. Af þessari ferð varð ekki þótt Klemens
Gamli bærinn í Bólstaðarhlíð.