Lögmannablaðið - 01.12.2001, Side 20
1. Inngangur
Hinn 11. desember nk. eru90 ár síðan Málflutnings-mannafélag Íslands, síðar
Lögmannafélag Íslands, var stofn-
að. Af því tilefni óskaði stjórn fé-
lagsins eftir því að ég tæki saman
yfirlit um sögu félagsins. Mun ágrip
af sögunni birtast í 4. hefti Tímarits
lögfræðinga á þessu ári. Ber að
skoða þetta greinarkorn fyrir Lög-
mannablaðið sem tilraun til að
draga saman efni þeirrar greinar í
mjög stuttu máli.
2. Aðdragandinn að
stofnun Málflutnings-
mannafélags Íslands
Þegar upphaf íslenskrar lögmanna-
stéttar ber á góma vilja sumir hver-
fa aftur til Alþingis á árinu 1012 til
málaferlanna í kjölfar Njálsbrennu:
Flosi mun hafa verið talinn eiga sér
fáar málsbætur og þurfti atbeina
lögfróðra manna. Bjarni segir:
„Eyjólfur heitir maður og er Böl-
verksson. Hann er mestur lögmað-
ur í Vestfirðingafjórðungi og mun
þurfa að gefa honum til fé mikið ef
honum skal verða komið í málið
en þó munum vér ekki að því
fara.“ Sem kunnugt er tók Eyjólfur
málaleitaninni illa þar til þeir
sýndu honum hringinn og
„(h)ringurinn var svo góður og
mikill og vel ger að hann tók tólf
hundruð mórend“. Féllst Eyjólfur
að lokum á að veita fulltingi sitt við
málareksturinn. Hefur Eyjólfur Böl-
verksson vegna þessarar frásagnar
stundum verið talinn með fyrstu
lögmönnum Íslands. Ekki verður
hér dæmt um ágæti þeirrar sagn-
fræði.
Nær sanni er þó líklega að rekja
upphaf íslenskrar stéttar lögmanna
til 19. aldar og málflutningsmanna
þeirra sem settir voru málflutnings-
menn við Landsyfirdóminn. Illa
gekk í upphafi að koma málflutn-
ingi fyrir dóminum í viðunandi
horf. Var t.d. algengt að fengnir
væri ólöglærðir ungir menntamenn
sem bjuggu í Reykjavík til að flytja
mál þar. Meðal slíkra var listaskáld-
ið góða Jónas Hallgrímsson. Það
var síðan árið 1858 að brugðið var
á það ráð að setja sérstaka mál-
flutningsmenn við réttinn sem
skyldu hafa einkarétt til málflutn-
ings þar. Fyrstu mennirnir til að
gegna þessum störfum voru þeir
Hermann Elías Jónsson (Johnsson)
(1825- 1894) síðar sýslumaður í
Rangárvallasýslu og Jón Guð-
mundsson (1807 – 1875), þá m.a.
ritstjóri Þjóðólfs. Ýmsir menn áttu
eftir að gegna þessum störfum sem
síðar urðu þjóðþekktir. Meðal þeir-
ra var Einar Benediktsson. Hann
20 Lögmannablaðið
Davíð Þór Björgvinsson prófessor:
Lögmannafélag Íslands 90 ára
Málflutningsmennirnir Eggert Claessen, fyrsti formaður félagsins og Sveinn
Björnsson, fyrsti ritari þess og síðar formaður, í fyrsta málflutningi fyrir
Hæstarétti Íslands 16. febrúar árið 1920.
Málflutningur fyrir Hæstarétti Íslands 16. febrúar árið 1920.