Lögmannablaðið - 01.12.2001, Page 22

Lögmannablaðið - 01.12.2001, Page 22
3. Starfsemi félagsins Þess er vitaskuld enginn kostur að fjalla að ráði um starfsemi félagsins í 90 ár í svo stuttri grein. Hlýtur slík greinargerð eðli málsins sam- kvæmt að verða mjög almenn. Fyrstu áratugina starfaði félagið mjög í anda þeirra markmiða sem stofnendur þess settu sér. Verður af heimildum ráðið að mestur tími fé- lagsstarfsins fór í að vinna að sér- stökum hagsmunamálum málflutn- ingsmanna í víðum skilningi, en auk þess sem snemma fer að bera á tilhneigingu til að líta á félagið sem vettvang til að fjalla um ágreining milli félagsmanna og kvartanir viðskiptavina vegna framferðis einstakra málflutnings- manna, þótt lagalegur grundvöllur þeirrar starfsemi hafi ekki verið jafn skýr og síðar átti eftir að verða. Merk tímamót verða á árinu 1936 með gildistöku laga um meðferð einkamála í héraði, en þá var fé- lagsins fyrst getið í lögum. Þar kom fram í 63. gr. að stjórnendur félags- skapar löggiltra máflutningsmanna gætu áminnt einstaka félagsmenn og gert þeim að greiða sektir fyrir framferði sitt í starfi er telja mætti stéttinni ósamboðið. Var þetta í fyrsta skipti sem félaginu voru fal- in opinber stjórnsýslustörf. Ein mikilvægustu tímamótin í sögu félagsins verða með gildis- töku laga um málflytjendur nr. 61/1942. Með þeim lögum voru í fyrsta skipti sett heildarlög um mál- flytjendur á Íslandi. Ástæða er til að geta um tvennt í lögum þessum sem sögulega þýðingu hefur. Í fyrsta lagi er vert að nefna sérstak- lega 7. gr. laganna þar sem mælt var svo fyrir, að héraðsdóms- og hæstaréttarlögmenn skyldu hafa með sér félag. Samkvæmt þessu var nú mælt fyrir um skylduaðild allra þeirra sem fengið höfðu mál- flutningsleyfi að lögmannafélaginu, en nafni félagsins var um þetta leyti breytt í Lögmannafélag Ís- lands. Þá var í ákvæðinu gert ráð fyrir að dómsmálaráðherra staðfesti samþykktir félagsins. Í öðru lagi ber að nefna opinber hlutverk fé- lagsins samkvæmt 8. gr. Þannig skyldi stjórnin samkvæmt 1. mgr. 8. gr. hafa úrskurðarvald um end- urgjald fyrir málflutningsstarf, ef ágreiningur um það var borinn undir hana. Þá hafði stjórnin sam- kvæmt 3. mgr. 8. gr. úrskurðarvald um það hvort lögmenn hafi við framkvæmd lögmannsstarfa sýnt af þér framferði er telja megi stéttinni ósamboðið. Samkvæmt 4. mgr. 8. gr. voru úrskurðir stjórnarinnar í þessum málaflokkum kæranlegir til Hæstaréttar. Þetta jafngilti því að stjórn félagsins var í raun sérdóm- stóll á fyrsta dómstigi í þessum málaflokkum. Gat stjórnin enn- fremur veitt einstökum félags- mönnum áminningu eða beitt sekt- argerðum eða gert tillögu um sviptingu lögmannsréttinda, sbr. t.d. 11. gr. Með nokkrum rétti má segja að félagið hafi þar með orð- ið hluti af stjórnkerfi ríkisins og að nokkru háð ríkisvaldinu um skipu- lag sitt og starfsemi. Þess hefði mátt vænt að laga- 22 Lögmannablaðið Úr gamalli gjaldskrá Málflutningsmannafélags Íslands.

x

Lögmannablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.