Lögmannablaðið - 01.03.2003, Síða 10
10
Málaflokkar 1998 1999 2000 2001 2002
Aðför/nauðungarsala 2 5 9 4
Almannatryggingar 1 1 1 1
Barnaverndarmál 1
Dánarbússkipti/gjald-þrotaskipti 2 3 4 8 7
Erfðamál 8 10 15 16 19
Faðernismál 1
Fasteignir 23 28 27 21 32
Fjárskipti milli hjóna 11 10 9 19 13
Forsjármál 6 15 15 10 20
Greiðsluerfiðleikar, skuldaskil 7 8 13 20 30
Grenndarréttur 2 2 2
Hjónaskilnaðarmál/sambúðarslit 16 20 38 21 30
Hjúskaparmál að öðru leyti 6 4 1 5 3
Húsaleiga 6 6 5 8 7
Neytendamál 3 3 5 6 6
Óskráð sambúð 2 2 5 1 4
Ráðningarsamningar/vinnuréttarmál 3 4 4 8 6
Refsimál 7 18 8 11 10
Skaðabótamál 18 19 22 12 36
Skattamál 6 3 1 2 8
Stjórnvöld 4 2 11 8 9
Vátryggingamál 2 2 4 6 4
Viðhalds- og viðgerðarsamningar 1 3 1 3
Þjónustusamningar 1 5 1 2
Annað* 17 20 23 25 33
Samtals skráðir málaflokkar 152 189 218 217 291
1 / 2 0 0 3
0
50
100
150
200
250
300
1998 1999 2000 2001 2002
Fjöldi þeirra sem nýttu sér þjónustu
Lögmannavaktar 1998 til 2002
karlar
konur
Íhverri viku koma einn til tveir lög-menn í sjálfboðastarf á Lögmanna-
vaktina en hún hefur verið skipulögð af
Lögmannafélagi Íslands síðan árið
1993. Markmið þjónustunnar er að
mæta þörf almennings fyrir upp-
lýsingar um réttarstöðu sína án þess að
greiðsla komi til. Þannig hefur almenn-
ingur kost á ráðgjöf burtséð frá efna-
hag. Árið 2002 nýttu 257 manns sér
þessa þjónustu, eða 48% fleiri en árið
2001.
Eins og sjá má á eftirfarandi töflu
eru málin sem koma inn á borð Lög-
mannavaktarinnar af ýmsu tagi. Helsta
breytingin frá fyrra ári er aukinn fjöldi
mála er varða fasteignir, greiðsluerfið-
leika, forsjármál og skaðabótamál.
Málin voru ýmist leyst með ráðgjöf eða
fólki ráðlagt að leita lögmanns.
Á síðasta ári skiptu 54 lögmenn á
milli sín að veita ráðgjöf. Skipulagið er
með þeim hætti að hver lögmaður
kemur einu sinni til tvisvar á ári og
eyðir tveimur klukkustundum af tíma
sínum í þetta sjálfboðaliðastarf. Mikil-
vægt er fyrir félagið að hafa á bak við
þjónustuna stóran hóp lögmanna með
breiða þekkingu. Lögmenn eru hvattir
til að leggja Lögmannavaktinni lið
enda vinna margar hendur létt verk!
Lögmannafélagið þakkar þeim lög-
mönnum sem hafa tekið þátt í Lög-
mannavaktinni síðastliðið ár fyrir vel
unnin störf.
Aðsókn að Lögmannavakt LMFÍ
eykst um 48% milli ára!
* Útlendingar, landamerki, gallar, barnaverndarmál, lífeyrissjóðsmál, læknasamskipti,
fjármál og fleira.