Lögmannablaðið - 01.03.2007, Síða 6
< LÖGMANNABLAÐIÐ – 1 / 2007
Í byrjun desember s.l. ritaði stjórn
Lögmannafélagsins bréf til ráðuneytis-
stjóra dóms- og fjármálaráðuneyta
þar sem gerðar voru verulegar athuga-
semdir við forsendur fjárlaga við mat á
útgjöldum til opinberrar réttaraðstoð-
ar og til greiðslu málskostnaðar í opin-
berum málum. Bent var á að heild-
arfjárveiting til dóms- og kirkjumála-
ráðuneytisins vegna dómsmála næmi
rétt um 1.524 milljónum króna, en
undir þennan útgjaldaþátt ráðuneytis-
ins falla fjárliðir eins og Hæstiréttur
Íslands, héraðsdómstólar, málskostn-
aður í opinberum málum, opinber
réttaraðstoð, bætur til brotaþola og
Persónuvernd. Fjárveiting til þessa
málaflokks er nánast óbreytt að raun-
gildi frá fjárlögum fyrir árið 2006, en
í skýringum með fjárlagafrumvarpinu
kemur m.a. fram að Dóms- og kirkju-
málaráðuneytið hefði á undanförnum
árum haft málskostnað í opinberum
málum og opinbera réttaraðstoð til
skoðunar vegna útgjalda umfram áætl-
anir fjárlaga.
Fjölgun dómsmála og
aukið umfang
Stjórn félagsins benti í bréfi sínu á að
niðurstaða fjárlaga væri sérstaklega
athyglisverð í ljósi þeirrar þróunar sem
orðið hefur á fjölgun og umfangi saka-
mála undanfarin ár. Vísað var til þess
að fyrstu sex mánuði ársins 2006 hefðu
1.464 ákærur verið teknar til meðferð-
ar hjá héraðsdómstólum landsins sem
væri umtalsvert fleiri mál en á sam-
svarandi tímabili áranna 1998 – 2005,
auk þess sem stærri og flóknari saka-
málum hefði fjölgað. Í ljósi þessarar
þróunar yrði að telja óraunhæft að gera
ráð fyrir nánast óbreyttum útgjöldum
til umræddra málaflokka í fjárlögum
ársins 2007. Þessi niðurstaða væri
reyndar enn fráleitari þegar haft væri í
huga að útgjöld til annarra málaflokka
dómsmálaráðuneytisins, svo sem til
löggæslu og öryggismála, væru aukin
um rúmlega 44% á sama tíma, en
þessi hækkun væri m.a rökstudd með
vísun til hækkunar launa og verðlags
milli ára.
Áhrif launa- og
verðlagsbreytinga
Í bréfi sínu benti stjórn félagsins á,
að gefnu tilefni, að auk hækkunar á
kostnaði sem óhjákvæmilega fylgir
fjölgun ákærumála og aukins umfangs
þeirra, yrði við gerð fjárhagsáætlana að
taka tillit til hækkunar málskostnaðar
í opinberum málum út frá launa- og
verðlagsbreytingum milli ára, enda
færi stærstur hluti málsvarnarlauna
til greiðslu á rekstri lögmannsstofa og
launum til lögmanna. Hið sama ætti
við um áætlun útgjalda vegna opin-
berrar réttaraðstoðar, sem aukist hefðu
hratt á undanförnum árum, bæði
vegna fjölgunar mála sem lögum sam-
kvæmt sæta gjafsókn eða gjafvörn og
þeirra mála sem falla undir almenna
gjafsóknarheimild vegna bágrar fjár-
hagsstöðu málsaðila.
Stjórnvöld standi undir
skuldbindingum sínum
Með bréfinu vildi stjórnin koma þeirri
ábendingu á framfæri við ráðuneyti
dóms- og fjármála, að þeim forsend-
um sem lagðar væru til grundvallar í
fjárlögum ár hvert yrði breytt, þannig
að þær endurspegluðu raunverulega
stöðu þessa málaflokks hverju sinni.
Það væri einlæg von stjórnar félagsins
að hið stóraukna fjármagn sem veitt
væri til löggæslu og öryggismála sam-
kvæmt fjárlögum ársins 2007 skilaði
sér í færri ákærumálum í framtíðinni
og drægi úr álagi á dómstóla lands-
ins. Jafnframt að aukin velferð í sam-
félaginu drægi úr þörf fyrir opinbera
réttaraðstoð. En á meðan málafjöldi
fyrir dómstólum landsins sýndi annan
veruleika, yrðu stjórnvöld að standa
undir þeim skuldbindum sem þau
hefðu tekið á sig, m.a. með greiðslu
málskostnaðar í opinberum málum og
opinberri réttaraðstoð og standa þann-
ig undir einum af hornsteinum rétt-
arríkisins.
Útgjöld til réttaraðstoðar og
málskostnaðar í opinberum málum
Bréf LMFÍ til stjórnvalda