Lögmannablaðið - 01.03.2007, Page 14

Lögmannablaðið - 01.03.2007, Page 14
1 < LÖGMANNABLAÐIÐ – 1 / 2007 Þetta eru niðurstöður könnunar sem Lögmannablaðið lét gera í janúar síðastliðnum meðal lögmanna á lög- mannsstofum. Allir lögmenn sem eru starfandi á lögmannsstofum, jafnt eig- endur og fulltrúar, samtals 411 að tölu, fengu spurningarnar sendar rafrænt. Tryggt var að svörin væru órekjanleg en áður voru spurningarnar lagðar fyrir Samkeppniseftirlitið. Þetta er í fyrsta skipti sem slík könnun á rekstrarfyr- irkomulagi og starfsaðstæðum lög- manna er gerð á Íslandi. Svarhlutfallið var 62,53% sem telst gott og er svip- að og í samsvarandi könnunum lög- mannafélaganna í Svíþjóð og Noregi. Af 164 lögmönnum sem starfa á lög- mannsstofum þar sem rekstrarfyr- irkomulagið er sameiginlegur rekstur eða sameiginlegt skrifstofuhald (regn- hlíf ) eru 108 á stofum með fimm eða fleiri lögmönnum. Það samsvarar 42% allra lögmanna á lögmannsstofum en 23% þeirra starfa á stórum stof- um með tíu eða fleiri lögmönnum. Á litlum lögmannsstofum með tveimur til fjórum lögmönnum er hlutfallið 22%. Fimmti hver lögmaður er svo einyrki án fulltrúa. Eigendur og fulltrúar Átta af hverjum tíu lögmönnum á lögmannsstofum eru sjálfstætt starf- andi, þ.e. eigendur. Lang flestir þeirra sem hafa starfað lengur en í tíu ár eru eigendur en 35% þeirra sem eru með innan við fimm ára starfsreynslu. Athygli vekur að hlutfallslega fleiri karlar en konur eru eigendur sem kann að skýrast af því að konur eru hlutfallslega fleiri í yngri aldursflokk- um og með styttri starfsaldur. Þegar rætt er um starfsreynslu er átt við þann tíma sem viðkomandi hefur verið í lögmennsku. Eins og gefur að skilja eru fulltrúar almennt yngri og með minni starfsreynslu en sjálfstætt starfandi lögmenn. Þannig eru full- trúar 46% þeirra sem eru í aldurs- hópnum 25-39 ára og 63% þeirra eru með innan við 5 ára starfsreynslu. Þar sem ekki hefur áður verið gerð könn- un sem þessi eru samanburðartölur ekki fyrir hendi. Þó má sjá á félagatali að hlutfall fulltrúa hækkaði úr 10% af heildarfjölda félagsmanna árið 2002 í 14% árið 2007. Á sama tíma fækk- aði sjálfstætt starfandi lögmönnum, þ.e. eigendum, úr 56% í 46% félags- manna. Þróunin virðist því vera sú að um leið og lögmannsstofur stækka þá fjölgi fulltrúum en það er svipuð þróun og á sér stað í Noregi og Danmörku. Í Noregi eru 3% norskra lögmanns- stofa stórar með tíu eða fleiri lögmenn en þar starfa hins vegar rúmlega 40% allra norskra lögmanna. Rekstrarfyrirkomulag lög- mannsstofa Síðustu ár hafa lögmannsstofur stækk- að og lögmenn sameinað rekstur sinn. Samkvæmt könnuninni er þó ákveð- inn kynslóðamunur þar sem eldri lögmenn og þeir sem eru með meiri starfsreynslu starfa frekar sem einyrkj- ar heldur en yngri lögmenn. Rúmur helmingur svarenda starfar á lögmannsstofu þar sem tveir eða fleiri LÖGMENN Á LÖGMANNSSTOFUM Um 42% lögmanna starfa á lögmannsstofum með fleiri en fimm lögmönnum og 20% lögmanna eru einyrkjar. Þeir sem hafa unnið lengur en í tíu ár eru flestir sjálfstætt starfandi og helmingur þeirra er með sameiginlegan rekstur ásamt öðrum lögmönnum. 64% lögmanna tekur tímagjald á bilinu 10.000 til 13.900 krónur (án vsk.) en tæplega 20% taka 14.000 til 17.900 kr. Hlutfallslega fleiri lögmenn yfir sextugt eru með 6.000 til 10.000 króna tímagjald en þeir sem yngri eru. Yngri lögmenn telja sig selja út hærra hlutfall af heildarvinnustundum en eldri lögmenn og þeir markaðssetja sig eða lögmannsstofu sína frekar. Yngri lögmenn starfa einnig frekar á lögmannsstofum þar sem tveir eða fleiri lögmenn eru með sameiginlegan rekstur en þeir sem þar starfa selja hlutfallslega út flesta tíma. Lögmenn voru spurðir um hvort þeir væru sjálfstætt starfandi eða fulltrúar, hve lengi þeir hefðu starfað sem lögmenn og um aldur og kyn. Einnig hvort þeir störfuðu á stofu þar sem lögmenn væru með sameig­ inlegan rekstur, með sameiginlegt skrifstofuhald eða einyrkjar. Spurt var um stærð stofunnar og almennt um sérhæfingu. Á sama hátt var spurt um það hvort lög­ mannsstofan markaðssetti sig gagn­ vart ákveðnum markhópum. Spurt var um gjald fyrir útseldan tíma án vsk, um vinnutíma á viku og hlutfall útseldra tíma af heild­ arvinnutíma. Eins var spurt um hvort þóknun væri reiknuð á grundvelli hagsmuna og þá helst í hvaða málaflokkum að frátöldum innheimtum. Spurningarnar Könnun Lögmannablaðsins:

x

Lögmannablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.