Lögmannablaðið - 01.03.2007, Qupperneq 24
2 < LÖGMANNABLAÐIÐ – 1 / 2007
Árshátíð
Undanfarið hefur undirbúningur árshátíðar LMFÍ stað-
ið yfir en svarfdælsku hetjurnar í skemmtisveitinni
„Hundur í óskilum“ munu bregða sér ríðandi yfir Helju og
Héraðsvötn, í gegnum Þverárdal, Línakradal og Laxárdal,
með viðkomu á Eiríksstöðum í Dölum. Þeir munu enda í
Reykjavíkurhreppi og skemmta lögmönnum og fylgdarliði
þeirra í Lídó sem er staðsett í Þingholtunum en ekki í París.
Hljómsveitin Sixties leikur fyrir dansi.
Á síðustu árshátíð mætti Mörður lögmaður og hlaut
ómælda athygli „veikara kynsins“ enda sjarmatröll mikið.
Enn er ekki vitað hvort hann ætlar að mæta nú en síð-
ast sást til hans á skákmóti LMFÍ sem var endurvakið af
Þyrnirósarsvefni frá því á ofanverðri síðustu öld.
Námskeið vorannar
Eins og venjulega hafa námskeið vorannar gengið vel fyrir
sig. Félagsdeild auglýsti sjö námskeið en búið er að fresta
námskeiði um Höfundarétt til hausts. Það stóð til að hefja
önnina með námskeiðinu Ný lög um peningaþvætti en því
var frestað um sinn. Námskeiðið Áfrýjun og flutningur
einkamáls fyrir Hæstarétti var afar vel sótt en 30 manns fóru
á það.
Eyjafjallajökull
Aðsókn í ferð félagsdeildar á Eyjafjallajökul er gríðarlega
góð en stefnt er að því að fara í byrjun júní. Hópurinn
hefur nú þegar hafið æfingar og gengið einu sinni upp á
Esju Það er Haraldur Örn Ólafsson lögfræðingur sem
ætlar að leiða hópinn örugglega yfir sprunginn jökulinn.
Miðlarinn
Á heimasíðu LMFÍ hefur verið opnað upplýsingatorg
fyrir lögmenn þar sem þeir geta auglýst skrifstofuhúsnæði
til leigu/óskast eða ef þeir óska eftir fulltrúum til starfa.
Eyrún Ingadóttir
Fréttir frá félagsdeild
Þjónustan er veitt undir tenglinum Fyrir lögmenn en þar
eru einnig upplýsingar um félagsdeild, Lögmannalista,
Félag kvenna í lögmennsku og fleira.
Heimsóknir á heimasíðu LMFÍ
Heimsíða LMFÍ var endurnýjuð á síðasta ári og óhætt er
að segja að árangurinn sé glæsilegur. Samkvæmt mælingu
heimsóttu 21.119 heimasíðuna í janúar sem er met en þess
má geta að í janúar 2006 voru heimsóknirnar 9.500. Til
samanburðar heimsóttu rúmlega 17.000 heimasíðu VR í
janúar sl. sem er með tugi þúsunda félaga. Það er mjög
algengt að þegar nafn lögmanns er slegið upp á leitarvél int-
ernetsins þá komi upp skráning hans á Lögmannalistanum.
Menn eru hvattir til að slá upp nöfn sín og sjá hvaða upp-
lýsingar koma.
Æfingagöngur á Esjuna eru þegar byrjaðar. Ánægður hópur
hjá hinum fræga steini sem markmiðið er að ganga að á einni
klukkustund. F.v. Eyrún Ingadóttir, Bergþóra Ingólfsdóttir,
Lára V. Júlíusdóttir og Benedikt Ólafsson.