Lögmannablaðið - 01.12.2009, Blaðsíða 6
Glæsilegur maður í 100%
jólaskapi
Á aðfangadag jóla var blessuð
blíða, logn og 8° hiti, mann
skapurinn í só lskins skapi .
Strætin troðfull af fólki framan
af degi, annar hver maður með
cigar, hver búð yfirfull, allir
hlaðnir bögglum og pinklum.
Krakkarnir að sálast úr eftir
væntingu; Kvenfó lk ið með
eldhús áhyggjur. Ég labba ofan í
bæ kl. 14.00. Ég er uppskveraður
í dökkbláum fötum, hvítri skyrtu,
með nýjan Royal Stetson, brúnan
á höfði, brúnan yfirfrakka, gula
hanzka, svarta blankandi skó,
nýþvegið hár , nývaskaðan
skrokk; glæsi legur maður í 100%
jólaskapi! Jú satt er það, úti er
mögnuð jólastemmning. Maður
magnast við það eitt að sjá
svipinn á fólkinu og fartina á
því. Þvílíkur svipur, en sú fart!
Og svo blessuð jólalyktin. Í hverri
nýlenduvöru og kjötverzlun
mætir angan hið heimsfræga
Hólsfjalla hangikjöt. Ja, það er
nú kjöt í lagi. Ef Lundúnabúar
hefðu það á jólunum, myndu
þeir fá krafta í kögglana og
e i t thvað a f h inu í s l enzka
andríki. Ég geng Vestur götuna.
Það er nú gata. Hvarvetna mæti
ég kunn ingjum og nágrönnum.
Sæll og bless, sæll og blessaður,
sæl og bless. Gleðileg jól! Gleðileg
jól! GLEÐILEG JÓL!
Þéttir eins og útgerðarmenn
V e s t u r b æ i n g a r e r u a l v e g
prýðilegir menn. Ég nálgast
miðbæinn. Þar fer ég að sjá
Austurbæinga. Jú sko, það hefir
hækkað á þeim brúnin. Allsstaðar
ber að líta margskonar jóla
skraut. Umferðin er stór kostleg.
Bílar, menn, reiðhjól, mótorhjól.
Þarna sé ég hilla undir þreklegan
mann, er það ekki Baldur Þ.? Ó
jú, sá er maðurinn; í sömu
holdum og áður, „lún“ einsog
fyrri daginn. „Mér þykir span á
þér“, segi ég, um leið og ég vippa
mér fimlega fram fyrir hann með
leikni, sem ég tileinkaði mér í
kappliði KR. Hann svarar
lakónist. „Finnst þér það“ og
munnleikur jólavindil sinn
einsog amerískur business
maður. Við stoppum við búðar
glugga, horfum á glingrið en
horfum þó ekki á það. „Nei
annars, ég má ekki vera að
þessu“, segir hann, „ég þarf að
flýta mér“. „Komdu í einn rúnt“
segi ég og byrja að tala um
ástandið í Palestínu! Þar er jú
skytterí uppá hvern dag, eftir
því sem blöð og útvarp segja og
víst aldrei meir en um jólin. Nú
og svo hljóðar guðspjall dagsins
einmitt upp á Palestínu, um
6 < LÖGMANNABLAÐIÐ – 4 / 2008
Á léttum nótum
Friðarjólin 1945
Ásgeir magnússon.Þórður björnsson.
Á Borgarskjalasafni Reykjavíkur er varðveitt afar merkilegt einka skjalasafn Þórðar Björnssonar, fyrrverandi bæjarfulltrúa og ríkis saksóknara (19161993). Á haustdögum hélt safnið sýningu á lífi og störfum Þórðar en
í einkaskjalasafninu eru fágætar ferðabækur, ljósmyndir og ýmis persónuleg bréf.
Þórður Björnsson lauk stúdentsprófi frá MR árið 1935 og embættisprófi í lögfræði 1940. Árið 19451946
dvaldi hann í Englandi og á Norðurlöndum til að kynna sér réttarfar í opinberum málum og lögreglustjórn
en hann hafði starfað sem fulltrúi hjá sakadómaranum í Reykjavík frá 1941.
Meðal bréfa sem Þórður fékk til London er eitt frá æskufélaga hans, og síðar samstarfsmanni, Ásgeiri
Magnússyni fyrrverandi sakaskrárritara (19141987). Ásgeir lauk stúdentsprófi frá MR 1935 og starfaði síðan hjá
Kolaverzlun Sigurðar Ólafssonar til 1961 er hann varð starfsmaður hjá saksóknara ríkisins. Því starfi gegndi hann
til 1975 er hann varð að hætta vegna sjóndepru. Í bréfinu lýsir Ásgeir því hvernig hann eyddi aðfangadegi og
jólanótt í Reykjavík fyrstu friðarjólin 1945.