Lögmannablaðið - 01.12.2009, Blaðsíða 18
18 < LÖGMANNABLAÐIÐ – 4 / 2009
Skylduendurmenntun lögmanna hefur
verið tekin upp hjá öllum lögmanna
félögum á Norðurlöndum, í Bretlandi
og víða á meginlandi Evrópu. Umræða
um skylduendurmenntun meðal
lögmanna á Íslandi hefur komið upp
öðru hvoru síðustu ár en árið 2003 var
stofnaður sérstakur starfshópur á
vegum stjórnar Lögmannafélags Íslands
sem fjallaði um málið. Hópurinn kynnti
niðurstöður vinnu sinnar á aðalfundi
félagsins árið 2004 og lagði þá upp drög
að kerfi sem fól í sér að hver starfandi
lögmaður þyrfti að afla sér einingafjölda
samsvarandi við tvö almenn námskeið
á vegum LMFÍ á ári. Fjöldi leiða var til
að öðlast endurmenntunareiningar, t.d.
kennsla, skrif fræðigreina auk þess að
sækja námskeið. Hugmyndirnar vöktu
talsvert mikla andstöðu meðal lög
manna á sínum tíma og ekkert hefur
verið unnið í þeim síðan þá. Í könnun
Lögmannablaðsins í september
síðastliðinn voru lögmenn spurðir um
hvort þeir væru hlynntir eða andvígir
skylduendurmenntun og var hlutfall
þeirra sem voru hlynnir 38% á móti
41% sem voru andvígir skyldu
endurmenntun. Athyglisvert er að
innanhúslögmenn eru mun hlynntari
skylduendurmenntun en lögmenn á
stofum.
Það sem af er þessu ári hafa að meðaltali 36,4 lögfræðingar
verið á atvinnuleysisskrá en til samanburðar þá voru á sama
tíma 349 viðskipta fræðingar og 114 verkfræðingar á
atvinnuleysisskrá. Að sögn Ragn heiðar Dagsdóttur, ráðgjafa
hjá Capacent Ráðningum, er mikil eftirspurn eftir
lögfræðingum á vinnumarkaðinum: „Allmargir hafa sótt
um þau störf lögfræðinga sem hafa verið auglýst á okkar
vegum. Það sækir ekki jafn stór hópur lögfræðinga um hvert
auglýst starf eins og til dæmis viðskiptafræðinga, en það er
mikil breidd í hópnum m.t.t. þekkingar og reynslu,“ sagði
hún í samtali við Lögmannablaðið.
!"#$
"%#$
&'#$
"(#$
!)#$
*+#$
!"#$%&'()*+,&&,'-'."/(0%1&0%2+1&&3%&'
,-$./0112345$ 6-$7189:;345$
<-$.=>$=??@$A?BC41$
innri hringurinn sýnir hlutfall lögmanna á
lögmannsstofum og ytri hringurinn sýnir
hlutfall innanhúslögmanna sem eru
hlynntir eða andvígir
skylduendurmenntun.
Á vegum LMFÍ eru haldin 2025 námskeið á ári. Síðastliðin
fimm ár hafa 210 lögmenn sótt námskeið félagsins að
jafnaði á ári eða um 30% félagsmanna. Í könnun
Lögmannablaðsins í september sl. voru lögmenn spurðir
að því hvort þeir hefðu sótt námskeið félagsins sl. tvö ár.
65% lögmanna á stofum höfðu sótt námskeið sl. tvö ár en
55% innanhúslögmanna.
Þeir sem höfðu farið á námskeið sl. tvö ár voru spurðir
að því hvernig þeim þætti námskeiðsframboðið vera. 87%
lögmanna á stofum og 77% innanhúslögmanna sögðu
framboð vera mikið eða mátulega mikið.
Skiptar skoðanir um skylduendurmenntun
Lítið atvinnuleysi meðal lögfræðinga
61% lögmanna hefur sótt
námskeið sl. tvö ár
EI
EI
EI