Lögmannablaðið - 01.12.2009, Blaðsíða 23
LÖGMANNABLAÐIÐ – 4 / 2009> 23
54 tímar í vinnu við málið, en tímagjald
var kr. 13.000 auk virðisaukaskatts.
Hljóðaði reikningurinn því upp á kr.
702.000, auk vsk. að fjárhæð kr. 171.900,
eða samtals kr. 873.990.
Í forsendum dómsins varðandi
ákvörðun málskostnaðar, segir m.a:
„Að teknu tilliti til málskostnaðar
reiknings, umfangs málsins, þ.á.m.
fjölda þinghalda og þeirra mikil vægu
hagsmuna sem um var deilt, en einnig
að virtum dómi Hæstaréttar í máli nr.
139/2009 að því er tímagjald varðar og
að nokkru með hliðsjón af reglugerð nr.
715/2009, þykir þóknun lögmannsins
hæfilega ákveðin 498.000 krónur og
hefur þá ekki verið lagður á virðis
aukaskattur“.
Það sem vekur sérstaka athygli í þessum
dómsforsendum er tilvísun í ákvörðun
Hæsta réttar Íslands um þóknun til
handa verjenda í opinberu máli og
beiting dómarans á reglugerð
dómsmála og mannréttinda ráðu
neytisins nr. 715/2009, um tímagjald við
ákvörðun þóknunar til verjenda og
réttargæslumanna. Að því að best
verður séð er hvergi að finna laga
heimild til beitingar þessarar sértæku
reglugerðar um ákvörðun þóknunar í
sakamálum, varðandi málskostnaðar
ákvarðanir í einkamálum, enda liggja
gjörólíkar forsendur þar að baki.
Að mati stjórnar Lögmannafélags
Íslands gefur þetta mál og önnur sem
upp hafa komið nýverið varðandi
málskostnaðarákvarðanir dómstóla,
brýnt tilefni til að ákvarð anir um
málskostnað fyrir dómi og forsendur
þeirra, og þær reglur sem þar um gilda,
verði teknar til heildstæðrar endur
skoðunar. Samhliða telur stjórn
félagsins rétt að skoða hvort og þá á
hvern hátt endurskoða megi gildandi
réttarreglur um málskostnað vegna
reksturs stjórnsýslumála. Hefur stjórn
félagsins komið þessum sjónarmiðum á
framfæri við dómsmála og mann
réttinda ráðherra.
Endurskoðun innheimtulaga
nr. 95/2008
Eins og áður hefur komið fram í
Lögmannablaðinu hefur stjórn Lög
mannafélagsins ítrekað lagt til við
efnahags og viðskiptaráðuneytið að
gerðar verði breytingar á inn heimtu
lögum nr. 95/2008, enda lögin að mörgu
leyti óskýr, auk þess sem í þeim er að
finna meinlegar villur. Ráðuneytið hefur
nú upplýst að vinna sé hafin við
undirbúning frumvarps til breytinga á
innheimtulögunum, sem að öllum
líkindum verður lagt fram á vorþingi.
Lögmannafélagið hyggst koma á
framfæri tillögum sínum varðandi þau
atriði sem félagið leggur áherslu á að
tekin verði til endurskoðunar.
Námskeið sniðin að lögmönnum og lögfræðingum sem starfa
í alþjóðlegu umhverfi. Áhersla er lögð á að ná betri tökum á
faglegu tungutaki og orðnotkun. Hagnýt þjálfun og reyndir
kennarar tryggja miklar framfarir á stuttum tíma.
Námskeiðin eru haldin í London, Cambridge eða Wimble-
don og hægt er að ljúka prófi í ILEC (International English
Certificate) eða TOLES (Test of Legal English Skills).
E
S
S
E
M
M
1
1
/0
9
Sérsni›in tungumálafljálfun
og próf í ensku lagamáli.