Lögmannablaðið - 01.03.2009, Side 21
LÖGMANNABLAÐIÐ – 4 / 2008 > 21
Umræður um hvernig dómstólar
ákvarða aðilum í einkamálum
málskostnað eru eilífðarmál meðal
lögmanna. Þar snýst umræðan meðal
annars um hversu stóran hluta af
málskostnaði umbjóðendur lögmanna
fá bættan þegar mál vinnst. Einnig
rökin fyrir því eða kannski oftar skort
á rökstuðningi fyrir því þegar
umbjóðendur eru sjálfir látnir bera sinn
kostnað af máli jafnvel þótt þeir hafi
unnið það og loks mismunandi
málskostnaðarákvarðanir eftir dóm
stólum eða einstökum dómurum í
sambærilegum málum.
Mjög brýnt er að halda því til haga
þegar þessi málefni eru rædd að
málskostnaður sem ákvarðaður er í
einkamáli úr hendi gagnaðila er ekki
fyrir lögmanninn. Þetta er útbreiddur
misskilningur meðal almennings en
gætir einnig víðar. Auðvitað þekkja
dómarar lögin en alltof oft, þegar
málskostnaðarákvarðanir ber á góma
utan réttar, þá virðast dómarar nálgast
málið á þeirri forsendu að þarna sé um
einhvers konar launabaráttu lögmanna
að ræða. Hjördís Halldórsdóttir, vara
formaður Lögmannafélags Íslands,
útskýrði með ágætum um hvað málið
snýst raunverulega, í ávarpi sem hún
flutti á aðalfundi Dómarafélags Íslands
í lok nóvember sl., en kaflar úr erindinu
voru birtir í síðasta tölublaði Lög
mannablaðsins.
Stjórn Lögmannafélagsins ákvað að
ámálga það við Dómstólaráð hvort
tilefni væri til að setja fram einhvers
konar leiðbeinandi reglur fyrir dómara
til að vinna eftir við ákvörðun máls
kostnaðar í einkamálum líkt og gert
hefur verið í opinberum málum. Þrátt
fyrir að undantekningar finnist, þá hafa
viðmiðunarreglur ráðsins í opinberum
málum gefist nokkuð vel. Á fundi sem
fulltrúar Lögmannafélagsins áttu með
fulltrúum Dómstólaráðs 10. mars sl. var
tekið ágætlega í þessa málaleitan og
lýsti ráðið sig reiðubúið að hlusta á
hugmyndir félagsins og ræða æskilega
framtíðarskipan þessara mála. Gætu
reglur sem Danir hafa unnið eftir, og
hafa gefist mjög vel, verið hafðar til
hliðsjónar við samningu slíkra
viðmiðunarreglnanna hér á landi. Þá
fengju dómarar grunn til að byggja á og
lögmenn gætu útskýrt betur fyrir sínum
umbjóðendum á hverju væri von úr
þeirri áttinni, burtséð frá því hvernig
um semst milli lögmanna og um
bjóðenda þeirra í hverju máli.
Fyrir dyrum stendur að reyna að skýra
betur grundvöll málskostnaðar
ákvarðana í útivistarmálum. Í kjölfarið
verður svo athyglinni vonandi beint að
ofangreindu máli. Ég hef rætt þetta
nokkuð við kollega undanfarið og
langflestir eru mjög jákvæðir gagnvart
þessum hugmyndum. Þó eru vissulega
skiptar skoðanir meðal lögmanna um
hvort fyrirkomulag sem þetta sé til bóta.
Ég skora því á lögmenn að láta í sér
heyra og lýsa skoðunum sínum á þessu
máli eins og öðrum sem varða hags
muni okkar og skjólstæðinga okkar.
Málskostnaðar ákvarðanir
Lárentsínus Kristjánsson hrl.
Formannspistill