Lögmannablaðið - 01.03.2013, Síða 11
lögMannaBlaðið tBl 01/13 11
Lítil sem engin umræða hefur verið
í gangi um breytingar á núverandi
vinnulagi Hæstaréttar enda þyrfti að
breyta lögum til að taka við munnlegum
málflutningi frá héraðsdómi sem og
að taka við skjölum rafrænt. Að sögn
Þorsteins A. jónssonar, skrifstofustjóra,
er nóg geymslupláss fyrir gögn í
Hæstarétti: „við geymum eitt eintak af
hverju máli í skjalageymslu réttarins
og þurfum að geyma þau í 30 ár
áður en Þjóðskjalasafnið tekur við
þeim. Til þess höfum við nóg pláss
enda er skjalamagnið minna en menn
halda,“ sagði hann. Staðan er verri í
Héraðsdómi reykjavíkur þar sem hver
kytra er nýtt til geymslu málsgagna. Til
stóð að setja fjármagn í grisjun þeirra á
þessu ári en sú framkvæmd lenti undir
niðurskurðarhnífnum.
rafrænt réttarkerfi í
nágrannalöndum
norðmenn og Svíar eru mun lengra
komnir en Íslendingar í að tölvuvæða
sitt réttarfar. Í noregi vinna dómarar
meira og minna með rafræn gögn og
hafa m.a. um nokkurt skeið tekið á
móti öllum gögnum frá ákæruvaldinu í
rafrænu formi auk þess sem þeir úthluta
sakamálum til dómara á sama hátt.
Sænskir dómstólar taka sömuleiðis
rafrænt á móti öllum gögnum ákæru
valdsins og eru að þróa kerfi sem ætlað
er að taka við gögnum frá lögmönnum
á sama hátt. Þá hafa þeir látið útbúa
fullkomið upptökukerfi í máli og mynd
fyrir skýrslutökur í dómsmálum sem
vistast rafrænt sem hluti málsgagna.
Upptökurnar eru svo nýttar ef máli er
áfrýjað til æðra dómstigs. Þá styðjast
þeir einnig við fjarfundabúnað, t.d. við
framlengingu gæsluvarðhalds þannig að
ekki er þörf á að flytja fanga um langan
veg til að koma fyrir dómara. Slíkt kerfi
er ákaflega dýrt og ekki fyrirséð að það
komi í bráð á Íslandi.
Þegar Lögmannafélagið fór í
námsferð til eistlands árið 2010 fannst
þátttakendum mikið til koma hversu
tæknivæddir dómstólarnir voru þar í
landi. Teknar höfðu verið upp rafrænar
undirskriftir og svo til öll samskipti
lögmanna og dómstóla, s.s. sending
málsgagna, fór fram rafrænt. Hver
lögmaður hafði sitt heimasvæði hjá
dómstólunum þar sem fram komu
upplýsingar um hvenær mál væru tekin
fyrir, dómur gengi sem og fyrri dómar í
málum sem þeir höfðu flutt. Lögmenn
nýttu svo rafrænar undirskriftir til að
komast inn á sitt heimasvæði, undirrita
gögn og samninga svo fátt eitt sé nefnt.
rafrænar undirskriftir
Þegar notkun rafrænna skilríkja verður
algengari verður hægt að tryggja að
UMfJÖllUn
skjalageymslur héraðsdóms reykjavíkur eru fullar svo til vandræða horfir.
þingBóKin
Ég myndi vilja komast inn í þingbókina með lesaðgang og að það væri haldið rafrænt utan um
öll skjöl í málum. Í stærri sakamálum er verið að ljósrita mikið magn af skjölum sem ætti að vera
óþarfi. Sumir dómarar biðja um greinargerð og stefnu rafrænt en reglan er sú að farið er með
ljósrit fyrir gagnaðila og annað fyrir dóminn og enn fleiri ljósrit sé dómur fjölskipaður.
Kristín edwald hrl.