Lögmannablaðið - 01.03.2013, Blaðsíða 28
28 lögMannaBlaðið tBl 01/13
UMfJÖllUn
föstudaginn 1. fEBrúar síðast-
liðinn stóð lögfræðingafélag Íslands
fyrir hádegisverðarfundi um niðurstöðu
Efta dómstólsins í icesave-málinu
svokallaða. fundurinn var haldinn á
grand hótel reykjavík en þar fluttu
framsöguerindi þau Kristín haralds-
dóttir, sérfræðingur hjá háskólanum í
reykjavík, og reimar Pétursson hrl.
Kristín og reimar voru bæði í mál
flutnings teymi Íslands við rekstur málsins
fyrir dómstólnum og er því óhætt að
segja að þekking þeirra á viðfangsefninu
hafi verið mikil. Þau skiptu erindum
sínum þannig niður að Kristín fjallaði
aðallega um sakarefni málsins og
ákvörðunarástæður dómstólsins fyrir
niðurstöðu sinni á meðan reimar fjallaði
í sínu erindi um áhrif niðurstöðunnar
fyrir Ísland og hugsanlega önnur
aðildarríki evrópusambandsins.
sérstaklega vel og ítarlega
rökstuttur dómur
Kristín sagði í erindi sínu að dómstóllinn
hefði komist að þeirri afdráttarlausu
niðurstöðu að enga skyldu aðildarríkja
um að tryggja innstæður með ríkis
ábyrgð væri að finna í ákvæðum hinnar
umþrættu evróputilskipunar. Þá sagði
hún að þrátt fyrir að aðildarríki innan
eeS hefðu ríkt svigrúm til mats við
ákvarðanir sínar og að mismunun gæti
í sumum tilvikum verið réttlætanleg,
hafi dómstóllinn komist að þeirri
niðurstöðu að íslensk stjórnvöld hefðu
ekki mismunað hollenskum og breskum
innstæðueigendum með aðgerðum
sínum. Dómstóllinn hefði rakið það í
ítarlegu máli hvernig íslensk stjórnvöld
hefðu ekki gerst sek um mismunun og
hefði dómstóllinn jafnvel lagt lykkju á
leið sína við að útskýra hvers vegna
engin mismunun hefði átt sér stað.
Þannig hafi dómstóllinn farið út fyrir
hefðbundinn rökstuðning og svarað
álitaefnum umfram raunverulegt
sakarefni málsins.
Málið er úr sögunni
reimar vakti athygli fundarmanna á því
að í málinu hefði framkvæmdarstjórn
evrópusambandsins í fyrsta sinn stefnt
sér inn í dómsmál hjá eFTA dómstólnum
með meðalgöngu. Hann sagði að í
málflutningi framkvæmdarstjórnarinnar
fyrir dómstólnum hefði verið fullyrt að
málið væri evrópusambandinu afar
mikilvægt og að niðurstaða þess hefði
rík áhrif á framkvæmd og réttaráhrif
innstæðutrygginga innan sambandins. Af
þeim sökum hefði framkvæmdastjórnin
stefnt sér inn í málið og stutt sjónarmið
eftirlitsstofnunar eFTA gegn Íslandi. Það
væri því alveg ljóst að fordæmisgildi
dómsins væri verulegt.
Í kjölfar dómsins spunnust um
ræður í fjölmiðlum og á Alþingi um
hugsanlegar afleiðingar dómsins fyrir
Ísland og hvað evrópusambandið myndi
í framhaldinu gera gagnvart íslenskum
stjórnvöldum. Það væri því vafamál
hvort málinu væri í raun lokið. reimar
taldi þó ástæðulaust að velta þessu
fyrir sér. Dómurinn fæli í sér skýra og
endanlega niðurstöðu um úrlausn á
þjóðréttarlegum skuldbindingum Íslands
og í hans huga væri málið einfaldlega
úr sögunni.
reimar tók undir orð Kristínar um
að dómurinn væri afar vel rökstuddur.
evrópusambandið hefði reynt að beita
miklum pólitískum þrýstingi í málinu
og að trúverðugleiki eFTA dómstólsins
hefði aukist verulega með dóminum.
Það mætti sjá af umfjöllun í erlendum
fjölmiðlum. „Það er rík ástæða til að
hrósa eFTA dómstólnum fyrir að hafa
staðist þennan þrýsting og staðið vörð
um sjálfstæði sitt í þessu stóra deilumáli,“
sagði reimar á fundinum.
umræður á fundinum
Í kjölfar framsöguerinda gafst
fundar mönnum kostur á að beina
spurningum til þeirra reimars og
Kristínar. ein spurningin varðaði
málskostnaðarákvörðun dómsins en
í dóminum var eftirliststofnun eFTA
gert að greiða allan kostnað Íslands af
málarekstrinum. Þetta hafa sumir talið
vera vísbendingu um það hve mikill
sigur Íslands hafi verið í málinu. Kristín
svaraði því til að málskostnaðarákvörðun
dómsins væri eðlileg og í samræmi við
þá reglu dómstólsins að sá aðili sem
tapar í máli er dæmdur til að greiða
málskostnað gagnaðilans. Í þessari
málskostnaðarákvörðun fælist því ekkert
mat á réttmæti krafna eftirlitsstofnunar
eFTA. Aðspurð hversu hár kostnaður
Íslands af málarekstrinum hefði verið,
var svar Kristínar og reimars einfalt:
„ekki hugmynd“.
Haukur Örn Birgisson hrl.
úr klakaböndum icesave
Kristín haraldsdótttir.
reimar Pétursson.