Lögmannablaðið - 01.03.2013, Síða 20
20 lögMannaBlaðið tBl 01/13
Á léttUM nÓtUM
af Merði lögmanni
Eftir nokkra óvenju rýra mánuði hjá Merði í ýmsum hefðbundnum verkefnum, var svo
komið að hann var farinn að líta ofan í skjalamöppur með „ófrágengnum“ málum. Mörður
hefur aldrei verið með aðkeypt skjalavistunarkerfi og aldrei skilið hvaða tilgangi
slíkt þjónar. Hann hefur einfaldlega staflað þeim málum sem þarf að vinna í hverju
sinni næst sér á skrifborðið. Þegar hann er ekki lengur að vinna í málum fjarlægjast
þau og færast nær skrifborðsendunum. Stöku sinnum tekur svo Mörður lokin mál af
borðsendunum og setur í pappakassa. Kassana hefur hann fengið að geyma í bílskúr hjá
gamalli konu að vestan.
Eitt og eitt mál hefur þó lent í því að vera „ófrágengið“. Þá fara málsgögnin í
hillurekka á bak við skrifborðsstólinn. Þetta eru t.d. mál sem Mörður ætlar ekki að
vinna meira í fyrr en hann hefur fengið borgað inn á sína vinnu vegna þeirra. Þarna
hafa líka dagað uppi nokkur mál sem hann hefur lengi ætlað sér að skoða betur þegar
tími vinnst til. Þegar svoleiðis mál verða nógu gömul, enda þau gjarnan í bílskúrnum.
T.d. þegar kúnnarnir falla frá, eða þegar Merði þykir óbærileg tilhugsun að setja sig
inn í málin upp á nýtt og rifja upp hvað hefði e.t.v. verið rétt að gera í þeim.
Eitt málið sem Mörður rakst á í hillunni snerist um fjarskylda frænku hans að
vestan. Hún hafði dottið um hund bréfberans og rófubeinsbrotnað í útidyratröppunum
heima hjá sér. Svo hafði henni verið eitthvað vitlaust sinnt fyrir sunnan og var búin
að vera meira og minna heilsulaus síðan. Einhvern veginn hafði Merði aldrei tekist
að ná neinum tökum á því hvort stefna ætti póstinum vegna hundsins eða húsfélaginu
vegna ísingar á tröppunum eða spítalanum vegna meðferðarinnar. Í möppunni voru nokkur
gömul bréf sem hann hafði sent í ýmsar áttir vegna málsins. Aðallega voru þarna
samt ósvöruð bréf frá frænkunni. Þau elstu voru ósköp elskuleg og full þakklætis,
en svo höfðu þau breytt um tón fyrir nokkrum árum og orðið að fyrirspurnum og loks
skammarbréfum vegna þess að hann svaraði henni ekki. Mörður þakkaði sínum sæla fyrir
gamla og góða segulbandssímsvarann sem gerði honum kleift að sía svona vesen frá. Þar
hafði kerlingin verið eins og fastur dagskrárliður um margra ára skeið, en var nú sem
betur fer hætt að hringja jafn oft.
Mörður minntist þess frá fyrri yfirferðum sínum yfir hilluna með ófrágengnum málum
að hafa stundum sett þetta mál á skrifborðið. Þá hafði hann einsett sér að ýta þessu
áfram. Honum fannst málið þó ævinlega of snúið og frænkan of súr til að koma sér að
þessu. Málið rann því jafnan sína leið út á borðshornið og svo til baka í hilluna.
Yngstu bréfin í þessari möppu voru áberandi skjannahvít í samanburði við gulnuð
ljósritin af bréfum Marðar. Þar var t.d. bréf frá einhverri nýútskrifaðri stelpu
sem ekkert kunni í samskiptum við kollegana og hafði sent Merði harðort kröfubréf
um að fá þegar í stað öll gögn málsins afhent. Mörður hafði eiginlega ætlað sér að
hringja í hana og leiðbeina henni, en ekkert orðið af því. Nýjasta bréfið var svo
frá einhverjum pótintátum í einhverri nefnd í Lögmannafélaginu sem höfðu fengið
kvörtun frá frænkunni og óskuðu eftir greinargerð frá honum, rétt eins og hann væri
glæpamaður.
Mörður dæsti. Hann sá að það var útilokað að færa málið úr „ófrágengið“ og í
„lokið“. Frænkan var samt komin á sjötugsaldur og langlífi hafði nú ekki beinlínis
einkennt hennar fólk. Hann hripaði því niður bréf til nefndarinnar um að eiginlega
væri þessi frænka sín hálfbiluð manneskja og hefði lagt hann í einelti. Hann hefði
fyrir löngu útskýrt fyrir henni að þetta mál væri mjög flókið og það krefðist
mikillar yfirlegu að taka ákvörðun um næstu skref. Hann myndi hér eftir sem hingað
til hafa samráð við hana, en hún ætti reyndar eftir að greiða töluverðan kostnað. Auk
þess þyrfti hann að fá alllangan frest ef hann ætti að skila ítarlegri greinargerð
þar sem hann væri að fara í erfiða læknisaðgerð.
Skjalamöppuna ákvað Mörður að best væri að leggja á skrifborðið miðja vegu á milli
sætisins og borðshornsins. Hann ætlaði að sjá til hvort hann gæti ekki litið betur á
þetta fljótlega.