Lögmannablaðið - 01.03.2013, Side 27
UMfJÖllUn
Lárus: eFTA dómstóllinn á skilið hrós
fyrir að hafa dæmt að lögum vegna þess
að hann er undir gríðarlegum þrýstingi.
vinir okkar á norðurlöndum voru til
dæmis algjörlega á bandi eSA í þessu
máli og framkvæmdastjórn eSb var aðili
að því. Það er því ekki skrítið að menn
hafi óttast niðurstöðuna.
lærdómur fyrir litla þjóð
Eyvindur: Svo virðist sem gengið hafi
verið út frá því í ESB að bankar frá
öllum ríkjum, hversu stór sem þau eru,
geti keppt á jafnræðisgrundvelli og nýtt
sér regluverkið sem einkaaðilar til að
starfa. Stjórnvöld í heimaríkinu geti
hins vegar lítið gert til að takmarka
þá starfsemi en þurfi svo engu að síður
að borga ef eitthvað klikkar.
Lárus: menn óttuðust mest þá niðurstöðu
að við værum að mismuna aðilum og
bærum þess vegna ábyrgð á mögulega
allri upphæðinni. við bentum á það,
sem eFTA dómstóllinn byggði síðar á
sína niðurstöðu, að það væri verið að
endurreisa fjármálakerfið og þetta væri
hluti af þeirri aðgerð. Þetta varðaði ekki
beitingu á innistæðutryggingakerfinu
heldur fyrst og fremst það að
fjármálakerfið væri hrunið og að þetta
væri hluti af endurreisn þess. við vorum
að flytja innistæðurnar yfir í nýja banka
til að tryggja starfhæft fjármálakerfi í
landinu.
Eyvindur: Hver er lærdómur Icesave
málsins fyrir Ísland í samskiptum við
önnur ríki?
Lárus: við erum lítil þjóð og hinar stærri
og sterkari hafa mun meiri áhrif en við,
það er augljóst. Holland og bretland eiga
auðveldara með að fá aðrar þjóðir til
fylgilags við sig en við og meira að segja
norðurlandaþjóðirnar töldu standa sér
nær að styðja við kröfur þeirra en okkar.
Íslendingar þurfa að hefja umræðu um
stöðu smáríkja á alþjóðlegum vettvangi.
Að lenda í þeirri stöðu að stórþjóðir
komist upp með að nýta sér það ástand
sem hér var til að ná fram óeðlilegri
niðurstöðu í máli er eitthvað sem þarf
að velta fyrir sér.
Stefán Már: við þurfum einhvers konar
neyðarhnapp, þannig að hægt væri að
leita óháðs lögfræðilegs álits lögfræðinga
utan kerfisins, hvort heldur innlendra
eða erlendra.
AÐ HVERJU
ÞARF ÉG AÐ HUGA?
Almenni lífeyrissjóðurinn veitir
faglega og persónulega ráðgjöf
og fer vel yfir þín mál.
Hafðu samband við okkur og við
finnum hentuga leið fyrir þig og þína
• lífeyrissjóði og eftirlaunum
• vörn gegn tekjumissi
vegna veikinda eða slysa
• skipulegum sparnaði
• uppbyggingu eigna
Borgartúni 25 • sími 510 2500 • www.almenni.is
A
N
TO
N
&
B
ER
G
U
R