Lögmannablaðið - 01.03.2013, Side 31
lögMannaBlaðið tBl 01/13 31
UMfJÖllUn
sér kostnaðarhliðinni áður en farið er af
stað með dómkvaðningu. málskostnaður
vegna matsgerðar lendir í bráð á þeim
sem biður um gerð hennar og matsmaður
þarf ekki að afhenda matgerð nema
gegn greiðslu. vinni sá sem óskar
matsbeiðnar mál fyrir dómi, fær hann
almennt séð útlagðan matskostnað
tildæmdan úr hendi gagnaðilans sem
hluta af málskostnaði. Tapi hann á hinn
bóginn málinu, situr hann að jafnaði
uppi með útlagðan matskostnað. Sem
dæmi má nefna dómsmál vegna galla,
þ.m.t. hönnunargalla í stóru fjölbýlishúsi
þar sem meintir gallar voru metnir á
rúmar 30 milljónir. Dæmdar bætur í
málinu í Hæstarétti voru svipaðar og
málskostnaður málshefjanda og er
þá ekki talinn með málskostnaður
varnaraðila.
rétt unnið matsferli
mikilvægt er að matsferlið sé rétt unnið
og að matsmenn gæti fyllsta hlutleysis
í störfum sínum. Þeir þurfa að gæta
þess að matsaðilar og fulltrúar þeirra fái
boðanir á matsfundi, eigi þess jafnan
kost á að leggja fram gögn og koma
fram sjónarmiðum sínum. Fundargerðir
matsfunda eru gríðarlega mikilvæg skjöl
og gott að gefa aðilum kost á að reifa
málin munnlega fyrir matsmönnum. Þá
er mjög mikilvægt að dagssetja matsgerð
og undirrita hana en á því er stöku
sinnum misbrestur.
fErill dóMKvaddra Mata
• Matsbeiðni skrifuð. Áður hafa aðilar komið sér saman um matsmenn.
• Orðalag spurninga. Matsmenn svara einungis því sem spurt er um.
• Matsbeiðni send dómara í viðkomandi umdæmi eða héraðsdómi.
• Fyrirtaka máls hjá dómara. Dómari boðar áður aðila skriflega til fyrirtöku í
dómi. ef aðilar eru sammála um matsmenn eða matsmann tekur dómari það
að öllu jöfnu til greina. umræður um matsmenn. máli hugsanlega frestað
til frekari skoðunar og síðan önnur fyrirtaka. dómari hafnar dómkvaðningu.
mótmæli gegn dómkvaðningu. Kæra til Hæstaréttar.
• Dómkvaðning matsmanna eða matsmanns.
• Matsbeiðandi eða umboðsmaður hans kemur útskrift úr þingbók um
dómkvaðningu, matsbeiðni og öðrum gögnum til matsmanna.
• Matsmaður fær gögn í hendur og bókar hvenær hann fær gögnin. Matmaður
kannar hæfi sitt ef það er ekki þegar búið.
• Matsmaður boðar skriflega til fundar þá aðila sem kveðja á til matsfundar.
• Matsfundur og framhalds matsfundir.
• Ný gögn. Ef eitthvað nýtt kemur fram skal kynna málsaðilum það.
• Matsgerð samin. Niðurstöður þarf að rökstyðja.
• Matsgerð undirrituð og dagsett.
• Matsgerð skilað til matsbeiðanda. Eintak fer ekki til gagnaðila. Fjöldi
eintaka ræðst af aðstæðum í hverju máli.
• Greiðsla fyrir matsgerð. Ekki þarf að afhenda matsgerð nema gegn
greiðslu.
• Matsgerð kynnt gagnaðila eða lögð fram í dómsmáli.
• Niðurstaða matsgerðar þess eðlis að mál er fellt niður. Sættir takast á
grundvelli matsgerðar. greitt á grundvelli matsgerðar. einkamáli haldið
áfram. dómsmál höfðað. beðið um yfirmat.
• Skýrslur matsmanna fyrir dómi.
• Dómur.
• Áfrýjun til Hæstaréttar.
• Dómur Hæstaréttar.