Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2012, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2012, Blaðsíða 3
Fréttir 3Mánudagur 22. október 2012 Bankinn tók stöðu gegn viðskiptavinum sínum n Hæstiréttardómur um stöðutöku Heiðars Más n Gengistryggð lán jukust um 400 prósent„Af minnisblað- inu verður ekki séð að hugtök þessi séu notuð í skýrt að- greindri merkingu G ísli Hjálmtýsson, fram- kvæmdastjóri fjárfestingar- fyrirtækisins Thule Invest- ments, hefur látið kyrrsetja tvo bankareikninga félags í eigu athafnamannsins Tryggva Péturssonar í Lúxemborg. Kyrr- setningarbeiðnin var samþykkt af sýslufulltrúa í Lúxemborg þann 13. ágúst síðastliðinn. Reikningarnir eru í Havilland-bankanum, arftaka Kaupþings í Lúxemborg. Thule rekur tvo fjárfestingar- sjóði, Brú I og Brú II, sem eru í eigu lífeyrissjóða eins og Gildis, LSR, Líf- eyrissjóðs verslunarmanna, Stapa, Stafa, Sameinaða lífeyrissjóðs- ins en einnig fjárfestingarbank- ans Straums, Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og Tryggingamið- stöðvarinnar. Ein af þekktari eign- um sem Thule vinnur með er verk- smiðjutogarinn Blue Wave sem veiðir hestamakríl úti fyrir strönd- um Vestur-Afríku – DV sagði frá togaranum fyrr á árinu. Deilt um 700 þúsund dollara Kyrrsetningargerðin er hluti af deil- um og málaferlum á milli Gísla og Tryggva sem teygja sig nú til þriggja landa: Bandaríkjanna, Ís- lands og Lúxemborgar. Deilan snýst um viðskipti með hluta- bréf í bandaríska fyrirtækinu GT Life Sciences sem voru í eigu eins þeirra fyrirtækja sem Gísli stýrir hjá Thule Investments, Iceland Genomic Ventures Holding, þar til í október í fyrra. Tryggvi var í vinnu hjá Iceland Genomic Ventures Holding sem ráðgjafi á sviði fjár- festinga. Eitt af verkefnum hans var að vinna með hlutabréfaeign- ina í GT Life Sciences. Í kyrrsetningarbeiðninni frá Lúxemborg segir að hún byggi á því að Tryggvi hafi selt 3,5 millj- ónir hluta í GT Life Sciences fyrir nærri 3 milljónir dollara í október í fyrra og sjálfur tekið nærri 700 þúsund dollara af þessari upphæð. Í kyrrsetningarbeiðninni segir að Tryggvi hafi ekki haft neina heim- ild til þessa: „Herra TRYGGVI PETURSSON fyrirskipaði þannig í heimildarleysi, millifærslu að upp- hæð 694.635,- USD yfir á reikning fyrirtækisins ICELAND GENOMIC PARTNERS sem hann kallaði um- sýslugjöld (management fees) þó hann hafi aldrei lagt fram nokkurn reikning eða annað sem rökstyður þá greiðslu.“ Eftirstöðvarnar, tæp- lega 2,2 milljónir dollara voru svo millifærðar yfir á reikning Iceland Genomic Ventures Holding. Þá hefur Iceland Genomic Ventures Holding höfðað mál á hendur fyrirtæki Tryggva og hon- um sjálfum fyrir dómstól í Suð- ur-Kaliforníu í Bandaríkjunum út af sama máli. Þetta kemur fram í stefnunni í því máli sem DV hefur undir höndum. Kærði Gísla Á sama tíma og sótt er að Tryggva í Lúxemborg og Bandaríkjunum hefur hann kært Gísla Hjálmtýs- son til embættis sérstaks sak- sóknara fyrir meint lögbrot í rekstri Thule Investments. Sú kæra, sem sérstakur sak- sóknari vísaði frá þann 20. sept- ember síðastliðinn, byggir á því að Gísli hafi gerst sekur um meint „umboðssvik eða fjársvik“, eins og segir í frávísunarbréfi frá emb- ættinu í málinu. Tryggvi vill meina að Gísli hafi „misnotað aðstöðu sína“ og „blekkt seljendur sína“ þegar hann keypti persónulega 30 prósent hlutafjár í Icelandic Genomic Ventures af hluthöfum Brúar skömmu áður en hlutabréf þess í GT Life Sciences voru seld og skömmu áður en tilkynnt var um skráningu annars dótturfé- lags þess, Genomatica, á markað í Bandaríkjunum. Um þetta segir í kæru Tryggva til sérstaks saksóknara sem unn- in er af Sveini Andra Sveinssyni lögmanni: „Í september 2011 fékk kærandi þær upplýsingar að kærði hefði persónulega keypt 30 pró- senta hlut í GH sem áður var í eigu Brúar (Bru Venture Capital) sem er í eigu lífeyrissjóðanna á skrapvirði á sama degi og Genomatica til- kynnti að SEC hefði samþykkt út- boðslýsingu sína vegna skráningar á markað, eða þann 25. ágúst 2011. Hlutur þessi hafði áður verið eign Burðaráss og Þróunarfélags Ís- lands og var greitt US 2.000.000 fyr- ir hann.“ Þá segir í kærunni að Gísli hafi leyst til sín hlutabréf Straums og lífeyrissjóðanna og „leynt“ þá upplýsingum um stöðu fyrirtækj- anna sem hlutabréfin voru í og hagnast þannig „persónulega um hundruðir [sic] milljóna króna“. Málaferlin gegn Tryggva í Bandaríkjunum standa nú yfir. n n Deilur Gísla Hjálmtýssonar og Tryggva Péturssonar teygja sig til þriggja landa Málarekstur í þremur löndum Gísli Hjálmtýsson, framkvæmdastjóri fjárfestingarsjóðsins Brúar, stendur í málaferlum við Tryggva Pétursson í Bandaríkjunum og lét kyrrsetja bankareikning hans í Lúxemborg. Sjálfur hefur Tryggvi kært Gísla til sérstaks saksóknara. LÉT KYRRSETJA REIKNING TRYGGVA Í LÚXEMBORG „Kyrrsetn- ingargerðin er hluti af deilum og málaferlum á milli Gísla og Tryggva sem teygja sig nú til þriggja landa vissulega hafi þetta fólk íhugað að fara í skaðabótamál gagnvart bönkunum fyrir að veita þeim lé- lega ráðgjöf í lánamálum. Sér- staklega þegar litið er til þess að bankinn tryggði sig sjálfur gegn falli krónunnar. Hann bendir þó að slík málaferli séu mörgum annmörkum háð: Þau séu kostn- aðarsöm, erfitt sé að færa sönn- ur á að brotið hafi verið á við- skiptavinunum og spurningar séu uppi um að hverjum slík málaferli eigi að beinast. „Í grun- inn er það þannig, eins og ég skil MIFID-reglurnar, að bankarnir megi ekki veita neina ráðgjöf til venjulegra kúnna sem er bank- anum í hag en viðskiptavinunum í óhag; þeir verða alltaf að veita viðskiptavinunum þá bestu ráð- gjöf sem möguleg er hverju sinni.“ Jóhannes vill því meina að reglan um vinnulag banka hvað varðar ráðgjöf til viðskiptavina sinna sé mjög skýr en að slík málaferli séu mjög snúin og standi í reynd „á brauðfótum“. „Það er engin tölvu- póstsamskipti þar sem einhver starfsmaður Landsbankans segir: „Taktu þetta í erlendu“.“ Þó svo að ársreikningar Sam- sonar sýni slíka stöðu á móti krón- unni, og hagnað eða tap eftir því hvort krónan hélt velli eða féll, þá gætu viðskiptavinir Landsbank- ans átt í erfiðleikum með að leita réttar síns gagnvart bankanum vegna þessa. n Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.