Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2012, Blaðsíða 14
Sandkorn
G
uð blessaði Ísland,“ sagði
Hallgrímur Helgason á
sunnudag. Úrslit í ráðgefandi
kosningu um stjórnarskrár
breytingar lágu fyrir og vilji
þjóðarinnar var ljós, afgerandi vilji er
til að tillögur stjórnlagaráðs verði lagð
ar til grundvallar að frumvarpi að nýrri
stjórnarskrá.
Það er sigur almannahagsmuna
gegn einkahagsmunum, almennings
gegn foringjaræði en fyrst og fremst
sigur fyrir lýðræðið í landinu. Í fyrsta
sinn var íslenskri þjóð gefinn kostur á
að koma að endurskoðun á stjórnar
skránni með beinum hætti, semja um
sáttmálann um þær leikreglur sem
hér eru hafðar að leiðarljósi og móta
grunngildin í íslensku samfélagi.
Engu að síður sagði formaður
Sjálfstæðisflokksins að kosningin væri
ólýðræðisleg. Sami maður og sendi
bréf á fimmtíu þúsund flokksfélaga
sína þar sem hann hvatti þá til þess
að mæta á kjörstað og segja nei við
tillögum stjórnlagaráðs. Sami maður
og segist vera hlynntur breytingum á
stjórnarskránni en ósáttur við vinnu
brögðin og þetta lýðræðislega ferli.
Sami maður og talaði um handar
baksvinnubrögð og sagði ábyrgðar
hluta að spyrna ekki við fæti, nýta
hvert tækifæri til þess að koma í veg
fyrir fúsk, og er eindregið á móti því
að tillögur stjórnlagaráðs verði not
aðar sem grunnur að nýrri stjórnar
skrá Íslendinga. Sami maður og sagði:
„ Niðurstaðan ræður ekki úrslitum um
eitt eða neitt.“
Það er miður að Alþingi hafi ekki
tekist að fylgja fordæmi stjórnlaga
ráðs, að því hafi ekki tekist að vinna
saman, leysa ágreiningsmál og
komast að niðurstöðu. Sundrungin
hefur ráðið ríkjum og grafið undan
trúverðugleika þingsins og trausti
til þess. Nú ríður á að ráðamenn
virði vilja þjóðarinnar, taki höndum
saman og samþykki nýja stjórnar
skrá sem hægt verði að leggja fyrir
þjóðina til að staðfesta hennar vilja
samhliða næstu Alþingiskosningum.
Ef fram fer sem horfir verður
Sjálfstæðisflokkurinn í næstu ríkis
stjórn og Bjarni Benediktsson for
sætisráðherra landsins. Hann er nú
þegar farinn að gera lítið úr niður
stöðunni, velta því fyrir sér hvað hún
þýði og hvað eigi að gera við hana,
það megi ekki gera lítið úr þeim sem
sátu heima í stað þess að kjósa.
Það má ekki gerast að þetta tæki
færi þjóðarinnar til að láta rödd sína
heyrast verði haft að engu, að niður
stöður kosninganna verði túlkaðar
og teygðar í allar áttir þar til ekkert
stendur eftir nema vilji ráðamanna,
afbökun á veruleikanum og argaþras
sem skilur ekkert eftir sig. Ef það
gerist verður almenningur að taka
sér stöðu, byrsta sig og öskra þar til
það heyrist að við látum ekki bjóða
okkur það, vilji þjóðarinnar verði
ekki hundsaður.
Reiðarslag Bjarna
n Bjarni Benediktsson, formað
ur Sjálfstæðisflokksins, veðj
aði á rangan hest þegar hann
beitti sér gegn tillögum stjórn
lagaráðs og vildi fella þær.
Mikill meirihluti þeirra sem
kusu er á þeirri skoðun að til
lögurnar skuli lagðar til grund
vallar breytingum á stjórnar
skránni. Þá er yfirgnæfandi
meirihluti sem vill að auðlindir
þjóðar sem ekki teljast til sér
eignar fari í þjóðareign. Bjarni
hefur fylgt mjög þeirri harð
línustefnu Davíðs Oddssonar
að ekki megi skerða hagsmuni
Guðbjargar Matt híasdóttur,
eiganda Ísfélagsins og Mogg
ans. Niðurstaðan hlýtur að
vera Bjarna reiðarslag.
Bjöggi skammar Villa
n Vilhjálmur Bjarnason, fjár
festir og spurninganörd, hef
ur ákveðið að bjóða sig fram í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
í Kraganum. Vilhjálmur er
þekktur krossfari gegn spill
ingu í viðskiptum og hefur
verið óþreytandi við að berja
á útrásarvíkingum á borð við
Björgólf Thor Björgólfsson. Þeir
menn sem verða fyrir barðinu
á Vilhjálmi eru ófeimnir við
að benda á þá fortíð hans að
hafa undir fölsku flaggi boðið
í Landsbankann. „Hann sagð
ist þá fara fyrir hópi „venju
legra sparifjáreigenda“. Síðar
kom í ljós að þessir „venjulegu
sparifjáreigendur“ voru í raun
Eignarhaldsfélagið Bruna
bótafélag Íslands,“ segir á
heimasíðu Björgólfs Thors.
Brynjar sér rautt
n Það má reikna með fjöri í
kosningabaráttu sjálfstæð
ismanna þegar Brynjar Níels-
son lögmað
ur mætir í
slaginn. Brynj
ar liggur að
nokkru leyti
nálægt harð
línu flokks
ins sem sér
rautt til vinstri. Hins vegar
þykir hann vera ófeiminn við
að segja hug sinn og fer ekki
alltaf ótroðnar slóðir. Víst er
að ef hann nær inn á þing
mun gusta af honum. En
spurningin stendur um það
hvort flokkseigendafélagið
samþykki nýliðann.
Krónuníðingsmálið
n Stöð 2 hefur miklar mætur
á Heiðari Má Guðjónssyni fjár
festi sem er kallaður til í tíma
og ótíma til að tjá sig um ólík
legustu hluti. Sérstaka athygli
vakti að daginn sem Hæsti
réttur sýknaði DV af milljóna
kröfum Heiðars í Krónuníð
ingsmálinu var hann mættur
í viðtal við fréttastofu Stöðvar
2 til að spjalla um eitthvað allt
annað. Hann var ekki spurður
einu orði um það áfall að tapa
í Hæstarétti. Heiðar hefur ótal
sinnum verið kallaður til á
flestum miðlum 365. Þykir það
vera vísbending um að hann
njóti velvildar Jóns Ásgeirs Jó-
hannessonar athafnamanns.
Ég er í París Okkur vantar
vinnandi fólk
Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir hélt upp á fimmtugsafmælið. – DV Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð, segir næga vinnu að hafa. – bb.is
„Guð blessaði Ísland“„Nú ríður á að ráða-
menn virði vilja
þjóðarinnar
Að afstöðnum kosningum
K
osningar um tillögur stjórn
lagaráðs eru nú afstaðnar.
Helmingur kjósenda mætti og
svaraði kalli Alþingis um leið
beiningu. Yfirgnæfandi meirihluti
samþykkti tillögur stjórnlagaráðs
sem grundvöll að nýrri stjórnarskrá.
Landsmenn tóku líka nýmælum eins
og auðlindaákvæði, persónukjöri og
beinu lýðræði fagnandi. Jafnt vægi at
kvæða hlaut hljómgrunn en þó ekki
í öllum landshornum. Sömuleiðis
var vilji fyrir óbreyttu kirkjuákvæði.
Þessi þjóðardómur er skýr og gott
veganesti fyrir Alþingi á lokasprettin
um.
Andstæðingar tillagna stjórnlaga
ráðs gerðu fyrirfram lítið úr vægi
þessara kosninga. Ástæðan var aug
ljóslega sú að niðurstaðan gæti orðið
þeim andstæð. Strax er byrjað að
hamra á lélegri kjörsókn. Ekki veit
ég hvar menn setja mörkin en lík
ast til yrðu þau afar misvísandi milli
manna, jafnvel innan sama hóps
manna eftir því hvaða málefni ætti í
hlut. Gætum einnig að því að kosn
ingaskylda er ekki hluti af stjórn
skipun Íslands og heimaseta því val
hvers og eins. Ei heldur er krafa um
lágmarkskosningaþátttöku þannig að
þeir einir ráði sem mæta. Auðvitað
geta menn eignað sér heimasetufylg
ið en slíkt eignarhald er í senn gildis
laust og óskhyggja. Eða hvaða flokki
tilheyra þessi 20 prósent sem sitja
jafnan heima í þingkosningum?
Þetta ferli, að færa stjórnarskrár
gjöfina úr höndum Alþingis í hend
ur fólksins, hefur með atkvæða
greiðslu helgarinnar sannað sig.
Tilgangurinn var að klára verk sem
Alþingi var fyrirmunað að klára og
það tókst. Forsætisráðherra sagði í
Silfri Egils að þinginu væri í lófa lagið
að klára frumvarp til nýrrar stjórnar
skrár í vetur, byggt á tillögum stjórn
lagaráðs, og leggja það fullbúið fyrir
þjóðina samhliða alþingiskosningum
í vor. Vona ég sannarlega að sá verði
gangurinn.
Atkvæðagreiðslan um helgina
endurspeglar eindreginn vilja þjóðar
innar til lýðræðisáttar og það ættu öll
stjórnmálaöfl á Íslandi að taka til sín.
Annað er ávísun á einangrun.
Ég óska loks landsmönnum til
hamingju með þennan merka áfanga
og verði þinginu að góðu.
Leiðari
Ingibjörg Dögg
Kjartansdóttir
ingibjorg@dv.is
Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Ólafur M. Magnússon Ritstjóri: Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg
Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is)
Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: www.dv.is
F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð
Heimilisfang
Tryggvagötu 11
Hafnarhvoli, 2. hæð
101 Reykjavík
FRéTTASkoT
512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
AÐALnúmeR
RiTSTJÓRn
ÁSkRiFTARSími
AuGLýSinGAR
14 22. október 2012 Mánudagur
Kjallari
Lýður Árnason
„Tilgangurinn var að
klára verk sem Al-
þingi var fyrirmunað að
klára og það tókst