Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2012, Side 8
S
éra Bryndís Valbjarnardóttir
er hætt sem prestur í Frí-
kirkjunni. Safnaðarráð kirkj-
unnar sagði Bryndísi upp
störfum stuttu eftir aðalsafnaðar-
fund sem haldinn var í maí síðast-
liðinn. DV hefur greint frá deilum
innan safnaðar Fríkirkjunnar og
mikilli ólgu í kringum séra Hjört
Magna Jóhannsson, forstöðumann
kirkjunnar. Heimildarmaður DV
úr söfnuðinum kemst svo að orði
að Hjörtur hafi „bolað Bryndísi úr
kirkjunni“ og segir hann þjást af
„valdasýki“.
„Mér finnst sorglegt að prestur-
inn átti sig ekki á því að hann á ekki
kirkjuna, hann er aðeins þjónn
hennar.“
Samstarfsörðugleikar og
einelti
Ekki er langt síðan annar prestur
var látinn taka pokann sinn eftir
deilur við Hjört. Séra Ása Björk
Ólafsdóttir lét af störfum sem
prestur við Fríkirkjuna árið 2008.
Að eigin sögn hraktist Ása frá störf-
um vegna framkomu Hjartar í sinn
garð og lýsti hún meintu einelti
Hjartar í viðtali við DV.
Bryndís var látin hætta störf-
um umsvifalaust þrátt fyrir að eiga
rétt á þriggja mánaða uppsagnar-
fresti. „Skýringin sem er gefin upp
er að þetta sé vegna rekstrarhag-
ræðingar,“ segir Bryndís. Hún tel-
ur þó augljóst að fleira búi að baki.
„Hann vill ekki vinna með mér,“
segir hún og tekur fram að mál-
inu svipi til uppsagnar Ásu Bjarkar.
„Þetta er bara samsvarandi. Hann
virðist ekki geta unnið með fólki.“
„Óásættanleg framganga“
Á aðalfundi Fríkirkjunnar í
maí var kosið nýtt safnaðarráð.
Skömmu áður höfðu fjórir af sjö
meðlimum ráðsins sagt sig úr því
vegna „ óásættanlegrar framgöngu
Hjartar Magna Jóhannssonar í
mörgum málum, bæði gagnvart
starfsfólki safnaðarins og okkur
í safnaðarráðinu í langan tíma,“
að því er sagði í tilkynningu frá
hópnum. Samkvæmt heimildum
var það kornið sem fyllti mælinn
hjá meirihluta safnaðarráðsins að
Hjörtur hafi viljað losna við Bryn-
dísi úr kirkjunni.
„Hann var búinn að safna öllu
sínu já-fólki allt í kringum sig á
fundinum. Það var allt afgreitt
einn, tveir og sjö, keyrt í gegn og
allir klöppuðu. Þetta var alveg
ótrúlegt,“ sagði Ingunn Hafdís Þor-
láksdóttir, fyrrverandi varafor-
maður safnaðarráðsins, um að-
alfundinn í samtali við DV. Nýja
safnaðarráðið fékk það hlutverk
að stofna nefnd innan kirkjunnar
til þess að rannsaka áðurnefndar
ásakanir og deilurnar innan kirkj-
unnar. Það gerði ráðið ekki en
sagði Bryndísi í kjölfarið upp störf-
um vegna aðhaldsaðgerða kirkj-
unnar.
Á undanförnum árum hefur
Fríkirkjan yfirleitt verið með tvo
presta á sínum snærum. Ekki ligg-
ur fyrir hvort annar prestur verð-
ur ráðinn í stað Bryndísar en verði
það ekki gert verður Hjörtur eini
prestur kirkjunnar. Ekki náðist í
Hjört Magna við vinnslu þessarar
fréttar. n
8 Fréttir 22. október 2012 Mánudagur
Íbúðaverð
hækkaði
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu
hækkaði um 0,7 prósent í septem-
ber frá fyrri mánuði samkvæmt
mælingum Þjóðskrár Íslands sem
birtar voru á fimmtudag. Íbúðir í
fjölbýli hækkuðu um 0,8 prósent
frá fyrri mánuði og íbúðir í sérbýli
um 0,3 prósent. Fjallað er um mál-
ið á vef Greiningar Íslandsbanka en
þar kemur fram að fjölbýli vegi mun
þyngra í vísitölunni enda er lunginn
úr viðskiptum á íbúðamarkaði með
eignir í fjölbýli eða um 74 prósent af
heildinni. „Undanfarna mánuði hef-
ur hægt á hækkunartakti íbúðaverðs
en í lok síðasta árs var 12 mánaða
takturinn kominn upp í 9,9%. Núna
er 12 mánaða taktur íbúðaverðs
hinsvegar í 6,0%. Verðbólga hefur
undanfarna 12 mánuði verið 4,3%
og hefur íbúðaverð því hækkað um
tæp 2% umfram verðlag undanfarið
ár,“ segir í frétt Greiningar Íslands-
banka.
Þrátt fyrir að hægt hafi á hækk-
unartaktinum telur Greining bank-
ans að íbúðaverð muni hækka
á næstu misserum. Þannig gerir
bankinn ráð fyrir að íbúðaverð
hækki um 8 prósent umfram verðlag
þar til í árslok 2014. „Sú spá er byggð
á þeirri forsendu að efnahagsbatinn
haldi áfram á næstu árum og m.a.
að ráðstöfunartekjur heimilanna
haldi áfram að aukast. Auk undir-
liggjandi efnahagslegra þátta gerum
við einnig ráð fyrir að uppsöfnuð
spurn eftir húsnæði muni styðja við
verðhækkun íbúðaverðs.“
Dómur fyrir
kannabisvörslu
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi
fyrir helgi karlmann í fjögurra
mánaða fangelsi fyrir fíkniefna-
lagabrot. Maðurinn var ákærður
fyrir að hafa í apríl síðastliðnum
haft í vörslu sinni 93 kannabis-
plöntur og 173 grömm af kanna-
bislaufum og hafa um nokkurt
skeið ræktað greindar plöntur, eins
og segir í dómnum. Maðurinn ját-
aði brot sín skýlaust fyrir dómi en
hann hefur ekki áður sætt refsingu.
Þá var manninum gert að sæta
upptöku á fimm gróðurhúsalömp-
um, tveimur ljósaperum, þremur
spennubreytum, fimm tímarof-
um og öðrum búnaði sem notaður
var við ræktun kannabisplantn-
anna. Dómurinn yfir manninum
er skilorðsbundinn til tveggja ára.
Auk þess var honum gert að greiða
allan sakarkostnað málsins sem
nam tvö hundruð þúsund krónum.
Bryndís rekin
frá fríkirkjunni
n Safnaðarráð stofnaði nefnd til að rannsaka deilur en rak prestinn í staðinn „Mér finnst sorglegt
að presturinn átti
sig ekki á því að hann á
ekki kirkjuna, hann er að-
eins þjónn hennar
Óeining Ekki eru allir á eitt sáttir með
vinnulag séra Hjartar Magna Jóhannssonar,
forstöðumanns Fríkirkjunnar.
Fríkirkjan Bryndís Valbjarnardóttir er annar prestur Fríkirkjunnar á fáum árum sem hættir störfum vegna samstarfsörðugleika við
Hjört Magna Jóhannsson.
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
Ólafur Kjaran Árnason
blaðamaður skrifar olafurk@dv.is