Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2012, Qupperneq 12
Afdrif GAddAfi-fjölskyldunnAr
Nýr yfirmaður frekar en hærri laun
n Meirihluta Bandaríkjamanna á vinnumarkaði líður illa í vinnunni
S
extíu og fimm prósent
Bandaríkjamanna á vinnu-
markaði myndu frekar
velja að yfirmaður þeirra
væri rekinn úr starfi en að fá
launahækkun hjá fyrirtækinu.
Þetta leiðir ný könnun í ljós sem
bandaríski vinnusálfræðingurinn
Michelle Mc Quaid lét framkvæma
fyrir skemmstu og Forbes grein-
ir frá.
Samkvæmt niðurstöðum
könnunarinnar virðist meirihluti
Bandaríkjamanna á vinnumarkaði
vera óhamingjusamur í starfi – 36
prósent samkvæmt könnuninni.
Oftar en ekki er yfirmanninum
kennt um það sem miður fer og
það leiða niðurstöður könnunar-
innar svo sannarlega í ljós. Þannig
sögðust 70 prósent aðspurðra
verða hamingjusamari og 55 pró-
sent farsælli í starfi ef sambandið
við yfirmanninn væri betra. Tæp-
lega þriðjungur aðspurðra sagði
yfirmann sinn ekki kunna að meta
störf þeirra á meðan fimmtán pró-
sent aðspurðra sögðust hrein-
lega vera einmana og líða illa í
vinnunni. 42 prósent aðspurðra
sögðu yfirmann sinn ekki leggja
sérstaklega hart að sér og 20 pró-
sent að yfirmaður þeirra væri
óheiðarlegur.
Michelle McQuaid er einna
þekktust fyrir bókina Fimm ástæð-
ur til að segja yfirmanni þínum að
fara til fjandans. Hún segir í viðtali
við Forbes að það sé rökrétt álykt-
un hjá fólki að kjósa frekar nýjan
yfirmann en fá launahækkun. Ný
tækifæri kæmu með nýjum yfir-
manni og fólk hugsi þá um lang-
tímaávinning og meiri velgengni til
lengri tíma litið sem gæti leitt af sér
talsvert hærri laun.
Þúsund manns úr öllum starfs-
stéttum tóku þátt í könnuninni. n
12 Erlent 22. október 2012 Mánudagur
Eiginkonan:
Safiya Gaddafi
Safiya Gaddafi, eða Safiya Farkas
eins og hún heitir í dag, átti sjö börn
með Gaddafi en forsetinn fyrrver-
andi átti átta börn svo vitað sé. Hún
hefur dvalið í Alsír síðastliðið ár eftir
að hafa verið veitt hæli af „mann-
úðarástæðum“. Hún yfirgaf höfuð-
borg Líbíu, Trípólí, ásamt dóttur
sinni, Ayeshu, og eina syni Gadda-
fis af fyrra hjónabandi, þann 29.
ágúst 2011 þegar uppreisnarmenn
náðu völdum í höfuðborginni. Talið
er að hún haldi til í stóru glæsihúsi
í bænum Staoueli sem er skammt
frá Algeirsborg. Hún er undir eftirliti
yfir valda í Alsír og má ekki und-
ir neinum kringumstæðum tjá sig
opin berlega um málefni Líbíu.
Sonur:
Muhammad Gaddafi
Ef hlutirnir hefðu ekki farið á versta
veg fyrir Gaddafi-fjölskylduna
hefði Muhammad Gaddafi að öll-
um líkindum eytt síðsumrinu á
Ólympíuleikunum í London sem
yfirmaður Ólympíunefndar Líbíu.
Þess í stað hefur þessi elsti sonur
Muammars Gaddafi eytt síðastliðnu
ári í Alsír eftir að hafa flúið Líbíu eft-
ir að uppreisnarmenn náðu völdum
í Trípólí. Muhammad er sonur fyrstu
eiginkonu Muammars Gaddafi,
Fathiu. Á valdatíma föður síns var
hann stjórnarformaður ríkisfyrir-
tækis Líbíu sem sá um farsímakerfi
og fjarskipti í landinu. Hann var ekki
ákærður af Alþjóðasakamáladóm-
stólnum og er ekki talinn hafi tekið
þátt í að berja niður uppreisnina.
Sonur:
Saif al-Islam Gaddafi
Saif al-Islam var lengi talinn óum-
deildur arftaki föður síns á stóli
forseta. Hann var tekinn höndum
nokkrum mánuðum eftir dauða föð-
ur síns og hefur síðan verið í haldi
í fjallabænum Zintan í norðvestur-
hluta landsins. Saif er með há-
skólapróf frá The London School
of Economics. Það eru ekki bjartir
tímar framundan hjá honum. Al-
þjóðasakamáladómstóllinn hefur
gefið út handtökuskipun á hend-
ur honum fyrir glæpi gegn mann-
kyninu en á sama tíma vilja yfir-
völd í Líbíu rétta yfir honum í Líbíu.
Svo virðist sem yfirvöld í Líbíu hafi
unnið þá baráttu en engin dagsetn-
ing liggur fyrir um hvenær réttað
verður yfir honum.
Sonur:
Saadi Gaddafi
Saadi Gaddafi gegndi stöðu forseta
líbíska knattspyrnusambandsins
og var yfirmaður sérsveitar líbíska
hersins. Honum hefur verið veitt
pólitískt hæli í Níger og dvelur hann
í höfuðborginni Niamey við góðar
aðstæður. Saadi átti ágætan feril sem
knattspyrnumaður, en hann sló fyrst
í gegn í heimalandi sínu. Hann var
síðan seldur til Ítalíu og var um tíma
samningsbundinn Perugia, Udi-
nese og Sampdoria. Ferill hans tók
hins vegar snöggan endi þegar hann
féll á lyfjaprófi. Saadi hefur oft verið
nefndur svarti sauðurinn í Gaddafi-
fjölskyldunni og vakti gjálífi hans
oftar en ekki athygli. Yfirvöld í Líbíu
hafa krafist þess að yfirvöld í Níger
framselji hann en þeirri beiðni hefur
verið hafnað. Segir dómsmálaráð-
herra Níger að í Líbíu bíði hans ekk-
ert annað en dauðadómur.
Dóttir:
Aisha Gaddafi
Aisha Gaddafi er eina stúlkan sem
Muammar Gaddafi eignaðist en
henni var veitt hæli í Alsír ásamt
móður sinni og bróður. Þremur
dögum eftir komu hennar til Al-
sír var tilkynnt að hún hefði eign-
ast heilbrigða stúlku sem var nefnd
Safiya eftir ömmu sinni. Þrátt fyrir
að vera undir ströngu eftirliti og
kröfu um að tjá sig ekki um málefni
Líbíu flutti hún stutt ávarp á sýr-
lenskri sjónvarpsstöð þar sem hún
hvatti íbúa í Líbíu til að berjast gegn
nýrri ríkisstjórn. Hún hefur einnig
ráðið ísraelskan lögfræðing, Nick
Kaufman, til að krefjast þess að Al-
þjóðasakamáladómstóllinn rann-
saki morðið á föður hennar. Fjöl-
miðlar í Líbíu greindu frá því fyrir
skemmstu að hún hefði stutt alsírska
landsliðið í knattspyrnu þegar það
mætti landsliði Líbíu í kappleik.
Ættleidd dóttir:
Hanaa Gaddafi
Muammar Gaddafi hélt því lengi
fram að ættleidd dóttir hans,
Hanaa, hefði dáið í árás banda-
ríska hersins árið 1986 þegar hún
var einungis 18 mánaða. Eft-
ir byltinguna í Líbíu komu nýjar
upplýsingar fram í dagsljósið sem
sýndu að Hanaa hefði ekki dáið í
árásinni. Þrátt fyrir það er ekki vit-
að hvar hún heldur sig.
Eftir byltinguna kom fram í
dagsljósið myndband sem sýn-
ir Hanaa leika sér við föður sinn
og bræður nokkrum árum eft-
ir sprenginguna sem átti að hafa
dregið hana til dauða. Þá fundust
læknaskýrslur stúlkunnar í einni
af lúxusvillum Gaddafis. Fjölmiðl-
ar í Líbíu hafa greint frá því að
Hanaa hafi lokið læknanámi og
starfað í nokkur ár á sjúkrahúsi í
Trípólí.
n Eitt ár liðið frá dauða Muammars Gaddafi n Litið á hver afdrif nánustu aðstandenda og bandamanna Gaddafis voru
Á
laugardag var liðið eitt ár frá
því að Muammar Gaddafi,
forseti Líbíu, var drepinn í
borginni Sirte í kjölfar upp-
reisnar í landinu. Gaddafi
hafði verið þjóðhöfðingi landsins
samfleytt frá árinu 1969. Þrír syn-
ir Gaddafis voru drepnir í uppreisn-
inni, þar á meðal Mutassim, sonur
Gaddafis, sem gegndi herforingja-
stöðu í líbíska hernum. Hann féll
sama dag og faðir hans. BBC leit á
dögunum yfir það sem drifið hefur á
daga annarra náinna fjölskyldumeð-
lima forsetans. Óhætt er að segja að
sumir þeirra séu í ágætum málum
í dag á meðan aðrir hafa séð betri
daga. n
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Erfiðir yfirmenn Meirihluti fólks vill frekar fá nýjan yfirmann en launahækkun.
O.J. Simpson
biður um frelsi
Bandaríski ruðningskappinn og
leikarinn fyrrverandi, O.J. Simp-
son, hefur lagt fram beiðni hjá
dómara í Las Vegas um að honum
verði sleppt úr fangelsi. Simpson
var dæmdur í fangelsi árið 2008
fyrir þátt sinn í vopnuðu ráni og
mannráni og samkvæmt dómnum
átti hann von á að þurfa að sitja á
bak við lás og slá í allt að 33 ár.
Beiðni Simpson kemur í kjöl-
far þess að dómari féllst á að mál-
ið gegn honum yrði tekið upp að
nýju fyrir dómstólum. Ástæðan
er sú að núverandi lögmaður
Simpson, Patricia Palm, telur að
lögmaðurinn sem fór með vörn
Simpson á sínum tíma hefði átt
„persónulegra og fjárhagslegra
hagsmuna“ að gæta í málinu sem
komu í veg fyrir að Simpson fengi
sanngjarna málsmeðferð.
Fórnaði sér
fyrir börnin
Þriggja barna móðir í Wales, Kar-
ina Menzies, fórnaði lífi sínu til
að bjarga þremur börnum sín-
um þegar ökumaður ók inn í hóp
fólks í borginni Cardiff á föstu-
dag. Menzies, sem var 32 ára, lést
þegar ökumaður bifreiðarinnar ók
á hana og slasaði ellefu aðra. Að
sögn lögreglu er talið að ökumað-
urinn, sem er 31 árs, hafi ekið vís-
vitandi á fólkið.
Málið hefur vakið mikla athygli
í Bretlandi og í umfjöllun Tele-
graph er haft eftir vitnum að
Menzies hafi kastað börnum sín-
um í burtu áður en bifreiðinni var
ekið á hana. „Hún öskraði bara og
henti þeim í burtu til að vernda
þau. Hún bjargaði lífi þeirra,“ var
haft eftir einum vegfaranda.
Látinn í rúm-
inu í sextán ár
Franska lögreglan fann á laugar-
dag beinagrind karlmanns í rúmi
á heimili hans í borginni Lille.
Maðurinn virðist hafa látist fyrir
um sextán árum og legið í rúm-
inu allan þennan tíma án þess að
nokkur hafi tekið eftir því eða til-
kynnt um andlát hans. Maðurinn
átti enga ættingja, bjó einn og lést
í íbúð í húsi sem hann átti sjálfur.
Þegar lögreglu bar að garði var
mikið magn af pósti sem lá við úti-
dyrahurðina og þótti ótrúlegt að
póstburðarmaðurinn hefði ekki
látið neinn vita. Elsta bréfið í hrúg-
unni var dagsett árið 1996 og því
ljóst að maðurinn hafði verið látinn
í rúmlega einn og hálfan áratug.