Fréttablaðið - 06.11.2014, Page 8
6. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
ORKUMÁL Landsnet hefur lokið
samningagerð vegna umfangs-
mestu jarðstrengjakaupa fyrirtæk-
isins til þessa. Samið hefur verið
við sænska kapalframleiðandann
NKT Cables AB um kaup á þremur
jarðstrengjum vegna fyrir hugaðra
verkefna á næsta ári. Þeir eru sam-
anlagt 45 kílómetrar að lengd og
ætlaðir fyrir 66 kílóvolta spennu.
Samkomulagið, sem hljóðar upp
á tæplega 400 milljónir króna, var
undirritað í höfuðstöðvum Lands-
nets í gær.
Jarðstrengirnir þrír verða not-
aðir til þriggja aðskilinna verkefna
sem munu bæta og styrkja raforku-
flutningskerfið á Suður- og Vestur-
landi.
Samkomulagið var gert að und-
angengnu útboðsferli þar sem
NKT átti lægsta tilboðið. Það felur
í sér framleiðslu og flutning jarð-
strengjanna til Íslands ásamt eftir-
BANDARÍKIN Demókratar biðu afhroð í kosn-
ingunum í Bandaríkjunum á þriðjudaginn.
Þeir misstu meirihluta sinn í öldungadeild
til repúblikana, minnihluti þeirra í fulltrúa-
deildinni skrapp enn frekar saman og svo
töpuðu þeir í flestum ríkisstjórakosning-
unum.
Repúblikanar standa
hins vegar með pálmann
í höndunum og stjórna nú
báðum deildum þingsins.
Barack Obama forseti þarf
því að hafa töluvert fyrir
hlutunum þau tvö ár sem
eftir lifa af seinna kjör-
tímabili hans.
Repúblikanar geta leikið
sér að því að koma með hvert frumvarpið
á fætur öðru, sem fyrirfram yrði vitað að
hann myndi neita að skrifa undir. Þeir geta
sömuleiðis neitað að taka til greina nokkurn
skapaðan hlut, sem forsetinn myndi vilja fá
í gegnum þingið.
Mitch McConnell, sem hefur verið leiðtogi
minnihluta repúblikana í öldungadeildinni,
verður nú leiðtogi meirihlutans í deildinni.
Hann hefur reynst Obama þungur í skauti
til þessa, og segir að Obama geti varla
reiknað með miklum breytingum þar á:
„Ég reikna ekki með því að forseti vakni á
morgun með allt annað viðhorf til heimsins
en hann hafði í morgun,“ sagði McConnell í
fyrrinótt, þegar ljóst var að sigur repúblik-
ana var í höfn. „Hann veit að ég mun heldur
ekki gera það,“ bætti hann svo við.
Bjartsýnismenn benda þó á að þeir
McConnell og Obama hljóti að þurfa að
koma sér saman um ýmis þau helstu mál,
sem báðir sjái sér hag í að koma í gegnum
þingið. Hvorki repúblikanar né demókratar
græði á því að fara í hart í öllum málum.
gudsteinn@frettabladid.is
Forseti án þingmeirihluta
Barack Obama Bandaríkjaforseti þarf að hafa töluvert fyrir hlutunum þau tvö ár sem eftir lifa af seinna kjör-
tímabili hans. Báðar deildir þingsins verða undir stjórn andstæðinga hans í Repúblikanaflokknum.
Talningu var ekki endanlega lokið
í gær og því enn óljóst um þrjú
þingsæti öldungadeildar, sextán
þingsæti fulltrúadeildar og einn
ríkisstjóra.
Demókratar Repúblikanar
Öldungadeild 45 -7 52 +7
Fulltrúadeild 176 -14 243 +14
Ríkisstjórar 16 -3 31 +3
➜ Úrslit þing- og
ríkisstjórakosningaJafnframt þing- og ríkisstjórakosningum voru kjósendur víða í
Bandaríkjunum að venju beðnir um að taka ákvarðanir í ýmsum
málum, sem sum hver hafa verið afar umdeild. Í Colorado og
Norður-Dakóta höfnuðu til dæmis kjósendur áformum um að
torvelda fóstureyðingar. Þá samþykktu kjósendur í Oregon, Alaska
og í höfuðborginni Washington að heimila fólki að nota maríjúana,
en íbúar í Flórída höfnuðu sams konar tillögu. Áhugasamir íbúar í
Kaliforníu, Massachusetts, Maine og fleiri ríkjum eru þegar farnir
að undirbúa sams konar tillögu til að bera undir kjósendur í næstu
kosningum, sem verða eftir tvö ár.
Þá samþykktu kjósendur í Arkansas, Nebraska og Suður-Dakóta
að hækka lágmarkslaun, en í Oregon höfnuðu kjósendur því að gera
ólöglegum innflytjendum kleift að verða sér úti um ökuskírteini.
MARÍJÚANA, FÓSTUREYÐINGAR, LAUN
MITCH
MCCONNELL
SIGRI FAGNAÐ Repúblikanar á kosninganótt, þegar ljóst var orðið að þeir yrðu með meirihluta í báðum deildum
þingsins næstu tvö árin. NORDICPHOTOS/AFP
Selfosslína 3, ný 28 km löng
jarðstrengslögn milli Selfoss og
Þorlákshafnar– eykur afhend-
ingaröryggi í Hveragerði, Þorláks-
höfn og á Selfossi.
Hellulína 2, ný 13 km löng
tenging milli Hellu og Hvolsvallar
– kemur í stað núverandi loftlína
á þessari leið.
Tenging nýs tengivirkis
á Akranesi.
➜ Þrjú verkefni
45 kílómetra
jarðstrengir
Landsnet byggir upp á Suður- og Vesturlandi:
Þrír jarðstrengir
fyrir 400 milljónir
VIÐSKIPTI Rolls Royce segir upp
2.600 starfsmönnum á næstu 18
mánuðum. Enn frekari uppsagnir
eru yfirvofandi. 55 þúsund starfa
hjá fyrirtækinu um allan heim.
For svars menn fyrirtækis-
ins tengja upp sagn irn ar við að
vinnu sé lokið við smíði og þróun
hreyfla fyrir Boeing 787 Dream-
liner og Air bus A350-þotur. - glp
Rolls Royce sker niður:
Mörgum sagt
upp á næstunni
STRENGUR LAGÐUR Frá landtöku nýs sæstrengs, sem þá varð jarðstrengur, í Vest-
mannaeyjum í fyrrahaust. MYND/LANDSNET
liti með lagningu þeirra, tengingu
og prófunum. Strengirnir verða
framleiddir í verksmiðju fyrirtæk-
isins í Falun í Svíþjóð en Orkuvirki
verður undirverktaki sænska fyrir-
tækisins á Íslandi. - shá
Sími 412 2500 www.murbudin.is
Límkítti
Verð frá kr. 925 pr 300ml.