Fréttablaðið - 06.11.2014, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 06.11.2014, Blaðsíða 70
6. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 54 BAKÞANKAR Kjartans Atla Kjartanssonar Fólk á Vesturlandi þarf nú að safna aftur fyrir sneiðmyndatæki, eftir að það gamla bilaði. Gamla tækið var keypt árið 2006 og söfnuðu einstaklingar, fyrir- tæki og frjáls félagasamtök fyrir því, eins og sagt var frá á Vísi í vikunni. Á vefsíðu Heilbrigðisstofnunar Vestur- lands (HVE) kemur fram að tækið hafi verið mikið notað; alls sautján hundruð sinnum á síðasta ári. HVE á hollvinasamtök sem betur fer. Hópur af fólki sem finnur fyrir sam- félagslegri ábyrgð berst nú fyrir því að safna fyrir nýju tæki. Fyrir tilvilj- un áttu fulltrúar hollvinasamtakanna bókaðan fund með heilbrigðisráðherra skömmu eftir að sneiðmyndatækið bilaða var tekið úr notkun. Þá var búið að safna rúmlega helmingnum af þeim fjörutíu milljónum sem nýtt tæki kostar. Og ég skal viðurkenna að maður bjóst við því að ríkið myndi bara reiða fram tuttugu milljónir og tryggja að íbúar á Vesturlandi hefðu sitt eigið sneiðmyndatæki til umráða og þyrftu ekki að ferðast til höfuðborgarinnar til að sækja þá þjónustu. Það er eiginlega hægt að segja sér að ef einhver þarf á sneiðmynd að halda er hún eða hann líklega veik/ur og þá er væntan- lega æskilegt að forðast löng ferðalög. NEI, er svarið, ef þið voruð að velta fyrir ykkur hvort ríkið ætlaði að borga helming- inn í nýju sneiðmyndatæki, einhverju sem er í öllum landshlutum og hlýtur að teljast hluti af grunnþjónustunni. Ríkið „mun styðja við endurnýjun tækisins með því að tryggja fjármögnun hluta kaupanna“, eins og segir í fréttatilkynningu hollvina- samtakanna, sem safna enn peningum til að kaupa tæki sem ætti að vera til. Til að kaupa tækið aftur. MAÐUR hefur fullan skilning á því að það séu ekki alltaf til peningar. En maður hlýtur samt að spyrja sig hver forgangs- röðunin sé. Það liggur fyrir að ríkið ætlar ekki að kaupa nýtt sneiðmyndatæki og ætlar ekki einu sinni að borga helminginn í því. Þá spyr maður sig hvort sú ákvörðun sé til komin vegna þess að ríkið hafi ekki efni á því, eða hvort ríkið hafi ekki áhuga á því. Að þurfa að safna fyrir sjálfsögðum hlut Leikarinn Robert Downey Jr. og eiginkona hans, Susan Downey, eignuðust dóttur fyrir stuttu samkvæmt heimildum tímarits- ins People. Fyrir á parið soninn Exton Elias sem er tveggja og hálfs árs. Hinn 49 ára Downey Jr. er hvað þekktastur í síðari tíð fyrir að leika Iron Man, eða Járnmann- inn, og leikur hann hasarmynda- hetjuna næst í myndinni Aven- gers: Age of Ultron. Downey Jr., sem átti fyrir son- inn Indio, 21 árs, úr fyrra hjóna- bandi, kynntist Susan árið 2003 og gengu þau í það heilaga tveim- ur árum síðar. Járnmaðurinn eignaðist barn EIGNUÐUST ANNAÐ BARN Robert Downey Jr. og Susan Downey eignuðust dóttur fyrir skömmu. NORDICPHOTOS/GETTY Leikkonan Angelina Jolie segist í viðtali við Vanity Fair ekki úti- loka feril í stjórnmálum. „Þegar þú vinnur við góð- gerðarstarfsemi ertu meðvituð um að það þurfi að gefa stjórn- málum gaum,“ sagði Jolie. „Ef þú vilt gera einhverjar öfgakenndar breytingar þá berðu ábyrgð.“ Jolie sagðist ekki vita í hvaða starfi hún gæti gefið meira af sér. „Ég er meðvituð um það sem ég geri,“ sagði hún. Aðspurð um hvort hún sæi fyrir sér að fara út í stjórnmál eða utanríkisþjónustuna sagðist Jolie vera opin fyrir ýmsu. Útilokar ekki stjórnmálin ANGELINA JOLIE Góðgerðarstarfsemi skiptir hana mjög miklu máli. Tónlistarmaðurinn Justin Timber- lake og leikkonan Jessica Biel eiga von á sínu fyrsta barni samkvæmt heimildum tímaritsins Us Weekly. „Núna eru þau að njóta þessara frétta. Þau vilja bara hamingju- samt barn,“ segir heimildarmað- ur tímaritsins. Timberlake og Biel voru í eins konar haltu mér-slepptu mér sam- bandi í fimm ár áður en þau trúlof- uðu sig í janúar árið 2012. Í októ- ber sama ár gengu þau svo í það heilaga. Þau hafa haft í nægu að snúast síðasta ár sem þýðir vonandi að þau geti tekið sér frí þegar barnið kemur í heiminn. Eins og Íslend- ingar ættu að vita hefur Justin Timberlake ferðast um heiminn með tónleika sína en Biel hefur verið dugleg að fara með ástmanni sínum í tónleikaferðalög. Í síðustu viku ýtti popparinn undir orðróminn um óléttuna þegar hann mætti einn á amfAR Gala-viðburðinn í Los Angeles án þess að Biel væri með í för. Í ágúst var því haldið fram að parið væri að reyna að eignast barn eftir að Biel átti að hafa sagt manni sínum að hún ætlaði að fara til sérfræðings í frjósemisaðgerð- um. Timberlake og Biel voru í eins konar haltu mér-slepptu mér sam- bandi í fimm ár áður en þau trúlof- uðu sig í janúar árið 2012. Timberlake og Biel eiga von á fyrsta barninu Popparinn Justin Timberlake og leikkonan Jessica Biel eiga von á barni. Þau gift u sig í október 2012. SPENNT Parið er afar spennt fyrir komu erfingjans í heiminn. NORDICPHOTOS/GETTY Á seinustu árum hefur orðið bylt- ing í kokteilmenningu á Íslandi. Nú er enginn bar með börum nema boðið sé upp á dýrindis kok- teila og barþjónninn sé jafnvígur á barnum og kokkurinn er í eld- húsinu. Slippbarinn fékk í heimsókn Bretann Tim Judge sem er stjarna í barþjónaheiminum en þegar blaðamann og ljósmyndara bar að garði var hann að undirbúa Master Class á barnum en það var Ölgerðin sem fékk hann til lands- ins. Judge er svokallaður „global brand ambassador“ fyrir Bulleit- viskí, Ron Zacapa-romm og fleiri tegundir ásamt því að vera kenn- ari í World Class Bartending, virt- ustu barþjónakeppni heims. „Ég kom frá Lundúnum á mánu- daginn og hef síðan verið að vinna með bestu barþjónum Íslands. Ég hef verið að kynna þeim Bulleit- búrbon og rúgviskí ásamt því að tala um sögu amerísks viskís. Það er mjög áhugavert af því að það er ekki hægt að tala um sögu amerísks viskís án þess að tala um sögu Ameríku sjálfrar,“ segir Judge. Hann sýndi okkur hvern- ig á að gera hinn fullkomna mint julep-kokteil. „Þetta er sígildur drykkur og var vinsælasti kok- teill Ameríku á 19. öld, rétt eins og Martini var á 20. öldinni. Þetta er einn umræddasti kokteill allra tíma, gríðarlegt magn af prósa og ljóðum hefur verið skrifað um hann og hann hefur jafnvel komið fyrir í The Simpsons,“ segir hann. tordur@frettabladid.is Kokteilmeistari sýnir listir sínar Fréttablaðið kom við hjá barþjóninum Tim Judge, sem blandaði gæða-mint julep. GULLFALLEGUR DRYKKUR „Svo er auðvelt að vera frumlegur– þú getur bætt við hvaða ferskum berjum sem er, hvaða sterku áfengi sem er. Það er hægt að krydda hann upp, breyta bragðinu. Þetta er gullfallegur drykkur.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR LÍTIÐ MÁL „Þetta er mjög einfaldur drykkur, það eina sem þú þarft er viskí, minta, sykur og mikið af muldum ís. Þú drekkur hann með röri og rekur nefið í mintulaufin, þannig að drykkurinn er arómatískur, jafnvel áður en þú færð þér sopa. Þetta er frábær sumarkokteill, svo frískandi og gómsætur.“ PENINGAPOKI „Fyrst setjum við ísinn í svokallaðan Lewis-poka, sem er einfaldlega pen- ingapoki úr bankanum. frábær leið til að mylja ísinn. Fáðu þér stóran hamar og taktu út reiðina. Pokinn sýgur í sig rakann úr bráðnandi ísnum af því að hann er úr vefnaði þannig að við fáum svona góðan og þurran ís í staðinn fyrir blautan ís. Það kemur í veg fyrir að drykkurinn vatnsblandist of fljótt.“ ÁLFABAKKA AKUREYRI EGILSHÖLL KRINGLUNNI KEFLAVÍK „BESTA SVEPPAMYNDIN TIL ÞESSA“ H.J. FRÉTTATÍMINN T.V. - BÍÓVEFURINN.IS -V.J.V, SVARTHOFDI.IS -G.D.Ó, MBL -V.G., DV GRAFIR OG BEIN KL. 8 - 10.15 FURY KL. 9 HEMMA KL. 5.45 BORGRÍKI KL. 8 - 10.10 GONE GIRL KL. 5.45 - 9 BOYHOOD KL. 5.30 PARÍS NORÐURSINS KL. 5.45 GRAFIR OG BEIN KL. 5.30 - 8 - 10.15 GRAFIR OG BEIN LÚXUS KL. 5.30 - 8 - 10.15 FURY KL 5 - 8 - 10.45 BORGRÍKI KL 8 - 10.10 GONE GIRL KL. 8 THE MAZE RUNNER KL. 5.30 SS ÖKA ATR LLIN ÍSL TAL2D KL. 3.30 - 5.45 SMÁHEIMAR 2D KL. 3.30 8, 10:10(P) 6, 8 10:10 5:50, 8, 10:10 5:50
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.