Fréttablaðið - 06.11.2014, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 06.11.2014, Blaðsíða 21
FIMMTUDAGUR 6. nóvember 2014 | SKOÐUN | 21 Í upphafi árs 2014 um það leyti sem kjarasamning- ur Læknafélags Íslands rann sitt skeið birti fjár- málaráðuneytið/RSK auglýsingu um viðmiðun- arupphæðir reiknaðs end- urgjalds vegna sjálfstætt starfandi lækna. Voru læknar þá fluttir upp um flokk og færðir úr flokki annarra háskólamennt- aðra sérfræðinga og við- miðunarupphæðir hækk- aðar. Þar er gert er ráð fyrir að lágmarkslaun lækna séu 850.000 kr. á mánuði. Áður hafði verið samsvörun milli launaliðar kjarasamnings LÍ og hins reikn- aða endurgjalds sjálfstætt starf- andi lækna. Miðað við núverandi launaliði í kjarasamningi LÍ og ráðuneytisins þurfa grunnlaun lækna að hækka umtalsvert svo þessari viðmiðun sé náð. Halda ber til haga að læknar á kjara- samningi LÍ greiða ekki í Lífeyr- issjóð starfsmanna ríkisins og njóta því lakari lífeyristrygginga en aðrir opinberir starfsmenn. Óviðunandi staða Það þarf ekki lengi að skoða launaþróun og kjör hinna ýmsu starfsstétta, þó ekki skuli gert lítið úr mikilvægi þeirra eða ábyrgð, til að sjá óviðunandi stöðu sem læknum er búin og geta ekki lengur setið undir. Grunn- laun nýútskrifaðs læknis eru um 340.000 kr. og læknis með lækningaleyfi 370.000 kr. Byrj- unargrunnlaun sérfræðilækn- is er 530.000 kr. og fara hæst í 595.000 kr. eftir 14 ára starf. Þetta eru þau launa- kjör sem í boði eru á heil- brigðisstofnunum ríkisins á Íslandi. Heildartekjur einstaklinga geta verið breytilegar og hærri en þar ræður mestu um fjöldi sólarhringsvakta sem við- komandi tekur í hverjum mánuði. Vaktafyrirkomu- lag byggist í flestum til- fellum á gæsluvöktum og vinnulotum samfellt í 24 klst. eða jafnvel lengri. Vinnudagar lækna eru oft langir og viðfangsefnin flókin og ekki í alla staði auðveld. Kröfur um þekkingu, reynslu og nákvæmni í vinnubrögðum eru gífurleg og mistök dýrkeypt og ekki liðin. Stjórnvöld daufheyrast Til samanburðar má skoða þróun meðallauna ýmissa starfstétta hjá VR í launakönnun þess 2014 sem aðgengileg eru á heimasíðu félagsins. Þar má sjá að meðal- talsgrunnlaun bílstjóra eru nú 304.000 kr., móttökuritara við símavörslu 335.000 kr., gjald- kera við innheimtustörf 411.000 kr. Bókarar hafa 465.000 kr., sérhæfðir tryggingastarfsmenn 500.000 kr., fjármálastjórar 682.000 kr. og hag- og viðskipta- fræðingar 620.000 kr. Himinn og haf er milli menntunarkostnaðar og tímalengdar náms lækna og þessara ágætu starfsstétta sem einnig þjóna mikilvægu hlut- verki í klukkuverki samfélags- ins. Starfsævi lækna er stutt í samanburði við allar aðrar stéttir. Algengt er að sérfræðingar snúi heim til starfa á fertugsaldri eftir að hafa verið í framhaldsnámi erlendis. Læknir lýkur námi 26-27 ára, fær lækningaleyfi 28-30 ára og sérfræðiviðurkenningu fjórum til sex árum síðar. Læknar hafa nú í fyrsta sinn nýtt sér verkfallsrétt. Aðgerð- ir eru boðaðar fram í desemb- er hafi samningar ekki náðst. Það þykir læknum miður og þeir sinna öllum bráða- og neyðartil- vikum þrátt fyrir að vera í verk- falli. Ástæða aðgerðanna er að núverandi launakjör eru ekki það dráttarafl sem dugar til að standa að endurnýjun í röðum sérmennt- aðra lækna. Undanfarin misseri heyrir til undantekninga ef sér- fræðilæknir flyst heim. Straum- urinn er út. Mönnunarvandinn er raunverulegur. Með óviðunandi vinnuálagi og skertu aðgengi þurfandi sjúklinga. Þessu þarf að snúa við. Samtök lækna geta ekki horft aðgerðarlaus á þessa þróun. Stjórnvöld daufheyrast og sinna í engu aðvörunarorðum. Læknar eru orðvör stétt en enginn skyldi ætla að þeim sé ekki fullkomin alvara í aðgerðum sínum. Læknar vænta leiðréttinga á grunnlaunum í núverandi kjaradeilu. Setti ríkið tóninn fyrir launaleiðréttingu lækna? Allar stéttir samfélags- ins eru mikilvægar og það er mjög erfitt, ef ekki ómögulegt að fullyrða hver sé mikilvægari en önnur. Ég tel hins vegar að færa megi rök fyrir því að læknar séu ein dýr- mætasta stétt hvers sam- félags. Fyrir því liggja einkum tvær ástæður. Sú fyrri er að læknar eru almennt fáir, t.d. eru læknar á Íslandi um helmingi færri en íbúar Húsavík- ur. Hin ástæðan er að það tekur a.m.k. 16 ár að búa til einn sér- fræðilækni sem er umtalsvert lengra en flestar aðrar stéttir. Þannig að það bæði munar virki- lega um hvern einasta lækni og tekur mörg ár að bæta fyrir hvern sem hverfur. Þó skynjar maður það ekki að fjármálaráðherra telji lækna yfir höfuð nokkuð sem vert er að halda í eða laða heim. Ég vil ekki trúa því að hans mat sé „Þeir geta þá bara farið“ en þögn hans er ærandi nú þegar læknar sjá þann kost einan að fara í verkfall. Bar- áttan snýst þó ekki um það hvort læknar fari. Baráttan snýst eigin- lega ekki heldur um hvort útborg- uð laun nýútskrifaðs læknis verði áfram 260.000 eða hækki eitthvað. Baráttan snýst um að íslenska heilbrigðiskerfið er undirmannað af læknum. Baráttan snýst um að verja þá lækna sem eftir eru fyrir ómanneskjulegu álagi á allt of þungum eða allt of löngum vinnulot- um. Baráttan snýst um að til auðnar horfir í heilu sérgrein- unum; krabbameinslækningum, brjóstaskurðlækningum og sjálfri undirstöðunni, heimilislækning- um. Heilbrigðiskerfið er komið að hættumörkum og fer yfir þau í náinni framtíð – ef ekki nú þegar. Þetta er því annað og meira en hefðbundin kjarabarátta. Þetta er nauðvörn fyrir framtíð heil- brigðiskerfisins og læknisfræði á Íslandi. Yfir til þín, Bjarni! Nú hefur alþjóð fengið að vita að fjármálaráðherra sé hraustur maður. Eins gott, því nú þarf að taka hraustlega á því. Ég vil því senda honum brýningu í bundnu máli: „Þið kerfinu teflduð á tæpasta vað svo tvísýnt er hvort það við hjarni. Viljirðu bjarga því verðurðu að við okkur semja, Bjarni“ Hefur ríkið efni á því að semja ekki við lækna?➜ Miðað við núverandi launaliði í kjarasamningi LÍ og ráðuneytisins þurfa grunnlaun lækna að hækka umtalsvert svo þessari við- miðun náð sé. KJARAMÁL Reynir Arngrímsson varaformaður Læknafélags Reykjavíkur KJARAMÁL Eyjólfur Þorkelsson verðandi heimilis- læknir ➜ Þó skynjar maður það ekki að fjármála- ráðherra telji lækna yfi r höfuð nokkuð sem vert er að halda í eða laða heim. BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GE bílar Reykjanesbæ www.bilahusid.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 E N N E M M / S ÍA / N M 6 4 5 5 5 Subaru XV 2.0i, sjálfskiptur Verð: 5.290.000 kr. 6,6 l/100 km í blönduðum akstri Ný LINEARTRONIC stiglaus sjálfskipting með þrepastillingum í stýri. SUBARU ER EINN ÖRUGGASTI BÍLL SEM ÞÚ GETUR KEYPT Rekstraröryggi og gott endursöluverð er það sem allir þekkja og kemur fyrst upp í hugann. Lágur þyngdarpunktur, þverliggjandi BOXER vél og sítengt fjórhjóladrif með tölvustýrðri stöðugleikastýringu er lykillinn að akstursöryggi. Allir Subaru eru með 5 stjörnur í árekstrarprófunum EuroNCAP. GERÐU ÖRUGG BÍLAKAUP – KAUPTU SUBARU!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.