Fréttablaðið - 06.11.2014, Blaðsíða 54
6. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 38
Sveitin
fær reyndar
engin ósköp
að gera– það
eru helst
einhverjar
árásir á grey
einleikar-
ann.
Þeir eru staddir í Hörpunni, Sveinn
Lúðvík Björnsson tónskáld og
Einar Jóhannesson klarínettuleik-
ari. Mikið stendur til. Einar er að
fara að spila nýjan konsert eftir
Svein með sinfóníunni. Sveinn
hefur ekki fylgst með æfingum
en kveðst engar áhyggjur hafa.
„Ég veit þetta verður allt í fína,“
segir hann. „Held þetta sé alveg
heiðarlegt stykki og hlakka mikið
til.“ Þegar ég bið þá félaga að lýsa
aðeins verkinu verður Einar fyrst
fyrir svörum:
„Sveinn Lúðvík skrifar mjög
persónulega músík, bara frá hjart-
anu. Þetta er tveggja heima verk,
mjög dularfullt, ólíkt öðrum kons-
ertum sem samdir hafa verið.
Þegar ég byrjaði að æfa hann
fannst mér ég kominn inn í ann-
ars manns draum og varð nánast
feiminn. En svo gerði ég þennan
draum að mínum og fann leið til
að koma honum til skila.“
„Ég treysti Einari fullkomlega,“
segir Sveinn Lúðvík. „Hef líka
alltaf verið heppinn með flytjend-
ur að mínum verkum, þeir hafa
haft áhuga fyrir að gera vel og
taka áhættuna með mér.“ Hann
segir Caput-hópinn hafa haldið
honum uppteknum, líka Kammer-
sveit Reykjavíkur og ýmsa sólóista.
„Þetta nýja verk er fyrir stærri
hljómsveit en ég hef skrifað fyrir
áður – sveitin fær reyndar engin
ósköp að gera – það eru helst ein-
hverjar árásir á grey einleikar-
ann!“ Þeir Einar hlæja báðir. „Já,
Tveggja heima verk, ólíkt öðrum
konsertum sem samdir hafa verið
Meðal atriða á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu í kvöld er klarínettukonsert eft ir Svein Lúðvík Björnsson tónskáld. Hann
samdi verkið sérstaklega fyrir Einar Jóhannesson klarínettuleikara, það er persónulegt og skrifað frá hjartanu að sögn fl ytjandans.
TÓNSKÁLDIÐ OG
FLYTJANDINN
„Ég held þetta sé
alveg heiðarlegt
stykki og hlakka
mikið til,“ segir
Sveinn og Einar
kveðst hafa hitt á
fallega æð í honum
þegar hann stakk
upp á að hann
skrifaði klarínettu-
konsert.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
ég sagði áðan að þetta væri eins og
draumur en auðvitað er það meira
eins og martröð hvernig hljóm-
sveitin fer með mig,“ segir klarín-
ettuleikarinn.
Sveinn Lúðvík hefur alla tíð haft
dapra sjón en segir það engin áhrif
hafa á tónlistarstörf sín. „Það er
ópraktískt að vera sjónskertur en
það kemur tónlistinni ekkert við.
Ég get skrifað hana með stækkun-
arforriti í tölvunni.“ Upphaflega
lærði hann söng og píanóleik, aðal-
hljóðfærið varð samt gítar en hann
var alveg að fara að svissa yfir í
lútu þegar hann ákvað að snúa sér
að tónsmíðanámi hjá Atla Heimi
Sveinssyni. Atli Heimir hefur kallað
hann „ljóðskáldið í hópi tónskálda“
vegna hnitmiðaðra vinnubragða.
Einar kveðst hafa kynnst Sveini
Lúðvík fyrir nokkrum árum. „Þá
var hann í þeim hugleiðingum að
skrifa óperu og ég átti kannski að
fá þar eitthvert lítið sönghlutverk.
Þetta var mikið drama og mjög
spennandi en af ýmsum ástæð-
um valt það útaf borðinu,“ botn-
ar Sveinn Lúðvík. Einar segist þá
hafa spurt Svein Lúðvík í hálfkær-
ingi af hverju hann skrifaði ekki
klarínettukonsert. „Ég hitti svona
á fallega æð í honum. Nú er komið
að frumflutningnum þannig að ég
fæ sönghlutverkið gegnum klarín-
ettið!“
„Allra sálna messa er helguð minn-
ingu látinna og efnisskráin er í takt
við það. Við ætlum að syngja Ave
Maríur, messu og önnur trúarleg
verk eftir mörg af þekktustu tón-
skáldum sögunnar. Þar má nefna
Bach, Mozart og Schubert,“ segir
Hallveig Andrésdóttir, ein hinna
tónvissu kvenna í Vox feminae sem
syngja í Fella-og Hólakirkju í kvöld
undir stjórn Margrétar Pálmadótt-
ur. Guðný Einarsdóttir organisti
leikur á píanó og orgel og Victoria
Tsar evskaia á selló.
Hallveig segir stærsta verkið á
dagskránni vera messu op. 187 eftir
Josef Rheinberger. „Við höfum ekki
sungið þessa messu fyrr, að undan-
skildum einum kafla,“ segir hún og
hvetur fólk til að koma að hlýða á
fagra tóna, kveikja á minningar-
kerti og minnast látinna ástvina.
Tónleikarnir hefjast klukkan
20.30 og miðaverð er 2.000 krónur.
- gun
Syngja Ave Maríur og önnur trúarleg verk
Kvennakórinn Vox feminae heldur tónleika í tilefni allra sálna messu í Fella- og Hólakirkju í kvöld.
VOX FEMINAE Kórinn hefur víða sungið í helgidómum erlendis. Þessi mynd er tekin fyrir réttu ári í Notre Dame-kirkjunni í París.
„Ég vil frekar að listaverkin tali sínu máli en að
ég sé að lýsa þeim í orðum. Allir einstaklingar
eiga sitt abstrakt DNA og þetta er mitt,“ segir
Búi Kristjánsson myndlistarmaður, þegar hann
er spurður út í sýninguna sem hann opnar í
Smiðjunni listhúsi í Ármúla 36 í kvöld klukkan
20.
Hann kveðst ekki sækja myndefnið í
umhverfið eða annað sem auga hans nemi held-
ur leiti hann inn á við, í undirmeðvitundina.
„Því skíri ég ekki myndirnar heldur gef þeim
númer eftir því hvenær hugmyndirnar koma til
mín. Þannig verða þær í sjálfu sér að einu kons-
eptverki sem á sér upphaf og ég er ekki farinn
að sjá fyrir endann á því,“ útskýrir hann.
Búi hóf myndlistarnám á listasviði FB og
hefur síðan lokið námi við Myndlista-og hand-
íðaskólann, Tækniskólann og Háskólann í
Reykjavík. Hann hélt tvær sýningar í New York
og eina í London á síðustu 18 mánuðum. - gun
Þetta er mitt abstrakt-DNA
Búi Kristjánsson opnar sýningu í kvöld í Smiðjunni listhúsi í Ármúla
36. Hann leyfi r myndlistinni að koma til sín óþvingaðri úr hugskotinu.
LISTAMAÐURINN
Búi leitar inn á við
eftir myndefninu.
Bryndís Kondrup opnar sýningu í
Ketilhúsinu á Akureyri á laugar-
daginn klukkan 15. Hún nefnir
hana Af jörðu – De Terrae og
fjallar þar um holdgervingu og
hverfulleika.
Bryndís kveðst á síðustu árum
hafa sökkt sér ofan í pælingar um
lífið og nú haldi hún áfram veg-
ferðinni um lendur tilverunnar.
Sýningin er opin þriðjudaga til
sunnudaga frá 12 til 17. Aðgangur
er ókeypis. - gun
Táknrænt mál
landakorta
LISTAMAÐURINN Hverfulleikinn er
henni hugstæður.
MENNING