Fréttablaðið - 06.11.2014, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 06.11.2014, Blaðsíða 58
6. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 42 FIMMTUDAGUR HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 6. NÓVEMBER Tónleikar 12.00 Grúska Babúska treður upp í Árbæjarsafni á meðan sýningin Neyzlan– Reykjavík á 20. öld stendur yfir. 15.00 Off Venue-dagskrá á Jör í tilefni Iceland Airwaves. Í dag troða upp Prins Póló, Hermigervill, Uni Stefson, Young Karin, Barónsbræður og Gísli Pálmi. 15.00 Myndlistardeild Listaháskóla Íslands efnir til tónlistarveislu í til- efni Iceland Airwaves á Kaffistofunni Nemendagalleríi við Hverfisgötu 44. Í dag koma fram Sigga, Nuke Dukem, Ósk, IBM, Hljómsveitin Eva, Reil Young og Óskar. 16.00 Off Venue-tónleikar Bedroom Community á Kaffibarnum hefjast í dag. Fram koma Stara Rzeka, Óbó, Samaris og Katla Choir. 16.15 Stelpur rokka! ætla að taka þátt í Iceland Airwaves í ár með glæsilegri Off Venue-dagskrá á Loft Hostel í Banka- stræti í dag. Fram koma hljómsveitir og tónlistarkonur sem allar hafa komið að starfi Stelpur rokka! á einhvern hátt, auk tónlistarkonu frá Skotlandi. Þetta eru Kælan Mikla, Rachel Sermanni, Adda, Margrét Arnar og Boogie Trouble. 17.30 Tónlistarskóli Seltjarnarness fær gítarkennarann Gunnlaug Björnsson til liðs við sig fyrir tónleikaröðina Tónstafi í Bókasafni Seltjarnarness. Á efnisskránni eru verk eftir Bach, Ginastera og Gunn- laug sjálfan. 19.30 Klarinettleikarinn Einar Jóhanns- son frumflytur Clarinet Concerto eftir Svein Lúðvík Björnsson. Rumon Gamba er hljómsveitarstjóri. Miðaverð frá 2.400 til 6.900 króna. 20.30 Tónleikar í Fella- og Hólakirkju í kvöld. Stjórnandi er Margrét J. Pálma- dóttir. Guðný Einarsdóttir leikur á píanó og orgel og Victoria Tsarevskaia leikur á selló. 21.00 Páll Rósinkranz og Margrét Eir troða upp á Gamla Kaupfélaginu í tilefni af útgáfunni á plötu þeirra If I Needed You. 21.00 Svavar Knútur hefur unnið með Óskarsverðlaunahafanum Markéta Irglová frá Tékklandi á nýjustu plötu sinni Öldu- slóð. Hann treður upp á Café Rosenberg í kvöld. 22.00 Magnús R. Einarsson heldur tón- leika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da í kvöld. Hönnun 16.00 Sýningin Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur hefst í dag og að þessu sinni taka rúmlega fimmtíu aðilar þátt. Sem fyrr er gróskan og fjöl- breytnin mikil og meðal þess sem hægt er að skoða á sýningunni í nóvember er handspunnið band, munir úr hornum og beinum, skartgripir, barnaföt, trémunir, keramik, leðurvörur, skór, fatnaður og fleira. Á sýningunni verða einnig afhent Skúlaverðlaunin– verðlaun fyrir besta nýja hlutinn á sýningunni. Ljósmyndasýningar 09.00 Stephan Stephensen eða President Bongo úr GusGus heldur ljósmyndasýn- ingu á Mokka Kaffi. Tónlist 21.00 Robot Disco og Electronix teiti á Paloma Bar í kvöld. Fram koma plötu- snúðarnir 90210, Jammin Jack og Enzo Magestic. 21.00 Afrobeat tónar á Dolly í kvöld. Yamaho, King Lucky og Skeng verða plötusnúðar kvöldsins. Á meðan birgðir endast verður boðið upp á Ballantine’s Brasil. 21.00 Trúbadorinn Biggi treður upp á English Pub í kvöld. Bækur 17.00 Í dag verður útgáfu skáldsögunnar Hálfsnert stúlka fagnað í Eymundsson Skólavörðustíg. Léttar veitingar í boði. Fyrirlestrar 16.30 Í dag verða fluttir tveir fyrirlestrar í stofu 101 í Odda í fyrirlestraröð Mið- aldastofu Háskóla Íslands um Landnám Íslands. Kristján Árnason, prófessor í íslenskri málfræði, ræðir um um tungu- tak landnámsmanna. Hvaða tungumál eða mállýskur voru talaðar hér á landi fyrst eftir landnám? Nikola Trbojevic, doktorsnemi í fornleifafræði, ræðir um þá geysihröðu skógareyðingu sem átti sér stað á landnámsöld en landnámsmenn ruddu land til ræktunar og eins þörfnuð- ust þeir viðar til eldiviðar og bygginga. Myndlist 17.00 Erla Þórarinsdóttir opnar sýn- inguna Single Lines í SÍM í Hafnarstræti í dag. 17.00 Í dag verður opnuð sýning á verkum myndlistarmannanna Auðar Ingu Ingvarsdóttur og Hafdísar Brands í Artó- teki. Sýningin nefnist Fígúrur og form og er á 1. hæð Borgarbókasafns Reykjavíkur. Sýningin er samstarfsverkefni þeirra Auðar Ingu og Hafdísar sem sýna lista- verk unnin í leir. 20.00 Oddsteinn Örn Björnsson frá Mör- tungu á Síðu mun sýna myndir af lands- lagi, fossum, bæjum, húsum, kirkjum, göngum og réttum frá ýmsum stöðum í Skaftfellingabúð. Eftir kaffi mun Svavar M. Sigurjónsson frá Hofi sýna myndir úr smalamennskum í Breiðarmerkur- fjalli, Ingólfshöfða og víðar í Öræfum. Aðgangseyrir er 1.000 krónur, innifalið kaffi og kruðerí. Umræður 20.00 Fjórða Höfundakvöld Gunnarshúss verður í kvöld. Þá mæta þau Ófeigur Sigurðsson og Heiðrún Ólafsdóttir og lesa upp og svara spurningum Páls Vals- sonar um bækur sínar, Öræfi og Leið. Allir velkomnir á meðan stólar leyfa, aðgangur 500 kr. 20.00 Í kvöld talar Svana Einars- dóttir á opnu húsi í baháí-miðstöðinni að Öldugötu 2, Reykjavík. Erindið heitir Frá Völuspá til baháí rita. Fjallað verður um hvernig sagt er fyrir um baháí trúna í Völuspá og öðrum eldri ritum. Samkoma 19.00 Unglingadeild Öxarfjarðarskóla býður upp á mat og skemmtiatriði í Lundi í kvöld. Í ár verður þemað tengt grískri goðafræði. Miðaverð er 2.500 kr. fyrir fullorðna, 1.500 fyrir börn á grunn- skólaaldri, ókeypis fyrir og yngri en 6 ára. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@ frettabladid.is „Öll lögin eiga það sameiginlegt að vera með sterka frásögn sem heillar okkur,“ segir Margrét Eir Hönnudóttir söngkona en tónleika- ferðalag hennar og Páls Rósin- kranz hefst í kvöld í Gamla kaup- félaginu á Akranesi. Ferðalagið er í tilefni plötunnar If I Needed You, þrettán laga plötu sem kafar djúpt í rætur amerískrar þjóðlaga- hefðar. „Það er kannski hægt að setja þetta undir smá bluegrass, smá kántrí, aðallega þessa sagnahefð og þessar mannlegu sögur sem við öll þekkjum en þarna eru höfundar sem hafa eitthvert einstakt lag á að orða hlutina,“ segir Margrét. „Höf- undar eins og Bob Dylan og Townes Van Zandt en elsta lagið á plötunni er frá 1857 á meðan það yngsta er frá 2008.“ Það er hljómsveitin Thin Jim sem sér um undirspilið. Thin Jim eru þeir Jökull Jörgensen á bassa, Andrés Þór Gunnlaugsson og Davíð Sigurgeirsson á gítar og Kjartan Guðnason á trommum. - þij Kafað í ameríska þjóðlagahefð Margrét Eir og Páll Rósinkranz hefj a tónleikaferðalag sitt í kvöld. MANNLEGAR SÖGUR öll lögin á plötunni eru með einhverri frásögn. MYND/STEVE LORENZ – RÖP, Mbl. Fimmstjörnu-kvöld í Íslensku óperunni. Hver stórsöngvarinn toppar annan í glæsilegri og þaulunninni sviðsetningu. Kristinn rís bókstaflega í shakespearskar hæðir í nístandi og hrollvekjandi túlkun sinni … – Jón Viðar Jónsson Glæsileg uppfærsla – Jónas Sen, Fbl. Aukasýning 15. nóvember kl. 20 ALLRA SÍÐASTA SÝNING Miðasala í Hörpu og á harpa.is Miðasölusími 528 5050 Íslenskt handverk síðan 1940 Jólarjúpur og laufabrauð í Rammagerðinni Hugrún Ívarsdóttir, hönnuður, tekur á móti viðskiptavinum í Rammagerðinni 6.-10. nóvember og kynnir nýja vöru 6.-10. nóvember Hafnarstræti 19 - Reykjavík | rammagerdin.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.